Birtingur - 01.12.1958, Qupperneq 9
ræðuna utanbókar þegar ég var drengur. Ég hafði mikinn áhuga á
íslandssögu og mannkynssögu, eins og ég minntist á áðan. Ég las
einnig aftur og aftur Þyrna og Málleysingja Þorsteins Erlingssonar.
Mér þykir trúlegt að viðhorf mitt til lífsins væri öðruvísi, ef ég hefði
alizt upp við peningadýrkun, glæpasögur og hasarblöð. Það má bæta
því við, að kreppan var strangur kennari. Ég sannfærðist um það
ungur, á ósköp alþýðlegan hátt, að enginn þyrfti að þola fátækt, ef
auðæfi þessarar jarðar væru nýtt skynsamlega. Síðan hafa runnið
svo margar stoðir undir þessa sannfæringu mína, að hún mun ekki
haggast héðan í frá, — eða var nokkuð verið að spara í síðari heims-
styrjöld, og ber kannski vígbúnaðaræðið vitni um þröngan efnahag,
litla landkosti á þessari jörð? Nei, það er satt, ég er ekki eins bjart-
sýnn og forðum. Mér finnst að mannkynið hafi átt eitthvað skárra
skilið eftir ógnir styrjaldarinnar en þrotlausan hatursáróður og kapp-
hlaup um framleiðslu gereyðingarvopna, eða harmleiki á borð við þá,
sem gerzt hafa í Kóreu, Indókína, Alsír, Ungverjalandi og á Kýpur.
Hvernig getur hrifningin af ofboðslega dýrum gervitunglum austurs
og vesturs verið sársaukalaus meðan börn svelta? Ég er ekki gæddur
neinni spádómsgáfu og veit því ekki hvort þetta hnattkorn okkar
verður innan skamms gert óbyggilegt, en mér heyrist samanlagður
boðskapur leiðtoga mannkynsins hljóða svo: Vörumst endurskoðun og
endurmat eins og djöfulinn sjálfan! lærum ekki af reynslunni! höld-
um áfram að hata hverjir aðra og ramba á barmi glötunar! Þrátt
fyrir þennan boðskap er ég í hópi þeirra fáráðlinga, sem leyfa sér að
vona í kyrrþey, að lífið muni enn reynast sterkara en dauðinn. Til
dæmis er ekki loku fyrir það skotið að flughröð tækniþróun geri það
öldungis óhjákvæmilegt að vísindamenn taki æ meiri þátt í skipan
heimsmála.
Eigum við að tala svolítið um frjálsræði andans?
Er það ekki óþarft? Eru ekki þeir landar okkar búnir að taka að sér
að vernda frjálsræði andans, sem unnu því svona rétt í meðallagi
fyrir skemmstu og tömdu sér dálítið hæpinn vopnaburð, gott ef hann
minnti ekki stundum á McCarthy sáluga? Ætli við megum ekki eiga
von á auglýsingu frá þeim í næsta Lögbirtingablaði, að þeir hafi
einkarétt á því að vernda frjálsræði andans? Auglýstu ekki sumir
þeirra virðulegar hugmyndir sínar um þetta frjálsræði, þegar þeir
voru að stofna hér PEN-deild í fyrra? Auk þess er þér fullkunnugt,
að ég mæli ekki bót neinni skerðingu á andlegu frjálsræði, hvort sem
slíkur ófögnuður kemur frá stjórnarvöldum eða þröngsýnum og
áleitnum klíkum, sem tala hátt um lýðræði og eiga það jafnvel til að
kenna sig við listir. Hvað ég segi um rithöfunda eystra og Boris
Birtingur 7