Birtingur - 01.12.1958, Page 86

Birtingur - 01.12.1958, Page 86
okkar að einhverjum smáborgaralegum og tilfinningavellulegum harmagráti. Fyrir minn smekk hef ég sjaldan heyrt Brahms svona fallega spilaðan eins og þessi slav- neskættaði tónlistarmaður gerði hér. Ás- geir Beinteinsson var drifinn með litlum fyrirvara í hlutverk undirleikarans og hafði sóma af því. Hann virðist eiga næmt og viðkvæmt tónlistareðli. Ólíkt var að heyra hinn hollenska fiðlu- leikara sem skaut hér upp af einhverjum ástæðum til að halda hljómleika hjá Tón- listarfélaginu. Kooper að nafni. Hann spil- aði vorsónötu Beethovens eins og hún væri kennd við haust og væri eftir ein- hvern annan en Beethoven. Þýzk frú sem lék undir gekk þannig til verks að vetr- arnæðingur lék um allt saman og ég sár- vorkenndi fiðluleikaranum. Nú heyrist enginn lengur hafa orð á því að það sé bríerí að halda uppi sin- íóníuhljómsveit. Hún er orðin sjálfsögð í þjóðlífinu. En þarf hún ekki að fá fastan stjórnanda? Mann sem vakir yfir henni að minnsta kosti veturlangt, og sér til þess að ekki losni um reipin, aginn slakni ekki. Það sem af er vetri hefur hljóm- sveitin tæplega unnið frásagnarverð af- rek en mér skilst að dr. Smetacek frá Tékkóslóvakíu sé væntanlegur á næsta ári til lengri dvalar og það eru miklar fagn- aðfréttir, — svo kvað Thor Johnson eiga að stjórna hljómleikum á næstunni — bravissímó. Gefendafélag Ríkissafnsins Ekki veit ég til þess að ríkið hafi nokk- urn tíma keypt erlend myndlistarverk þótt það hafi komið fyrir að íslenzkir náms- menn erlendis hafi vakið athygli mennta- málaráðs á sérstökum tækifærum sem gáfust stundum á árunum upp úr styrj- aldarlokum til að eignast verk eftir fræga meistara fyrir lítið fé. Einu sinni var menntamálaráði bent á koparstungumynd- ir eftir ýmsis stórmenni, þar á meðai Picasso, en þeir sem skrifuðu frá París um það voru aldrei virtir svars. Nýlega tóku nokkrir menn sig saman og stofn- uðu með sér félagsskap til að gefa mynd- listarsafninu myndir eftir samtímameist- ara og afhentu í haust tvær myndir til viðbótar við það sem áður var komið. All- ir höfundar myndanna sem þetta félag hefur gefið eru heimsfrægir en fyrir sér- stök atvik hafa myndirnar fengist hing- að. Nöfn eins og Vasarely, Herbin og Karskaya eru talin trygging fyrir ríkis- söfn um víða veröld og ríkir safnarar keppa snarplega að bjóða í myndir eftir þetta fólk. Félagsmenn um þessar mynda- gjafir eru því miður fáir og engin van- þörf að fá fleiri í þann hóp en forystu- maður þar er Gunnlaugur Þórðarson dr. juris. Mál og menning Bókaflokkur Máls og Menningar hefur stundum verið líflegri en í ár. Þó voru í honum eigulegar bækur eins og endra- nær. Þessu sinni var engin íslenzk skáld- skaparfrumsmíð, enginn debútant en Kristinn Andrésson hefur löngum sótzt eftir að ráða yfir einskonar rennibraut þar sem hann gæti stuðlað að því að hleypa nýjum siglurum af stokkum, hér tíðkast ekki að úða slík fyrirbrigði kampavíni, það er ekki Kristni að kenna. Auk þess er nú líklega óhætt að lofa mönnum að minnsta kosti að fara reynzluferðina áð- ur en kemur í þann úðann. Margt hefur Kristinn unnið til þurftar bókmenntum 84 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.