Birtingur - 01.12.1958, Page 53

Birtingur - 01.12.1958, Page 53
fram viðhorf barokktímans, enda aðstæðurnar svipaðar í efnahag manna. Ilér hef ég tekið mjög svo einfalt dæmi og stutt það fábrotnum rökum. Margt fleira kemur að sjálfsögðu hér til greina en ég hef nefnt. Skýr- ing þjóðfélagslegra áhrifa á fegurðarskyn okkar getur orðið talsvert flóknara þegar um listir er að ræða. Hvernig stendur á því, að fegurðar- skynjun eins tímabils býður heim natúraliskri list, þ. e. list, sem byggist á meiri eða minni spegilmynd ytri hluta, en önnur tímabil kalla á óhlut- bundna list, svo sem frumgríski tíminn, býsanzki tíminn og okkar öld? 1 þessu efni hneigist ég að nokkuð svipaðri skoðun og fram kemur hjá enska heimspekingnum Hulme, en hún er i meginatriðum á þessa leið: Meðan allt lífsviðhorf mannsins er í mjög föstum skorðum, trúarlega sem þjóðfélagslega, meðan hann finnur ekki neina þörf til þess að umbreyta veröld sinni, en unir ánægður við hana eins og hún er, finnur hann fegurð í þeirri list, sem endurspeglar umhverfi hans, mannlegar athafnir og hann sjálfan. Þesskonar tími var grísk-klassiska tímabilið og endurreisnaröldin. Þegar hinsvegar slíkur tími líður undir lok, — en upplausn hans virðist alla jafna birtast í ofhlæði, þ. e. einhverskonar barokklist, og síðar í mjög smásmugulegum natúralisma, — tekur við tímabil, þar sem allar forsendur hins gamla eru á burtu og heimsmynd mannsins er enn mjög sundurlaus. Hann er leitandi á öllum sviðum, þjóðfélagslega sem menn- ingarlega, allt þarf að prófa, ekkert er með öllu tryggt. Slíkt tímabil er deigla nýrra hugmynda og afleiðing þess, að maðurinn stendur andspænis nýjum tæknilegum möguleikum, nýjum þjóðfélagslegum viðhorfum. Á slíkum tímabilum (og okkar öld er einmitt slík) 1 e i t a r m a ð u r i n n þeirrar festu í listum, þess kerfisbundna og þess al- gjöra, sem á skortir í viðhorfi lians til veraldarinn- ar. Slíka fullnægju finnur hann til dæmis í hreinleika nútíma bygg- ingarlistar, í hreinum flatarmálverkum eða þá mjög stílfærðum, í konstrúktífri músík, í einföldum og formhreinum nytjahlutum. Raunar kemur hér ýmislegt fleira til, en þetta verður að nægja til skilgreiningar að sínni. Þessi dæmi sýna okkur, að frumhugmyndin, kenndin eða þörfin, verður til vegna menningarlegra og þjóðfélagslegra aðstæðna. Listamaðurinn tekur síðan þetta myndlausa hráefni, smíðar það í forrn, sem skírskotar til okkar og vekur fegurðarkennd vegna þess að sjálfur efniviður verksins, tilfinningin, er til staðar í okkur sjálfum, en ómótuð og aðeins skynjuð að örlitlu leyti. Einfalt dæmi: Hin hreina, konstrúktífa bygg- ingarlist nútímans er ekki f u n d i n u p p af neinum, hvorki einum manni né hópi manna. Þörfin fyrir hið klára og einfalda, hið hagkvæma, var fyrir hendi í óljósri vitund manna og knúði á. Það er hinsvegar listamaðurinn, hvort við köllum hann Corbusier eða Gropius, sem mótar Birtingur 51

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.