Morgunblaðið - 22.10.2011, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2011
✝ Jón Ólafssonfæddist í Ólafs-
firði 25. desember
1925. Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Hornbrekku
12. október 2011.
Foreldrar hans
voru Ólafur Guð-
mundssson sjómað-
ur, f. 30. maí 1891,
d. 1. mars 1977, og
kona hans Sóley
Stefánsdóttir, f. 8. maí 1897, d.
8. jan. 1973. Systkini hans eru:
Stefán, f. 8. okt. 1920, d. 29. feb.
2004, Stefanía, f. 23. ág. 1922,
d. 9. feb. 1923, Guðmundur, f.
18. des. 1923, Sigurrós Þórleif,
f. 11. júlí 1929, d. 6. júní 1939,
Aðalsteinn Sæmundur, f. 2. júní
1932, Sveinn Helgi, f. 2. júní
1932, d. 9. nóv. 1934, og Kristín,
f. 5. júlí 1935. Þá ólst upp á
skeið hjá fiskverkun Sæunnar í
Ólafsfirði. Árið 1950 keyptu
bræðurnir húsið Tjörn í Ólafs-
firði og þar bjó hann ásamt
Kristínu systur sinni fram á síð-
asta ár. Óhætt er að segja að
Jón hafi alla tíð borið einstaka
virðingu fyrir þessu húsi, enda
er það enn í dag eitt glæsileg-
asta húsið í bænum. Síðustu ár-
unum eyddi hann í að mála og
lagfæra húsið og fannst honum
aldrei nóg að gert. Jón tók mik-
inn þátt í starfsemi Leikfélags
Ólafsfjarðar og lék þar í fjölda
leikrita. Hann var góður leikari
og sýndi oft snilldartakta á fjöl-
unum. Margir Ólafsfirðingar
minnast hans með þakklæti fyr-
ir túlkanir hans í hinum ýmsu
verkum, eins og t.d. Þrem
skálkum, Ólympíuhlauparanum
og Tobaco Road, svo einhver
séu nefnd.
Útför Jóns fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag, 22.
október 2011, og hefst athöfnin
kl. 14.
heimilinu myndlist-
arkonan Sigurrós
Þórleif Stef-
ánsdóttir, f. 30.
nóv. 1950.
Jón ólst upp í
foreldrahúsum á
Ólafsfirði og stund-
aði þar nám, og
einnig lauk hann
námi frá héraðs-
skólanum í Reyk-
holti í Borgarfirði.
Jón stundaði margvísleg störf
um ævina. Hann var árum sam-
an til sjós, bæði á fiski- og
millilandaskipum. Þá vann
hann í mörg ár við versl-
unarstörf bæði í Reykjavík og
heima í Ólafsfirði. Hann var
deildarstjóri í Kaupfélagi Ólafs-
fjarðar um árabil og allt til þess
tíma að kaupfélaginu var lokað.
Þá vann hann um nokkurra ára
Nú þegar sumarið hefur kvatt,
og fyrsta haustlægðin að ganga
yfir með hríðaréljum norðan-
lands, kvaddi Jón frændi minn
eftir skamma sjúkdómslegu á
Hornbrekku. Margs er að minn-
ast, allra góðu daganna sem við
áttum saman. Hann var oft á sín-
um yngri árum á Vatnsenda.
Nonni og Bára Sæmundsdóttir
frænka okkar voru á svipuðum
aldri og brölluðu margt saman.
Alltaf var nóg að gera, reka og
sækja kýrnar, stússast í kringum
ærnar vor og haust og ekki síst að
sækja hestana. Ungur fór Nonni
að stunda sjóinn og var þá fyrst á
litlum trillum með Þorsteini Þor-
steinssyni á Geir litla og fleiri bát-
um. Á þessum árum fóru menn
suður á land strax eftir nýár á
vertíð og fór Nonni nokkrum
sinnum þangað. Síðar meir fór
hann á flutningaskipið Dísarfell
eldra og kunni hann því starfi vel.
Oft minntist hann þess tíma með
ánægju og þar eignaðist hann
góða félaga sem hann var síðar í
sambandi við. Nonni var mikið
snyrtimenni og lét ekki þau verk
bíða, ef eitthvað þurfti að lagfæra
eins og viðhald á húsinu Tjörn,
þar sem hann bjó. Til að svo
mætti verða komu þau þar einnig
að verki systkini hans Kristín,
Sæmundur og Halldór bróður-
sonur hans.
Húsið lítur nánast út eins og
nýtt þó að rúm sjötíu ár séu síðan
það var reist, sannkölluð bæjar-
prýði, enda fengu hús og eigendur
viðurkenningu fyrir nokkrum ár-
um vegna góðs viðhalds og snyrti-
legrar umgengni.
