Birtingur - 01.12.1958, Síða 49

Birtingur - 01.12.1958, Síða 49
beisk eins og hún er við íslenzka sjávarströnd, síhvikul eins og yfir jökíi, djúp eins og litur moldarinnar. Þessi áhrif hafa varað síðan. Og enn kemur maður upp á jörðina á miðj- um erlendum vetri yfir eigin landi og nemur liti þess með hjálp Svavars. Hann ýtir við manni, og maður spyr sjálfan sig: hef ég þá alls ekki lifað? Þannig áhrif hafa sönn listaverk alltaf á mig: mér finnst sem ég hafi gleymt að lifa, og skyndilega opnast augun. Þetta er hið stórkost- lega við listina. Að vísu hefur Svavar eitthvað breytzt, en grunntónninn er sá sami: af- staðan til landsins, þetta óvanalega ferska og næma litaskyn, vönduð vinnubrögð, næstum smásmuguleg. Sumum finnst þetta kannski hljóma sem öfugmæli, því margir halda að Svavar vinni gróft. Þetta er misskiln- ingur. Ég þekki engan íslenzkan málara sem er jafn natinn og hárfínn í vinnubrögðum og Svavar. Sérstaklega auðvelt er að ganga úr skugga um það, ef menn athuga vatnslitamyndir hans gaumgæfilega. Þessi ná- kvæmni í vinnubrögðum nær jafnt til litastemmunnar sem litarefnisins, Þetta er höfuðeinkenni hans sem listamanns, ásamt gróskumikilli lita- fantasíu. Það kemur glögglega fram í fyrri myndum hans, þar sem sjaldan gætir þaulhugsaðrar myndbyggingar, en þegar aldur færist yfir hann kemur þessi hlið myndsköpunar fram sem eðlilegt andsvar við fjöri, að ég ekki segi óhemjuskap yngri ára. 1 fyrstu gætir nokkurrar áreynslu í myndunum af þessum sökum, en smátt og smátt nær Svavar tökum á þessari hlið kompósisjónarinnar, og einkum finnst mér honum vel takast í tveimur pasellmyndum (nr. 9 og 11) og Hrímfugli að sam- hæfa þessar stríðandi andstæður, hina intellektúellu og tilfinningalegu hlið myndsköpunarinnar, svo að úr verður sterk dramatísk heild. í olíu- myndunum flestum hefur þessi geómetríska kompósisjón bögglazt dá- lítið fyrir brjósti hans, en aftur á móti hefur liturinn sífellt orðið fínni og nákvæmari. Ég held þetta stafi af því, að formin sem hann valdi hafi yfirleitt verið statísk, en liturinn hjá honum er yfirleitt dínamískur. En í seinustu olíumyndunum sér maður að þetta er að breytast: liturinn er smátt og smátt að fæða af sér form við hans hæfi. Þau eru ekki lengur rólegir ferningar, heldur fljúgandi tiglar í meira og meira samræmi við flug litanna. Ég hef ekki í annan tíma séð betri sýningu hér, og ég verð að taka það fram vegna hins þráláta orðróms sem stöðugt liggur í bak manns, að ég segi það ekki vegna þess að hún er abstrakt, heldur af því að hér er um að ræða sanna list. Birtingur 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.