Birtingur - 01.12.1958, Side 21
Talað við gesti
Einar Bragi bjó til prentunar
Við sátum heima í Unuhúsi Jón úr Vör, Hannes Sigfússon, Jón óskar og
ég og spjölluðum um heima og geima. Ég hafði stungið klónni á segul-
bandinu í samband og gríp nú niður þar sem talið hefur borizt að bóka-
útgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
Bragi: Ef ég man rétt, var Menningarsjóði á sínum tíma lögð sú skylda á herðar
að gefa út verk eftir íslenzk samtímaskáld, og mun hafa verið til þess
ætlazt, að útgáfan greiddi svo rífleg ritlaun að höfundarnir ættu auð-
veldara með en ella að sinna list sinni. Endur fyrir löngu gáfu þeir út
þýðingasöfn Magnúsar Ásgeirssonar og Sölku Völku eftir Kiljan, en þar
með má heita að upptaldar séu efndirnar á þessu fagra fyrirheiti. En
svo eru þeir að gefa út bækur eftir Óskar garnla Clausen, Sigurjón gamla
Jónsson, Jakob gamla Srnára, Brynleif heitinn Tobíasson . . .
Jón úr Vör: Sama daginn gáfu þeir út þrjár bækur eftir dauða menn.
Bragi: Já, það er eitthvert átakanlegt dauðamark á flestu sem frá þeim kemur.
Það er varið hundruðum þúsunda, ef ekki milljónum króna af almannafé
árlega til útgáfustai fsemi Menningarsjóðs, og þessi fúlga kemur lifandi
íslenzkum bókmenntum nærri því að engum notum.
Jón úr Vör: Annars hef ég von um að þetta standi til bóta. Ég veit að Gils er með
ýmislegt á prjónunum sem horfir í rétta átt. Þetta er nokkuð mikið okkur
að kenna líka: við erum ekki nógu árvakrir.
Bragi: Við höfum anzi takmarkaða möguleika á að hafa nokkur áhrif á gang-
þessara mála. Menningarsjóðsútgáfunni er stjórnað af menntamálaráði,
og það er kosið pólitískri kosningu af þingmönnum sem hafa engan áhuga
á bókmenntum né öðrum listum, en vilja hafa þarna undirtillur sínar til
að gæta pólitískra hagsmuna flokkssauðanna.
JónúrVör: Margir vinstri höfundar hafa árum saman stutt Sósíalistaflokkinn og
sumir ykkar allt fram að þessu. Því heimtið þið ekki af forustumönnum
hans, að þeir setji þangað einhvern rithöfund sem við gætum síðan átt
aðgang að? Hvers vegna þarf endilega að hrúga eintómum pólitískum
ritstjórum inn í ráðið?
Bragi: Ég hef ekki orðið var við, að Sósíalistaflokkurinn hafi nokkurn áhuga
á samstarfi við íslenzka rithöfunda seinni árin. Sambandsleysi Þjóðvilj-
ans við róttæka rithöfunda verður æ meira áberandi með ári hverju. Á
síðum blaðsins er varla minnzt á þá og þeirra starf. Þar birtast í hæsta
lagi ritdómar um eina og eina bók eftir þá og alls ekki um bækur sumra
Birtingur
10