Morgunblaðið - 18.10.2011, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Maður hefði ekki trúað þvíað óreyndu að PedroAlmodóvar myndi geraspennumynd en sú er
raunin. Hún var frumsýnd í vor á
Cannes-hátíðinni fyrir fullum sal. Á
fréttamannafundinum eftir frum-
sýninguna sagði Almodóvar að þetta
væri líka í fyrsta skiptið sem hann
gerði bíómynd eftir bók. En skáld-
sagan eftir Thierry Jonquet sem
myndin er byggð á gerði mikla lukku
fyrir nokkrum árum.
Helstu einkenni Almodóvars eru
fyrir hendi þótt hann fylgi jafnframt
öllum reglum spennumynda við upp-
byggingu sögunnar. Eins og jafnan
hjá Almodóvar er eitt meginþema
myndarinnar vangaveltur um kyn
mannanna og mörkin milli kven-
manns og karlmanns. Hvar þau eru
og hver þau eru. Þetta er þriller um
líkamann. Möguleika líkamans og
jafnvel ómöguleika hans. Vísanir í
hið líkamlega og í listamenn sem
hafa einbeitt sér að honum einsog
Louise Bourgeois sem oft er vísað
til.
Sagan fjallar um forríkan lýta-
lækni sem er að þróa húð sem getur
ekki brunnið. Hann þykist aðeins
notast við rottur við tilraunir sínar,
en svo er ekki í raun og veru. Hann
gerir tilraunir sínar á ungri og gull-
fallegri stúlku sem er fangi hans.
Þau virðast vera ástfangin en þó
virðist samband þeirra hafa byrjað
með ofbeldi. Ekki er ljóst í byrjun
hvort stúlkan er kona hans, sem á að
hafa látist í bruna, eða ekki.
Óneitanlega kemur upp í huga
manns eldri mynd eftir Almodóvar,
Tie me up! Tie me down! sem leikur
sér einnig með mögulega ást á milli
fanga og þess sem fangar. Hug-
myndum um ofbeldi, þvingun,
nauðgun, misnotkun og ást í sama
grautnum hefur Almodóvar í sínum
órum alltaf haft áhuga á. Almodóvar
hefur alltaf verið í andstöðu við póli-
tíska rétthugsun en haft leyfi til
þess, bæði þar sem hann er hommi
og hann fjallar alltaf um efnið af ást-
úð og viðkvæmni.
Húðin sem ég klæðist er, eins og
allar myndir Almodóvars, litrík og
flott römmuð. Litaleikir hans eru að-
all leikstjórans, kreisí efniviður og
flottur leikur. Þessi saga er á vissan
hátt um nútíma doktor Franken-
stein. Hann býr í sinni lúxusvillu,
húsi hryllingsins. Þar gerir hann til-
raunir á mannskepnunni og skapar
skrímslið sitt í friði frá augum ann-
arra. Hann hefur þjáðst og því munu
allir í kringum hann þjást. En í
höndum Almodóvars verður sagan
slungin ást og tilfinninganæmi. Eng-
inn annar en þessi leikstjóri gæti
sett svo skrítnar vangaveltur saman
við þriller þannig að það gengi upp.
Samt er á stundum einsog umfjöll-
unarefnið passi ekki inní þröngan
stakk þrillersins og því nær hún ekki
að gefa þennan extra neista þótt um
vel heppnaða mynd sé að ræða.
Sambíó
The Skin I live in bbbmn
Leikstjóri Pedro Almodóvar.
Leikarar:Antonio Banderas, Blanca Sua-
rez, Elena Anaya og Marisa Paredes.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Skrímslið Doktor Frankenstein sem nefnist Doktor Robert Ledgard (Ant-
onio Banderas) og fórnarlamb hans Vera (Elena Anaya).
Úr skrítnum hugarheimi Almodóvars
Meðlimir nokkurra hljómsveita sem hófu
feril sinn undir lok áttunda áratugarins munu
koma saman í Molanum og SPOT í Kópavogi
á laugardaginn, 22. október, og rifja upp
gamla tíma. Má þar nefna meðlimi hljóm-
sveita á borð við Fræbbblana, Q4U, Tappa
tíkarrass og Taugadeildina. Slík kvöld hafa
verið haldin árlega um nokkurt skeið, í fyrstu
leikin lög eftir aðrar hljómsveitir en í fyrra
fengu íslensk lög að fljóta með þegar fjölgaði
í hópnum. Í ár fær yngri kynslóðin að vera
með, að því er fram kemur í tilkynningu,
tvennir hljómleikar haldnir og þrettán hljóm-
sveitir sem koma fram. Tónleikarnir á Mol-
anum hefjast kl. 14 og á SPOT kl. 22. Á Punk
2011 koma fram Buxnaskjónar, Búdrýgindi,
FiveBellies, Fræbbblarnir, KaBear, Mann-
dráp af gáleysi, Morðingjarnir, Pollock-
bræður, Pungsig, Q4U, Snillingarnir, Tauga-
deildin og Videósílin.
