Morgunblaðið - 18.10.2011, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.10.2011, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Vampírur lifa mjög spenn-andi lífi. Þær eru gríðar-sterkar, geta orðið mörghundruð ára gamlar en líta út fyrir að vera ungt fólk. Þær eru yf- irleitt vel lesnar, enda haft óvenju mörg ár til að mennta sig, eru gríð- arlega kynþokkafullar, óttalausar og ósigrandi. En til að öðlast þessi „lífs- gæði“ þurfa þær að drepa fólk og/eða drekka blóð. Margar þeirra, í það minnsta þær sem tilheyra Radley- fjölskyldunni og fjallað er um í sam- nefndri bók breska höfundarins Matt Haig, vilja ekki vera slík villidýr. Líkt og áfengissjúklingur sem þarf að forðast flöskuna, gengur líf Radley- fjölskyldunnar út á það að forðast að- stæður sem hvetja til blóðþorsta. Með Handbók óvirkra að vopni, sem er í raun sambærileg AA bókinni, remb- ast þau við að lifa hversdagslegu lífi. Þau búa í úthverfi, elda sunnudags- steik (reyndar mjög blóðuga), fara í bókaklúbba og bjóða í garðveislur. Allt þar til ósköpin dynja yfir og blóð- þorstinn nær tökum á yngsta fjöl- skyldumeðlimnum. Vampírubókmenntir hafa síðustu misseri átt miklum vinsældum að fagna. Bókaflokkur Stepenie Meyer um gylltu vampíruna Edward Cullen og fjölskyldu fór sigurför um heiminn en hér kveður við nokkuð annan og blóðugri tón. Radley-fjölskyldan myndi vinna Cullen-fjölskylduna kæmi til átaka, það er nokkuð ljóst. Og Radley-fjölskyldan er bless- unarlega laus við alla þá yfir- gengilegu væmni og dramatík sem Cullen-fólkið veltir sér stöðugt upp úr. Það er eitthvað heillandi við þá til- hugsun að á meðal okkar sé fólk sem er allt öðruvísi en allir aðrir. Að sam- hliða okkar heimi þrífist í raun allt annar. Þar gilda önnur lögmál og aðr- ar hefðir. Á jólunum gleðja vampírur t.d. börn sín með því að koma heim með skrokk af jólasveini til hátíða- brigða (bls. 217). Vampíruklám er sérstakur iðnaður sem og hefðbundin kvikmynda-, bóka- og tónlistargerð þar sem vampírurnar Jimi Hendrix og Vivien Leigh koma m.a. við sögu! Nokkuð sannfærandi mynd, ef svo má að orði komast, er dregin upp af þessum hliðræna heimi í Radley- fjölskyldunni, í það minnsta fyrir okkur sem höfum fjörugt ímyndunar- afl. Í grunninn er sagan nokkuð ein- föld og margsögð. Hún fjallar um ungling sem fremur glæp og hvað foreldrarnir eru tilbúnir að leggja á sig til að vernda barn sitt og leynd- armálið. En hér snýst glæpurinn hins vegar um að bíta fólk á háls, sjúga úr því allt blóð og rífa úr því líffærin. Þrátt fyrir þennan viðbjóð heldur maður alltaf með blóðsugunum. Og þyrstir í meira því miklu púðri er eytt í bókinni í að kynna vampíruheiminn og sögupersónur til leiks. Loka- uppgjörið kemur reyndar frekar seint og er nokkuð fyrirsjáanlegt þó ágætis bit sé í því. Blóðsugur sem borða jólasveina í kvöldmat Radley-fjölskyldan bbbnn Eftir Matt Haig. Bjartur gefur út. 393 bls. SUNNA ÓSK LOGADÓTTIR BÆKUR Blóðugt Það er ágætis bit í sögu Matts Haigs um Radley fjölskylduna, sem segir af vampírum sem reyna að lifa hversdagslegu lífi. AF AIRWAVES Davíð Már Stefánsson dms8@hi.is Iceland Airwaves-hátíðinni,þeirri þrettándu, lauk síðast-liðinn sunnudag með miklum látum. Það vottaði ekki fyrir þreytu meðal gesta og var margmenni á öllum þeim tónleikum sem ég kom við á. Ég ætlaði mér að byrja dag- skrána klukkan fjögur á Kex þar sem Stafrænn Hákon átti að koma fram off-venue. Sökum ruglings varð því miður ekkert úr þeim tón- leikum og því varð ég að fresta því að byrja endalokin. Ég var þó fljót- ur að taka gleði mína á ný því hin færeyska Guðríð Hansdóttir, sem ég hafði heyrt góða hluti um, var bókuð á off-venue tónleika á Dillon skömmu síðar. Guðríð kom fram með bandi sínu og flutti fyrir áhorf- endur ljúft færeyskt alþýðurokk. Ég hafði mjög gaman af henni og textar hennar um þokukennda firði Færeyja kveiktu enn frekar í löng- un minni til að ferðast þangað. Muldrað var færeysku í hverju horni á meðan á tónleikunum stóð og greinilegt að samlandar Guð- ríðar voru hér komnir til að sjá hana.    