Morgunblaðið - 22.10.2011, Side 28

Morgunblaðið - 22.10.2011, Side 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2011 FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nú þegar Muammar Gaddafi er fall- inn fá Líbíumenn loksins tækifæri til að byggja upp lýðræðislegt og rétt- látt stjórnkerfi eftir 42 ára einræði og kúgun. Mikil óvissa er þó um framhaldið og ljóst er að nýju vald- hafarnir eiga mjög erfitt verk fyrir höndum þótt hindranirnar séu ekki óyfirstíganlegar. Þótt Gaddafi hafi flúið höfuðborg- ina fyrir tveimur mánuðum óttuðust nýju valdhafarnir, leiðtogar líbíska þjóðarráðsins, að einræðisherrann fyrrverandi gæti notað illa fenginn auð sinn til að ráða erlenda málaliða og fjármagna langvinnan skæru- hernað í von um að komast aftur til valda. Dauði Gaddafis minnkar mjög líkurnar á slíkum skæruhernaði bandamanna hans og markar því tímamót í baráttu þjóðarráðsins. Sá hængur er hins vegar á að and- staðan við Gaddafi er talið vera það eina sem hefur sameinað andstæð- inga hans. Óttast er meðal annars að blóðug valdabarátta blossi upp milli fylkinganna sem börðust gegn Gaddafi. Uppreisnarliðinu hefur verið skipt í þrjár meginfylkingar: þjóðarráðsmenn frá austurhluta landsins sem hófu uppreisnina í Benghazi í febrúar; uppreisnarsveit- ir frá borginni Misrata sem báru hit- ann og þungann af hernaðinum; og uppreisnarmenn frá vesturhluta landsins sem eru taldir hafa ráðið úrslitum um fall einræðisstjórnar- innar í ágúst þegar Gaddafi flúði frá Trípólí. „Uppgjör óhjákvæmilegt“ Fréttaskýrendi The Guardian segir að uppreisnarsveitirnar, eink- um hóparnir frá Misrata, hafi notað hvert tækifæri sem gafst til að sanka að sér vopnum þegar þær sigruðu hersveitir einræðisherrans fyrrver- andi. Hóparnir hafi lagt hald á skrið- dreka og stórskotavopn í öllum vígj- um sem þeir lögðu undir sig. „Ég tel engar líkur á því að ekki komi til valdabaráttu,“ hefur The Guardian eftir Rosemary Hollis, prófessor í Mið-Austurlandafræðum við City University í London. „Upp- gjör er óhjákvæmilegt.“ Abdel Bari Atwan, fréttaskýrandi The Guardian, segir að margir upp- reisnarmannanna, sem börðust gegn Gaddafi, séu úr röðum íslamista, m.a. menn sem voru áður í hreyfingu sem tengdist hryðjuverkanetinu al- Qaeda. Hópar íslamista hafi komist yfir vopn úr birgðum Gaddafis og geti stofnað öryggi landsins í hættu. Íslamistarnir vilja að stofnað verði ríki sem grundvallist á ísl- ömskum sjaríalögum. Í líbíska þjóð- arráðinu eru einnig menn, sem vilja koma á lýðræði að vestrænni fyrir- mynd, en ekki er vitað hversu öflug- ar þessar fylkingar eru í ráðinu. Hættan ýkt? Ekki er heldur vitað hver fær það hlutverk að fara fyrir bráðabirgða- stjórn þjóðarráðsins og sameina landið. Mahmoud Jibril, forsætis- Erfitt verkefni en ekki ómögulegt Reuters Fögnuður Líbíumenn fagna falli Gaddafis eftir föstudagsbænir á torgi í Trípólí í gær. Ráðgert hafði verið að grafa lík Gaddafis í gær en því var frestað vegna deilu í bráðabirgðastjórn Líbíu um hvað gera ætti við líkið.  