Birtingur - 01.12.1958, Qupperneq 8
Þú hefur ekki kosið að mennta þig í skóla. Hyggur þú ekki hollt fyrir
rithöfunda að sitja á skólabekk?
Ég get varla sagt, að ég hafi verið í barnaskóla, ef miðað er við
fyrirkomulag í kaupstöðum.Það var sem sé farkennsla í minni sveit
og lögboðinni fræðsiu troðið í krakkana á helmingi skemmri tíma en
i þéttbýli. Foreldrar mínir höfðu engin tök á að styrkja mig til náms
þegar eftir fermingu, haustið 1932. Þremur árum síðar mundi ég að
vísu hafa átt kost á að njóta einhverrar skólakennslu hér í Reykja-
vík, ef ég hefði getað hugsað mér að fara að liggja upp á vanda-
lausum fjölskyldumanni. Ég ákvað að reyna heldur að mennta mig
sjálfur smám saman, hef verið að þuma við það fram að þessu og
lýk því víst seint eða aldrei. Hvort ég telji hollt fyrir rithöfunda að
sitja á skólabekk? Ég er ekki enn orðinn svo belgdur og innanfeitur,
að ég finni köllun hjá mér til að útbýta heilræðum handa rithöfund-
um. Islenzkt þjóðlíf hefur gerbreytzt, sem betur fer, nú er næg at-
vinna og mörgum sinnum auðveldara urn alla útvegi en fyrir aldar-
fjórðungi. Ef ég væri fimmtán ára í dag, mundi ég einsetja mér að
ljúka stúdentsprófi. Á hinn bóginn vorkenni ég öngvum manni, og
sízt rithöfundi, að afla sér nokkurrar menntunar án þess að hafa
sveittan kennaraskara yfir sér, enda þótt sú aðferð kunni að reynast
seinleg og tímafrek. Það er að minnsta kosti algert sjálfskaparvíti að
vera eins og álfur út úr hól, þegar aðeins þarf að læra að lesa tungu-
mál einhverrar stórþjóðar til að geta notfært sér næstum því ótak-
markaðan bókakost um öll hugsanleg efni.
Einhverntíma fórstu til Bandaríkjanna, trúi ég?
Já, ég var einn vetur í New York á styrjaldarárunum og sótti þar
meðal annars fyrirlestra um bókmenntir, sem mundu ugglaust hafa
haft meiri áhrif á mig en raun varð á, ef ég hefði ekki verið orðinn
hálfþrítugur. Mér þótti samt mjög fróðlegt að hlusta á Manuel Kom-
roff rithöfund, sem ýmsir munu kannast við, og Dorothy Brewster
prófessor, sem hefur skrifað talsvert um nútímaskáldsögur. Mér þótti
einnig fengur að kynnast þarna ágætu fólki, til dæmis mörgum aust-
urlandabúum, gáfuðum og frjálslyndum námsmönnum, auk þess sem
stórborgarlífið var mér nýlunda.
Og pólitíkin — ekki megum við gleyma henni! Hefur hún haft mikil
áhrif á rithöfundarferil þinn?
Það er nú líkast til, enda hef ég ekki átt því láni að fagna að búa á
ópólitískri plánetu. Hversvegna ég hallaðist að sósíalisma? Ja, sumir
halda því fram að lífsviðhorf manna mótist að verulegu leyti á barns-
aldri. Ég var sæmilega að mér í Nýja testamentinu og kunni fjall-
6 Birtingur