Birtingur - 01.12.1958, Page 48

Birtingur - 01.12.1958, Page 48
Þá er það fólkið: fólkið og listin, listin fyrir fólkið, málarðu, yrkirðu, skrifarðu, kompónerarðu, byggirðu fyrir fólkið? Fólkið, fólkið: þetta orð er að æra menn. I raun og veru er þetta bigg bísness: geturðu fengið nægan markað fyrir vöru þína? Svo langt hefur peningagræðgin leitt okkur. Það er aldrei spurt: skyldi fegurð búa þarna bakvið myndina, ljóðið, húsið? Enginn spyr eins og barnið sem grunar óljóst, að ef til vill séu hlutirnir ekki allir þar sem þeir eru séðir. Nei, málið er afgreitt kalt og skjótt: ég einn veit: veit hvort hægt er að hafa peninga upp úr krafsinu. Þú átt að mála fyrir fólkið. Hvaða heiðarlegur listamaður vinnur eftir prógrammi, fimm ára áætlun þar sem ekki þarf annað en fylla í eyðurnar? Menn mála af því, að þeir eru þetta fólk sem alltaf er verið að staglast á; þeir eru hlaðnir ástríðu: ég verð. Við skulum annars athuga nánar þetta með fólkið. Hvernig litist ykkur á barnaskóla, þar sem nemendurnir réðu öllu? Þeir heimtuðu af kennar- anum að fá að læra einungis það sem þá langaði til, með öðrum orðum: helzt ekki neitt, heldur bara leika sér, ólátast, brjóta og bramla. Hvernig sem á málin er litið, hlýtur alltaf að vera varhugavert fyrir listamann að hlaupa eftir smekk fólksins, hvort sem smekkur þess væri góður eða lélegur, eins þótt þetta væri inndælt fólk sem listamanninum þætti miklu vænna um en því um hann. Það er ekki af fyrirlitningu á barninu sem kennarinn krefst þess, að það læri, að það leggi eitthvað á sig, sé prútt og stillt. Hitt væri einmitt sprottið af rakinni fyrirlitningu: að láta það eiga sig eða ráða sér sjálft. List er framar öllu fyrir fólk, fyrir manninn, aðstoð við hann. Það er einmitt hugsjón nútímalistar: að koma til manns- ins, en á vegum listarinnar. Það er ekki listamanninum að kenna, að sambandið slitnaði við tilkomu iðnvæðingarinnar. Það er svo um hverja nýja hugsjón í listum sem öðrum efnum: fyrst fæðist hugmynd hjá ein- um, síðan fleirum, þar til úr verður nokkurs konar keðjusprenging, sem byltir heilum þjóðfélögum og breytir svip heillar aldar. Meðan skammt er íá veg komið eins og raun er á í dag um hina víðtæku hugsjón um manninn og samband hans við form og alla hluti sem hann mótar, að hann gefi þeim eðlilegt, en nýstárlegt snið í samræmi við tímann, sem hann lifir á — þá er oft erfitt að standa í því að brjóta hinum nývöknuðu hugsjónum braut. Ég hef haft orð á því áður og endurtek það: ég man alltaf eftir því þegar myndir Svavars komu til mín sem hressandi andblær frá heimalandinu á miðjum dimmum drungalegum vetri stórborgarinnar. Það var eins og maður hefði búið niðri í jörðinni og kæmi svo allt í einu upp á yfirborðið, andaði að sér fersku lofti og næmi liti hennar og birtu á ný. Hún var 46 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.