Húsfreyjan - 01.04.1960, Side 7

Húsfreyjan - 01.04.1960, Side 7
Horft um öxl Eftir JÓNINNU SIGURÐARDÓTTUR (Erindi, flutt á 50 ára afmæli Kvenfélagasambands Þingeyinga árið 1955). FLESTUM, sem komnir eru á efri ár, mun finnast, er þeir líta aftur til liðins tíma, að 50 ár séu aðeins skammur tími. Það sanna þau orð, sem okkur falla svo oft af munni: ,,Mér finnst svo skammt síðan þetta eða hitt gerðist, og þó eru það orðin 50 ár.“ Öðru máli gegnir, þegar við í æsku eða á bezta skeiði ævinnar horfum fram á leið. Þá finnst okkur 50 ár fram- undan vera langur tími og mikil og marg- þætt störf munum við geta leyst af hendi á svo löngum tíma — mörgu góðu og nytsömu hrundið í framkvæmd, okkur sjálfum og öðrum til blessunar. f dag eruð þið, heiðruðu félagskonur, saman komnar hér til að minnast stofn- unar Sambands þingeyskra kvenfélaga fyrir 50 árum, og hverju þetta félaga- samband hefur áorkað á þessu tímabili. Kg mun ekki rekja þá sögu, en hún er merkileg og allkunn og augljós glæsileg- ur árangur af störfum félaganna og Sam- bandsins og þó enn meiri sá árangur, sem ekki blasir eins við augum — sjálft menn- ingargildið fyrir hvern starfandi einstak- ling og sýslufélagið. Mér verður hugsað til aðdraganda þess, að Samband þingeyskra kvenfélaga var stofnað. Veturna 1903—1905 (að báðum með- töldum) ferðaðist ég um sveitir Suður- Þingeyjarsýslu og hafði matreiðslunám- skeið fyrir konur, aðallega húsmæður. Ég Jóninna Sigurðardóttir oft að liði síðar í lífinu, þegar mest liggur við. „Enginn kenndi mér eins og þú, hið eilífa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir,“ segir Matthías. — Hvaða menntun teljið þér að henti konum að jafnaði bezt og álítið þér æski- legt að breyta að einhverju leyti þeirri menntun, sem íslenzkum konum er helzt tiltæk? — Ég held, að það sé öllum stúlkum gott að ljúka venjulegu gagnfræðanámi, og ánægjulegt, hve margar verða stúdent- ar. Að öðru leyti endurtek ég það, sem ég sagði áðan, að allar dyr eiga að standa stúlkum opnar eftir því, sem hæfileikar leyfa og hugur stendur til. Fyrir húsmæðrafræðslu sýnist mér vera allvel séð; ég held ég geri engar sérstakar tillögur. ,,Húsfreyjan“ þakkar forsetafrúnni greið og góð svör og óskar henni og heim- ili hennar allra heilla í framtíðinni. S. Th. HÚSFREYJAN 7

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.