Bráðabirgðastjórnin í Líbíu fær nú tækifæri til að koma á lýðræði og tryggja þjóðareiningu en mörg ljón eru enn í veginum  Hætta talin á blóðugri valdabaráttu milli fylkinga í uppreisnarliðinu Röðin komin að Assad? » Líklegt er að fall Gaddafis hafi orðið til þess að hrollur hafi farið um einræðisherrana í Sýrlandi og Jemen sem hafa beitt hersveitum til að reyna að brjóta uppreisnarmenn á bak aftur. Gaddafi er þriðji ein- valdurinn sem hefur fallið frá því að „arabíska vorið“ hófst en sá eini sem var drepinn. » Sýrlenskir uppreisnarmenn sögðu að fall Gaddafis hefði örvað þá til dáða og spáðu því að forseti Sýrlands, Bashar al- Assad, yrði næsti einræðis- herrann sem hrökklaðist frá völdum. Stjórnmálamenn á Spáni fögnuðu í gær yfirlýsingu aðskilnaðarhreyf- ingar Baska, ETA, um að hún hefði hætt vopnaðri baráttu sinni fyrir sjálfstæðu ríki. Þrír fulltrúar ETA lýstu þessu yf- ir á myndbandsupptöku sem birt var í fyrradag. Leiðtogar spænskra stjórnmálaflokka og dagblöð fögn- uðu loforðinu en gagnrýndu aðskiln- aðarhreyfinguna fyrir að hafa ekki lofað að afhenda vopn sín eða leysa hana upp. „Í gær fengu Spánverjar lang- þráðustu frétt í sögu lýðræðisríkis okkar: tilkynningu um að hryðju- verkastarfseminni væri lokið,“ sagði talsmaður spænsku ríkisstjórnar- innar, Jose Blanco. „Þessari hryðju- verkastarfsemi er lokið, en þjáning fórnarlambanna og fjölskyldna þeirra heldur áfram.“ Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, lýsti yfir- lýsingu ETA sem sigri fyrir „lýðræð- ið, lögin og skynsemina“. „Þetta er mikilvægt skref, en Spánverjar fá ekki fulla sálarró fyrr en ETA verður algerlega leyst upp,“ sagði Mariano Rajoy, leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins, Þjóðarflokksins (PP) sem talið er að komist til valda í þingkosningum 20. nóvember. Baðst ekki afsökunar á blóðsúthellingunum Vopnuð barátta ETA hefur kostað 829 manns lífið frá því að hún hófst árið 1959. Spænsk dagblöð gagn- rýndu hreyfinguna fyrir að biðjast ekki afsökunar á blóðsúthellingun- um. Hreyfingin harmaði hins vegar mannfall í eigin liði. „Grimmd bar- áttunnar hefur kostað marga félaga okkar lífið,“ sagði í yfirlýsingunni. „Margir aðrir þjást enn í fangelsi eða í útlegð.“ Reuters Blóðugri baráttu lokið Forystumenn baskneskra þjóðernissinna fagna yfirlýsingu ETA á blaðamannafundi í San Sebastian í gær. „Hryðjuverka- starfsemi lokið“  Yfirlýsingu ETA fagnað á Spáni Gullsmiðadagurinn laugardaginn 22. október Kíktu til gullsmiðsins þíns. Hann tekur vel á móti þér. Komdu með uppáhaldsskartgripinn þinn og láttu hreinsa hann þér að kostnaðarlausu. Verið velkomin Hafnarfjörður Fríða, Strandgötu 43 Gullsmiðjan, Lækjargötu 34c Sign gullsmíðaverkstæði, við smábátahöfnina Kópavogur Carat, Smáralind Reykjanesbær Georg V. Hannah, Hafnargötu 49 Gull og hönnun, Njarðvíkurbraut 9 Reykjavík Anna María Design, Skólavörðustíg 3 Aurum ehf, Bankastræti 4 Gull og Silfur, á miðjum Laugavegi Gull og silfursmiðjan Erna, Skipholti 3 Gullkistan, Frakkastíg 10 Gullkúnst Helgu, Laugavegi 11 GÞ Skartgripir og úr, Bankastræti 12 Meba, Kringlunni Orr gullsmiðir, Bankastræti 11 Ófeigur, gullsmiðja og listmunahús, Skólavörðustíg 5 Tímadjásn, skartgripaverslun, Grímsbæ Leifur Kaldal gullsmiður www.gullsmidir.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.