Því næst var förinni heitið áNasa þar sem Hermigervill byrjaði kvöldið. Myndarleg röð hafði myndast í kuldanum áður en byrjað var að hleypa fólki inn. Stað- urinn fylltist því fljótt og raftónar Hermigervils tóku að ylja kroppum og hjartarótum. Teknar voru raf- útgáfur af eldri íslenskum lögum og má þar nefna „Vor í Vagla- skógi“, „Þorparann“ og „Partýbæ“. Það féll vel í kramið meðal ís- lenskra áhorfanda á meðan erlend- ir gestir virtust ekki eins hrifnir. Hermigervill lék á als oddi og spjallaði við áhorfendur á milli laga. Hann tók meðal annars eft- irhermu af Mugison en þeir félagar státa báðir af þykku alskeggi. Er Hermigervill hafði lokið sér af lá leiðin að Gauki á Stöng þar sem liðsmenn Coral spiluðu grimmt grunge. Krafturinn í þeim endur- speglaðist ekki beint í mannskar- anum sem á hlýddi og stemningin varð því frekar léleg. Áður en yfir lauk náði söngvari Coral þó athygli skarans og bað þá erlendu gesti sem þar voru um að gera tvennt áð- ur en þeir yfirgæfu landið, kaupa nýju plötuna þeirra og myrða stjórnmálamann. Ekki veit ég hversu margar plötur seldust en ég geri ráð fyrir því að enginn hafi tekið seinni beiðninni alvarlega þar sem fregnir þess efnis hafa ekki borist mér til eyrna. Næstir til að stíga á svið voru svo rokkararnir í We Made God. Þeir spiluðu af mik- illi innlifun og þungt rokkið fór vel í áhorfendur. Ég hef þann smekk fyrir þungu rokki að mér finnst það best þegar lítið sem ekkert er sung- ið. Mér fannst þeir því koma best út þegar svo var og minntu þeir mig þá talsvert á bresku sveitina 65- daysofstatic. Liðsmenn sveit- arinnar fóru hamförum í lokalag- inu og endaði bassaleikari sveitarinnar á því að þrykkja hljóð- færi sínu í gólfið en það athæfi vakti talsverða lukku meðal áhorf- enda. Þá var röðin komin að dönsku sveitinni Thulebasen. Ég hafði lent á spjalli við Dani fyrr um daginn sem fóru fögrum orðum um sveit- ina og ég var því nokkuð spenntur fyrir henni. Thulebasen spilaði pönkrokk án þess að vera með þessa dæmigerðu pönk-sviðs- framkomu. Meðlimir bandsins hreyfðu hvorki legg né lið og muldruðu í míkrófóninn á meðan fíngerð stúlka í bleikum bol og með spennu í hári lamdi húðirnar í gríð og erg. Ég hafði nokkuð gaman af því að fylgjast með bandinu spila þó svo tónlistin hafi ekki hreyft mikið við mér.    Ég hélt síðan aftur á Nasa þarsem hinn kanadíski Rich Aucoin bjó sig undir það að ljúka kvöldinu. Á öllum þeim Airwaves- hátíðum sem ég hef farið á hefur sunnudagskvöldið á Nasa verið einkar fjörugt. Hér virtist engin undantekning vera frá því. Rich Aucoin hélt uppi fjörinu með raf- poppi og þvílíkri sviðsframkomu þar sem gestir spiluðu svipað stóra rullu og bandið sjálft. Hann óð nokkrum sinnum út í salinn til að virkja áhorfendur, lét áhorfendur bera sig á brimbretti um staðinn, sprengdi glimmer yfir mannhafið og sýndi áhorfendum nokkur vel valin myndbönd af netinu. Hann fékk hátíðargesti til að endurtaka setningar tengdar sjálfshvatningu og lífsvilja sem síðar urðu að lögum. Á tímabili fannst mér ég vera stadd- ur á sjálfshjálparnámskeiði eða samkomu of glaðra manna. Það fór eilítið í taugarnar á mér en hátíð- argestir virtust elska þessa stemn- ingu; ég er eflaust bara of leið- inlegur til að taka þátt í slíkri gleði. Kvöldið endaði svo á því að Rich bað fólk um að senda sér smáskila- boð ef það vildi fá tónlist hans frítt. Fyrir þá sem vilja nálgast tónlistina en náðu ekki númerinu þá var það eftirfarandi: 001-902-877-6534.    Kvöldið var góður endir á velheppnaðri hátíð. Alltaf er þó hægt að finna eitthvað sem má bæta. Ég spjallaði við nítján ára er- lendan hátíðargest sem hafði komið hingað til lands eingöngu vegna há- tíðarinnar. Hann sagðist hafa eytt mörgum rigningasömum klukku- tímum í biðröð sem oft hefði verið til einskis því dyraverðir staðanna vildu ekki hleypa honum inn sökum aldurs. Eins frábær hátíð og Ice- land Airwaves er þá er þetta eitt- hvað sem þarf að koma í veg fyrir. Lengi má gott bæta. Hátíðin kvödd af krafti » Á tímabili fannstmér ég vera staddur á sjálfshjálparnámskeiði eða samkomu of glaðra manna. Morgunblaðið/Eggert Brim Rich Auoin hélt uppi fjörinu á Nasa, lét áhorfendur meðal annars bera sig á brimbretti um staðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.