Birtingur - 01.12.1958, Side 29

Birtingur - 01.12.1958, Side 29
ar. Nú, mér hefur fundizt mjög fróðlegt að hlusta á þetta, þó að það séu alls konar fídusar, sem spila með í þessu: pólitík allt of mikil. Bragi: Þú ert nú soddan galgenfógel. Það sýnir þó, að pólitíkin sækir fast á hugi þessara ljóðamanna, sem margir telja að lifi alltaf í heimi draumsins. Þú varst nú fjandanum pólitískari á sinni tíð. Jónas: Já, maður vex upp úr þessu; sér þetta í gegn líka; það er náttúrlega nauðsynlegt: þetta er ems og að ganga í barnaskóla, maður tekur ein- hvern tíma próf. Bragi: Hvernig lízt þér á kartöflukenninguna? Jónas: Það má náttúrlega líkja listinni við kartöflur. En þá þarf bara að reita pólitíkina úr garðinum öðru hvoru, því hún er helvítis illgresi. Alda- mótagarðarnir virðast ráða öllu í íslenzku þjóðlífi ennþá. Bragi: Ég skal segja þér, að mér finnst þú pólitískastur allra íslenzkra nútíma- skálda. Jónas: Það getur vel verið. Kannski hef ég líka meint það, að þið réðuzt allt of mikið á pólitíkina! 11. des. Þeir komu hér allir aftur í kvöld, þremenningarnir sem fyrstir tóku til orða í þessu spjalli, og tók ég þá upp þráðinn þar sem frá var horfið: Hvernig lízt ykkur á stöðu ljóðlistarinnar á íslandi í dag? Hannes: Mér virðist hægt að staðsetja hana þannig í tíma og rúmi: svokallaður hefðbundinn skáldskapur er á undanhaldi og virðist munu verða nokkurn veginn samferða þeirri skáldakynslóð sem nú er að ganga fyrir ætt- ernisstapann. Að sama skapi gerist hlutur nútímaljóðsins fyrirferðar- meiri. Þetta er staðreynd sem enginn getur á móti mælt, enda væri það næsta furðulegt ef ljóðið tæki engum stakkaskiptum á tímum, þegar segja má að þáttaskil verði í mannkynssögunni frá ári til árs. Bragi: Skildi ég það rétt í viðtali, sem þú áttir við einhverja útvarpsmenn í vor, að þú teldir íslenzku nútímaljóðlistina ekki færa um að gegna því hlutverki, sem þér finnst ljóðlistin eiga að gegna nú á dögum? Hannes: Ég geri ráð fyrir því. Nú um alllangt skeið hef ég verið mjög óánægður með þróun íslenzkrar ljóðlistar. 1 viðtalinu sem þú minntist á vakti ég meðal annars athygli á því, að fimm þeirra skálda, sem telja verður frumherja íslenzks nútímaljóðs, höfðu þá ekki gefið út frumsamda ljóðabók í tæp sjö ár eða meira. Þessi skáld og seinustu bækur þeirra eru Steinn Steinarr: Tíminn og vatnið (1948), Jón úr Vör: Með örva- lausum boga (1951), Stefán Hörður Grímsson: Svartálfadans (1951), Sigfús Daðason: Ljóð (1951) og Hannes Sigfússon: Imbrudagar (1951). Á einu ári (1951) komu út fjórar ljóðabækur eftir formbyltingar- skáld: það virtist sem sé vera að draga til tíðinda í íslenzkum bókmennt- um, og ég held mér sé óhætt að fullyrða, að þessar bækur hafi borið Birtingur 27

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.