Um miðja síðustu öld var Leik-
félag Ólafsfjarðar stofnað og var
Jón kosinn fyrsti formaður þess.
Hann hafði mikinn áhuga á leik-
starfsemi og öllu sem viðkom
henni. Áður en Leikfélagið var
stofnað voru leikrit sett á svið
öðru hvoru, þó að húsnæðisskort-
ur háði starfseminni mikið, og var
Nonni þar fremstur í flokki. Eftir
að félagsheimilið Tjarnarborg var
byggt stórbætti það aðstöðu
áhugafólksins við leiksýningar.
Allt var þetta sjálfboðavinna og
reyndi hver að leggja sig fram svo
að sýningar gætu tekist sem best.
Þegar Nonni tók eitthvað að sér
þá var það framkvæmt af miklum
áhuga og nánast ekkert annað
komst að meðan á því stóð. Það
var ekki alltaf auðvelt að útbúa
leikskrár og aðgöngumiða. Hann
útbjó stundum aðgöngumiða og
notaði stimpilpúða þannig að
hann skar þá út í gólfdúk og
stimplaði á pappír. Hann lærði
hlutverk sín á þann hátt að hann
gekk um gólf og þuldi hlutverkið
upphátt. Eftir að farið var að sýna
í Tjarnarborg tók hann þátt í
mörgum sýningum og var jafnvel
farið með suður og sýnt í Iðnó. Til
dæmis Tobacco Road sem fékk
góða dóma í blöðum. Síðastliðinn
vetur voru fimmtíu ár frá stofnun
Leikfélagsins og þá voru settir á
svið hlutar úr gömlum sýningum.
Jón var þar heiðursgestur á frum-
sýningunni og var þakklátur fyrir
það að geta verið þar þó að heils-
an væri ekki upp á það besta.
Jón hélt heimili á Tjörn með
Kristínu systur sinni. Stefán
bróðir þeirra bjó einnig á Tjörn.
Eftir að hann og bræður þeirra
Guðmundur og Sæmundur urðu
ekkjumenn nutu þeir ómældrar
aðstoðar Stínu. Hjá þeim systk-
inum var oft glatt á hjalla, en
einnig var tekist á um þjóðfélags-
málin.
Blessuð sé minning hans.
Sveinbjörn Sigurðsson
frá Vatnsenda.
Ég sit við stofugluggann á
efstu hæðinni á Tjörn. Það er
stjörnubjart kvöld, drifhvít fjöll
og tunglskin. Þetta er eins og
leiksvið og Nonni frændi er að
kveðja. Hann hefði eflaust verið
mér sammála að þetta væri feg-
ursta sviðið. Fjörðurinn okkar í
sinni fegurstu mynd. Þegar ég lít
til baka þá finnst mér það forrétt-
indi að hafa alist upp á Tjörn frá
fimm ára aldri í þessu stóra fjöl-
skylduhúsi. Mundi og fjölskylda á
neðstu hæð, amma, afi, Stína,
Nonni og Sæmi á miðhæð og
pabbi, mamma og ég á efstu hæð.
Það var oft glatt á hjalla, mikið
spilað og margt brallað.
Eftir að ég flutti suður og eign-
aðist mína fjölskyldu komum við
öll sumur og mörg jól í heimsókn
og fengu dætur mínar mikla
væntumþykju frá öllu skyldfólk-
inu og var Nonni frændi stór þátt-
ur í því. Hann var mikill æringi og
léttur í lund og þegar þeir bræður
hann og Sæmi náðu sér á strik gat
maður búist við ýmsum skemmti-
legum uppákomum.
Nonni var leikari af guðs náð.
Ég sagði oft við hann: Þú hefðir
átt að fara í leiklistarskóla. Hann
lék í ófáum leikritum í Ólafsfirði
og meðal annars sýndi hann
snilldartakta í Tobacco Road sem
leikfélag Ólafsfjarðar sýndi í
Iðnó, enda fékk hann frábæra
dóma í blöðunum og þá fylltist
maður miklu stolti af frænda sín-
um. Ég gæti nefnt mörg leikrit
þar sem hann er mér ógleyman-
legur úr gamla samkomuhúsinu
þegar ég var krakki.
Nonni var árum saman í milli-
landasiglingum á Dísarfellinu.
Hann hafði mjög gaman af að
segja frá mörgu sem skeði í þeim
ferðum og fór hann þá á flug í
skemmtilegri frásögn. Þau ár sem
Nonni var á Dísarfellinu fór ég
oftast og náði í hann um borð og
stelpunum mínum þótti ekki leið-
inlegt að fá hann í heimsókn. Allt-
af kom hann færandi hendi og
stelpurnar mínar muna vel
finnska konfektið, sem var
kannski ekki alveg fyrir börn.