Gamlir og góðir pönktímar
rifjaðir upp á Punk 2011
Safnpakki hljómsveitarinnar Quarashi,
Anthology, verður gefinn út í dag á vefnum
Tónlist.is en kemur síðar í hljómplötuversl-
anir. Þeir sem kaupa pakkan á vefnum fá í
kaupbæti tvö lög sem ekki hafa verið gefin út
áður með hljómsveitinni, þ.e. „Shady Lives“
sem var gert með Opee árið 2003 og „An Ab-
ductee“ sem var gert fyrir plötuna Jinx en
rataði ekki á hana. Safnpakkinn mun geyma
margvíslegt efni frá Quarashi, að því er fram
kemur í tilkynningu en þar segir að pakkinn
sé hugsaður fyrir þá sem vilji eignast öll vin-
sælustu lög sveitarinnar sem og þá sem vilji
fá meira. Í pakkanum eru tveir geisladiskar
og einn mynddiskur.
Morgunblaðið/Ernir
Safnpakki Quarashi, Antho-
logy, gefinn út á Tónlist.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kjarr nefnist nýútkomin hljómplata tónlistar-
mannsins Kjartans Ólafssonar sem er jafn-
framt fyrsta sólóplatan hans. Gripurinn var
tekinn upp í Hljóðrita í Hafnarfirði og á heim-
ilum Kjartans í Reykjavík og Glasgow á und-
anförnum þremur árum rétt rúmlega. Á plöt-
unni nýtur Kjartan stuðnings félaga sinna úr
hljómsveitinni Leaves, Arnars Guðjónssonar
söngvara Leaves sem leikur á bassa og Nóa
Steins Einarssonar trommuleikara, en Kjart-
an þekkja menn einnig úr hljómsveitinni Am-
pop. Auk þeirra koma við sögu á plötunni
Baldvin Ringsted sem leikur á rafmagnsgítar,
Kristjón Daðason á trompet og Ragnar Fjöln-
isson á harmónikku en Kjartan leikur á fjölda
hljóðfæra, þ.e. píanó, kassagítar, hljóðgervla,
hljóðsmala, þeremín og hristur.
Ekki sáttur við fyrstu útkomu
Blaðamaður ræddi við Kjartan í liðinni viku
en hann var þá staddur heima hjá sér í Glas-
gow, Skotlandi.
-Kjarr, það er væntanlega vísun í Kjartan?
„Það er vísun í mitt nafn og það er nátt-
úrlega vísun í náttúruna líka. Eins og þú
kannski veist þá er ég í Leaves, hef verið að
spila í henni frá árinu 2009 og Leaves var með
mér á plötunni, altso Nói og Arnar. Þannig að
þetta er líka svolítil vísun í mannskapinn sem
var að gera þessa músík.“
-Og á kjarri eru lauf …
„Á kjarri eru nefnilega lauf, já,“ segir Kjart-
an og hlær. Hann segir lagasmíðarnar teygja
sig í raun lengra aftur í tímann en þrjú ár.
Hann hafi byrjað að taka lögin upp fyrir um
fjórum árum og hafi þá verið kominn með
bróðurpartinn af þeim, búinn að mixa ein sex
eða sjö lög en áttað sig þá á því að hann þyrfti
að taka mestallt efnið upp aftur. Kjartan segist
hafa verið að gera hlutina of mikið sjálfur, tek-
ið upp með lélegum hljóðnemum m.a. og
hljómurinn hafi ekki verið nógu góður í fyrstu.
Því hafi upptökuferlið orðið fulllangt en þó
lærdómsríkt. „Það greip mig audiophilia,“ seg-
ir Kjartan og hlær (blaðamaður veltir þýðing-
unni á audiophiliu fyrir sér í huganum, hljóm-
girnd, hljómburðargirnd…?).
Fortíðarþráin umlykjandi
-Þá kemur uppáhaldsspurning tónlistar-
manna: Hvernig plata er þetta?
„Þetta er svona „dreamy“ poppplata, ég
myndi segja að nostalgía væri umlykjandi á
henni,“ svarar Kjartan. „Mér finnst vera
ákveðinn rauður þráður í þessu öllu saman.
Einver sagði „bragðmikið“ og svolítið „psyc-
hadelic touch“. Ég reyni voða mikið að laða
fram einhver sterk hughrif með hljóðum.“
-Til hvaða fortíðar ertu haldinn þrá?
„Einkum þeirrar fortíðar sem ég hef í raun-
inni bjagaða og nostalgíska hugmynd um. Þá
meina ég að lagasmíðarnar eru snertar jafnvel
af gamalli dægurtónlist, altso fyrir rokkbylt-
inguna. Svo eru líka áberandi tilvísanir í bítla-
popp.“
-Hvernig er að hlusta á sjálfan sig syngja,
nú ertu aðalsöngvarinn á plötunni sem er nýtt
fyrir þér?
„Það venst,“ svarar Kjartan og hlær. „Ég er
rosa mikið að gera „vocal“ veggi, viðlögin eru
eiginlega alltaf þrí- eða fjórradda,“ segir hann.
Hann hlaði veggina með eigin rödd.
Kjarr Kjartan F. Ólafsson, sá sem sést vinstra megin, hefur gert það gott með Ampop og Leaves en sendir nú frá sér fyrstu sólóplötuna.
„Það greip mig audiophilia“
Kjarr nefnist fyrsta sólóplata Kjartans Ólafssonar úr Ampop og Leaves
Þrjú lauf eru á Kjarri Draumkennd plata með vísanir í bítlapopp
Fallegt Umslag plötunnar Kjarr hannaði
listamaðurinn Ólafur Breiðfjörð.