Birtingur - 01.12.1958, Side 23
hugmynd um hvar þessir höfundar hafa verið með hugann og hvers
konar skáldskap og boðskap þeir hafa viljað koma á framfæri við sitt
fólk. I þessari bók eru ljóð fyrst og fremst eftir róttæk skáld, sem jafn-
framt hafa brotið nýjar brautir í ljóðlist. Hitt er svo athugandi: hvort
lífsviðhorf okkar hafi komið eins skýrt fram í verkum okkar sjálfra og
eðlilegt mætti teljast, og ef svo er ekki, hvernig á því geti staðið.
Ilannes: Það er einmitt það. Nú finnst mér, að við lifum ákaflega örlagaríka tíma.
Og það er mjög merkilegt, næstum dularfullt, hvað þess gætir lítið í
okkar skáldskap. Og ég efast mjög um það, að þessi bók spegli okkar
vandamál á nokkurn hátt.
Jón Óskar: Hún gerir það á vissan hátt, sjáðu til. Það kemur að minnsta kosti fram
í þessu húmanistískt sjónarmið, sem greinilegt er að þessir höfundar hafa
tileinkað sér og talið einhvers virði að koma á framfæri. Og mér finnst
líka, að sjá megi á Birtingi slíkan húmanistískan blæ.
Ilannes: Já, já, því verður ekki neitað.
Jón Óskar: Og það finnst mér vera aðalatriðið núna, eins og málum er háttað í
heiminum: að prédika húmanisma.
Hannes: Já, en h'ka að berjast: ydda vopnin og berjast af töluverðri hörku gegn
mannúðarleysinu. Það er það sem skortir á, finnst mér, ef mér leyfist
að gagnrýna mig og ykkur.
Bragi: Já, það er einhvern veginn eins og enginn finni vin sinn lengur.
29. nóv. I kvöld komu þeir í heimsókn Jóhann Hjálmarsson, Ari Jósefsson og Jón
frá Páimholti. Meðan við vorum að drekka úr kaffibollunum, lét ég segul-
bandið þylja í eyru þeirra það, sem okkur fjórmenningunum hafði farið
á milli, og sagði síðan: Jæja, segið þið nú ykkar álit, ungu menn.
Ari: Mér finnst koma þarna fram anzi mikill misskilningur gagnvart Sósíal-
istaflokknum í herstöðvamálinu til dæmis, vegna þess að hann hefur nú
notað þennan tíma til annars. Með því að hanga áfram í ríkisstjórninni
og láta þá hermálin ganga svona eins og þau hafa gengið hefur flokkur-
inn getað notað þennan tíma til þess meðal annars að færa út landhelg-
ina. Og við getum alls skki stimplað hann svikara, fyrr en hann hefur
brugðizt. Ef sósíalistar náttúrlega híma út kjörtímabilið án þess að gera
gangskör að því að herinn fari, þá eru þeir svikarar, fyrr ekki.
Bragi: Það sjá allir, að möguleiki stjórnarinnar að reka burt herinn er þegar
um garð genginn, þar sem uppsagnarfrestur herstöðvasamningsins er 18
mánuðir. Það er óhugsandi, að Sósíalistaflokkurinn geti á hálfum mánuði
sem enn er til stefnu knúið fram efndir á alþingissamþykktinni, þegar
hann er búinn að sofa á málinu í hálft þriðja ár og lama alla baráttu
gegn hernáminu með deyfð sinni og undanslætti.
Ari: Jú, hann getur sett á samstarfsflokkana þá skrúfu, að ef þeir samþykki
Birtingur 21