Eitt sinn kom hann að nóttu til í
land og vissi að bílskúrsdyrnar
voru ekki alltaf læstar heima hjá
okkur. Ég vaknaði við að þær
voru opnaðar og hélt að innbrots-
þjófur væri kominn. Hann lædd-
ist upp stigann, opnaði svefnher-
bergisdyrnar, kíkti inn og sagði:
Sóley, ertu vakandi? Mér létti
mjög þegar ég sá að þetta var
hann.
Nonni var mikill snyrtipinni.
Hann vildi hafa fínt í kringum sig
og er Tjörn talandi dæmi um það.
Alltaf verið að mála og lagfæra og
þar kom Daddi frændi sterkur inn
hin síðari ár og keyptum við
vinnulyftu til að létta málningar-
vinnuna á húsinu.
Ég vil þakka öllu því frábæra
starfsfólki á Hornbrekku sem
studdi hann síðasta spölinn. Hann
mat það mikils.
Þakka þér fyrir að hafa verið
góður frændi.
Sóley Stefánsdóttir.
Að leiðarlokum koma margar
minningar upp í hugann og þegar
við minnumst Nonna frænda þá
munum við að það var alltaf jafn
gaman að fá hann til okkar í
Fögrubrekkuna þegar hann kom
að norðan og líka þegar hann kom
af Dísarfellinu. Eftir að hann
byrjaði þar var hann eins og jóla-
sveinninn, kom færandi hendi
m.a. með skinku, lifrarkæfu og að
ógleymdu namminu í háu kössun-
um með víninu, sykrinum og
súkkulaðinu.
Nonni frændi var einstaklega
góður frændi sem gaukaði alltaf
einhverju að fjölskyldumeðlimum
þegar heimsóknum í fjörðinn
lauk. Honum fannst svo gaman að
fá líf í risið á Ólafsveginum þegar
hersingin úr Kópavoginum
mætti. Húsið okkar Tjörn var
hans líf og yndi. Hann var alltaf
með pensil í hendi, hangandi í
stiga að mála eða eitthvað að
dytta að. Stundum reyndi hann að
láta okkur gera eitthvert gagn
eins og að henda í hann „drusl-
unni“ og ef maður hafði áhuga þá
borgaði hann tíkall á hvern fífil
sem maður tíndi í garðinum því þá
vildi hann alls ekki sjá á blettin-
um. Garðurinn er alltaf eins og
lystigarður og sá hann um að slá
grasið og voru boltar ekki sér-
staklega vinsælir sem reyndist
fótboltafólkinu í fjölskyldunni
mjög erfitt. Stundum var þó stol-
ist út með boltann þegar við viss-
um að Nonni væri hvergi nærri.
En eftir því sem árin liðu var þó
baráttan töpuð þegar drengirnir
bættust í hópinn því Guðmundur,
Sigurjón og Viljar höfðu frænda
alveg í hægri vasanum og horfði
hann í gegnum fingur sér með
boltaförin.
Nonni var einstaklega barn-
góður og sá maður hann ósjaldan
veltast um stofugólfið með krökk-
unum og selnum Kobba. Hann
var stríðnispúki af guðsnáð, enda
með viðurnefnið Nonni stríðnis-
púki, og ekki leiddist honum þeg-
ar hann hitti á veika bletti hjá
okkur. Hann var frábær leikari
og naut sín á sviðinu og hefði án
efa unnið glæsta sigra á því sviði
ef hann hefði lagt leiklistina fyrir
sig. Við systurnar nutum góðs af
þessu þegar hann las fyrir okkur
og sagði sögur á svo eftirminni-
legan hátt.
Við kveðjum ástkæran frænda
sem alltaf hefur átt svo stóran
hlut í hjarta okkar. Það verður án
efa skrýtið að koma á Tjörn og að
þar taki ekki á móti okkur
skemmtilegi frændinn sem átti
engan sinn líka.
Hvíl í friði, elsku Nonni stríðn-
ispúki.
Sigrún og Sunna.
Hann Nonni var frábær
frændi. Hann var stríðinn og
mjög fyndinn.
Alltaf þegar ég vaknaði í Ólafs-
firði þegar það hafði snjóað var
hann úti að moka snjóinn burt af
planinu.
Hann var ekkert voðalega
ánægður með að ég spilaði fót-
bolta á grasinu en hann leyfði
mér það samt.
Ég á eftir að sakna þín elsku
Nonni og það verður tómlegt að
koma á Tjörn þegar þú verður
ekki þar.
Þinn
Guðmundur.
