Birtingur - 01.12.1958, Qupperneq 38

Birtingur - 01.12.1958, Qupperneq 38
einsog menn hafa bent á, það er komið nýtt líkingamál, hversdagsleg orð tákna meira en áður, gömui orð fá nýjan hljóm, orðin verða sjálf meiri en áður, og þessvegna þurfa skáldin stundum ekki að stuðla. Ef til vill vantar það helzt til skilnings, að fólk átti sig á þessu nýja líkingamáli, og leyfi því að orka á sig. Jón úr Vör: Þetta er nú gott og blessað svo langt sem það nær, og hefði betur komið fram fyrr í þessu rabbi. Ég minnist þess, að eftir umræðufund stúd- enta hér á árunum, þar sem menn leiddu saman hesta sína um ljóða- gerðina, ritaði fræðimaður einn grein í tímarit; hann nefndi dadaisma, fútúrisma og súrrealisma og sagði þau tíðindi, að allar þessar stefnur væru löngu dauðar, eins mundi fara um ljóð atómskáldanna, sem höfn- uðu rími og fornuni hefðum. Ég man líka, að mér þóttu þetta litlar fréttir. Vitanlega eru allar stefnur og straumar í listum stundarfyrir- brigði. 1 fyrstu eru það aðeins upphafsmennirnir og fámennir hópar í kringum þá, sem taka við slíkum listkenningum eins og þar sé fundin endanleg lausn á þeim vandamálum, sem sérhver listamaður hlýtur að eiga við að glíma. „Stefnurnar fæðast feigar,“ sagði Guðmundur skólaskáld. Það er vissu- iega satt. En þær hafa sínu hlutverki að gegna, áður en þær fjara út og nýjar taka við. Listastefnur rísa af nauðsyn síns tíma og verða síðan tákn hans eða heimild um hann. Straumar vekja nýja strauma. Stöðnun eða afturhvarf í list er dauðinn. Þótt það kunni nú að koma á daginn, að við séum litlir módernistar ef strangt mat er á okkur lagt, erum við um margt merkisberar þessarar bókmenntastefnu, eins og hún hefur þróazt. En eins og enginn einstaklingur þessarar bókmenntastefnu er einskorðaður við hana, eins eru áhrif hennar mjög mismunandi með þjóðum. Það hefur líka komið fram í þessum umræðum. En víkjum nú að öðru. Hannes sagði áðan, að hann væri óánægður með nútímaljóðið og spurði, hvað því kynni að valda, að það hefði orðið okkur svona miklu veikara vopn í höndum en efni stóðu til. Einar Bragi fullyrðir, að vaxtarbroddur ljóðlistarinnar sé hjá yngstu kynslóðinni og spyr, hví slegið hafi þögn á okkur miðskipsmenn. Það skyldi nú aldrei vera eitthvað annað sem þögn okkar veldur en það, að formið sé okkur fjötur um fót? Ég fyrir mitt leyti hef aldrei verið í neinum vafa um þetta: í góðæri styi’jaldartímans og eftirstríðsáranna höfum við orðið hart úti og þurfum tíma til að jafna okkur. Við höfum glatað þeirri andlegu fótfestu, sem hverju skáldi er nauðsynleg til þess að geta ort. Við höfum misst trúna á þær hugsjónir og þá menn, sem við lærðum ungir að hylla. Til þess að skýra þetta ætla ég að rifja upp nokkur atriði úr sögu okk- ar. Um það leyti sem við flestir, sem hér um ræðir, vorum að vaxa úr grasi settu róttækir rithöfundar rnjög svip á bókmennta- og menningar- 36 Birtingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.