Birtingur - 01.12.1958, Síða 19

Birtingur - 01.12.1958, Síða 19
arnar eru einungis fjölbreytileg tilbrigði við hið máttuga stef: höfuð- skallann, sem allsstaðar er afhjúpaður í miskunnarlausri nekt sinni, undarlegri og fallegri lögun. Þær eru eins og veikur gulur litur við hlið sterks blás litar. Eða reisuleg bygging á víðavangi í nágrenni mela og fjalla. Þótt það kunni, ef til vill, að hljóma sem öfugmæli, þá er jötnin- um stundum styrkur að nálægð hins grannholda og hlédræga. Það er athyglisverð staðreynd, að sumir menn, sem kunna að meta plastíska formheild, er líkist að einhverju leyti hlutum úr umhverfinu, geta alls ekki sætt sig við hreinræktaða „abstraktmynd". Þeir ættu að staldra við um stund. Á sýningu Sigurjóns verður semsé augljóst, að grunnform portrettmyndar og fígúrumyndar getur verið nákvæmlega eins og grunnform abstraktmyndar. Munurinn er aðeins sá, að þegar listamaður velur sér abstrakttjáningarform, setur hann ekki nef, augu eða skegghár á kúluna til að draga hana nær fyrirmyndinni, heldur bætir hann við annarri kúlu eða annarri sporöskju eða afbrigði af henni. Og þar fram eftir götununr. Ég hef einhversstaðar látið liggja að því, að þessi myndhöggvari gæti ekki sagt skilið við hin þekkjarrlegu form nema list hans biði við það varanlegan lrnekki. Á sýningunni má finna myndir senr styðja þessa skoðun. En þar eru líka önnur og nýrri listaverk, sem kollvarpa henni jafnskjótt og búið er að punta hana og stilla henni upp á pall til sýnis. Ég hirði ekki um að nefna mörg dæmi til skýringar þess- um orðum en læt nægja að minnast á myndir, sem snerta sjálfan nrig dýpst. Krían, senr leggur undir sig loftin eins og eldflaug, og Finngálknið, er sópar jörðina sýknt og heilagt, eru á sinn hátt jafn sjálfstæð listaverk og rnargar portrettmyndanna. Og það sem meira er: Þær benda eindregið til einhverra framtíðarhugmynda, sem við skynjum ekki enn nema að mjög takmörkuðu leyti. Ég vona að engum komi í hug, að ég sé að tala um nöfnin og það, sem felst að baki þeirra: hraða lífsins, kapphlaup þjcða og einstaklinga um alla skapaða og óskapaða hluti, þægindakennd vélamennskunnar. Ég er að tala unr kúlurnar á stálvængjunum, stálvæng- ina á kvistóttu spýtunni, senr vísar til lofts og glampar í sólinni eins og sverðsblað. Ég hef ekki séð þetta fyrr. En um leið og ég kenr auga á það finn ég, að það hefur alltaf lifað innra með mér, einhversstaðar. Birtingur 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.