Nonni var indæll maður. Hann
grínaðist mikið og var alltaf
hress. Hann var mjög glaðlyndur
og fyndinn. Hann stríddi okkur
mikið og honum fannst það bara
fyndið og okkur líka. Þegar við
vorum litlar fór hann alltaf með
okkur út á tjörn að gefa öndunum
brauð. Þegar við komum til hans
þá gaf hann okkur alltaf súkku-
laði og þegar við fórum frá Ólafs-
firði gaf hann okkur 1000-kall.
Nonni var mjög barngóður og
fannst gaman að leika við krakka.
Hann var besti frændi sem við
höfum átt og við munum alltaf
muna eftir honum.
Ljóð um Nonna.
Nonni var góður kall,
gerði með okkur drullumall.
Hann bjó á Ólafsfirði,
en það var þess virði.
Alltaf var hann léttur í lund,
og fór stundum í sund.
Bestu kveðjur.
Þínar frænkur,
Iðunn og Telma.
Mikið var skemmtilegt að hafa
Nonna frænda í lífi okkar systra.
Þegar við minnumst hans nú þá
er aðeins hægt að brosa því
Nonni kom okkur alltaf til að
hlæja og hrekkti okkur eins og
honum var einum lagið. Stríðn-
ispúkinn í okkur systrum er
sennilega fenginn frá Nonna og
hann gerði svo margt okkur til
skemmtunar. Hann elti okkur
upp stigann á Tjörn þangað til við
komumst ekki lengra upp stigann
vegna hláturs. Setti fjólubláu kló-
settrúlluhettuna hennar Stínu á
hausinn á sér og grínaðist. Grínið
stóð í mörg ár þar á eftir. Hann
leyfði okkur að leika við Kobba og
sagði okkur söguna um hvernig
hann komst í þeirra hendur en
alltaf var farið varlega að Kobba.
Svo má ekki gleyma sykurmola-
átinu en þegar hann settist niður
og fékk sér kaffi þá voru okkur
alltaf boðnir nokkrir dropar í
bolla til þess eins að setja molana
Jón Ólafsson
Þjónusta allan sólarhringinn
Íslenskar kistur og krossar
Hagstætt verð
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
✝
Yndislegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, tengdasonur og afi,
FRANKLÍN FRIÐLEIFSSON,
Nónhæð 1,
Garðabæ,
varð bráðkvaddur á heimili sínu fimmtu-
daginn 20. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Heiðbjört Harðardóttir,
Sólveig Franklínsdóttir, Ernir Kr. Snorrason,
Valgerður Franklínsdóttir, Andri Már Ingólfsson,
Halla Ágústsdóttir,
Franklín Ernir, Alexander Snær og Viktor Máni.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓN ÆGIR NORÐFJÖRÐ
GUÐMUNDSSON,
andaðist þriðjudaginn 18. október.
Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 28. október kl. 15.00.
María Þóra Benediktsdóttir,
Gísli Páll Jónsson,
Ágúst Norðfjörð Jónsson, María Ágústsdóttir,
Gróa Norðfjörð Jónsdóttir,
Sunneva Sif Ingimarsdóttir,
Salvör Norðfjörð Ágústsdóttir.
✝
Okkar ástkæra
AÐALHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR
sérkennari
lést á Landspítala Landakoti fimmtudaginn
20. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Pétur Hauksson, Sylvía Ingibergsdóttir,
Þórður Hauksson, Kristjana Fenger,
Magnús Hauksson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Gerður Sif Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar og amma,
HELENA ÁSA MARÍA ÁSGRÍMSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garða-
bæ mánudaginn 3. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 26. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktar- og líknarfélög.
Hafsteinn Ágústsson, Logi Helgason,
Kerry María Ágústsson, Helena Fawn Ágústsson,
Rachel Kim Ágústsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sambýlis-
maður, bróðir, afi og langafi,
MAGNÚS GUÐMUNDSSON
fyrrum vegaverkstjóri
frá Drangsnesi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánu-
daginn 17. október, verður jarðsunginn frá
Drangsneskapellu laugardaginn 29. október kl. 14.00.
Valgerður G. Magnúsdóttir, Ásbjörn Magnússon,
Guðmundur B. Magnússon, Guðrún Guðjónsdóttir,
Sigríður B. Magnúsdóttir, Arinbjörn Bernharðsson,
Ester Friðþjófsdóttir,
Sigurgeir H. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN INGVARSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 17. október.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
27. október kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Hjartaheill.
Sigríður Inga Svavarsdóttir, Steingrímur Guðjónsson,
Halldór Svavarsson, Jósefína V. Antonsdóttir,
Garðar Flygenring,
ömmubörn og langömmubörn.