Birtingur - 01.12.1958, Síða 28

Birtingur - 01.12.1958, Síða 28
ir nema pólitíkusarnir. Þess vegna verðum við að skóla pólitíkusana og kenna þeim að makka rétt. 1. des. Að kvöldi fullveldisdagsins leit Stefán Hörður inn. Þegar ég hafði leyft honum að heyra samræður okkar kumpána, sagði ég við hann: Hvernig lízt þér nú á, Stefán Hörður? I stað þess að svara mér beinlínis, sneri hann sér undan og hóf einræður við hljóðnemann, og þegar ég fór að for- vitnast um hverju hann hefði trúað honum fyrir, heyrði ég rödd skálds- ins segja hægt og þó hiklaust, eins og þjálfaður samkvæmisræðumaður væri að tala: Ég hef heyrt menn tala um listir. Ég man nú næstum ekki neitt af því, en ég man þó að menn voru að tala um listina fyrir listina. Mér skildist á öllu, að menn væru yfirleitt á móti listinni fyrir listina. Þetta var nú ágætt hjá Braga: hann virtist rökstyðja það mjög vandlega, að það sé eiginlega ekki til nein list fyrir listina, og mér skildist á orðum hans, að það væri ekki nauðsynlegt að éta listina. Samt yrði hún að vera fyrir lífið. Þeir minntust þarna á kartöfluna. Þá datt mér í hug málverk van Goghs: Kartöfluæturnar. Þar eru kartöflur, hafa verið þarna lengi, og það er aldrei búið að éta þær, en menn geta alltaf fengið nægju sína af þeim samt. Annars hef ég nú aldrei séð þær, nema í einhverri mynda- bók. Svo ætla ég að óska þessum ungu mönnum til hamingju með alvar- legheitin (þó að þeir hafi verið leiðinlegir), vegna þess að ég held, að þessi alvarlegheit hafi hjálpað þeim til sigurs. Það er náttúrlega ákaflega leiðinlegt að taka sjálfan sig alvarlega, en samt er það nú svo, að þessir lausbeizluðu stráklingar eru farnir að verða svolítið fastir fyrir: það er farið að taka tillit til þeirra. En aftur á móti veit ég ekki hver fjand- inn er orðinn af hinum, sem var tekið mikið tillit til fyrir svona tíu árum síðan. Þeir voru langtum gáfaðri þá og margir af þeim líklega betri skáld, en þeir hafa bara alveg týnzt. Þess vegna óska ég þessum ungu mönnum til hamingju: þeir hafa borið þetta fram til sigurs. Þeir þurfa ekkert að vera voðalega armæðufullir, þó að þeir fái ekki mikið í ritlaun, því að þeir hafa þegar unnið sigur. Og nú er bara að njóta sigursins. Húrra! Svo talaði Stefán Hörður. En áður — meðan við vorum að hlusta — hafði Jónas Svafár stigið ofurhljóðlega inn á pallinn með jólakort undir hendi og skeggbursta undir nösum. Þegar Stefán Hörður hafði gefið sitt goðsvar, spurði ég: hefur þú ekki eitthvað til málanna að leggja, Jónas? Jónas: Ja, það er þetta með listina fyrir listina eða lífið: mér finnst að listin fyrir listina sé eiginlega öll gömul list, öll gömul form, en listin fyrir lífið það sem heldur áfram, afbrigðilegt eða háð aðstæðum líðandi stund- 26 Birtingur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.