Húsfreyjan - 01.04.1960, Side 15

Húsfreyjan - 01.04.1960, Side 15
Fru Kristín Jósafatsdóttir F. 15. apríl 1875. - D. 7. febrúar 1960. ÞESSI fáu orð, sem ég sendi „Húsfreyj- unni“, eftir beiðni ritstjórans, verða eng- in tæmandi eftirmæli eftir Kristínu sál. Hennar hefur verið minnzt í blöðum, vel og maklega, svo að þar verður ekki um bætt. Þetta verða aðeins fáar myndir, sem ég bregð upp, eftir-þeirri kynningu, sem ég hafði af þessari góðu konu og hennar merka heimili. Kristín var fædd að Gröf í Víðidal í Húnavatnssýslu. Hún fékk gott uppeldi og meiri menntun en þá almennt tíðkað- ist. Gekk í Kvennaskólann á Blönduósi, auk heimafræðslu. Einnig fór hún til Dan- merkur, og dvaldi þar í eitt ár. Árið 1909 fór hún að Blikastöðum til Magnúsar Þorlákssonar, og giftist honum árið eftir, 1910. Kristín varð fyrir mikilli sorg fyrstu árin sín á Blikastöðum að missa 2 börn sín, aleiguna. Á þetta hefur sjaldan verið minnzt, aðeins um það get- ið, enda hafa orð um það enga þýðingu. En sem betur fór, komst Kristín í gegn- um það, án þess að bíða tjón á sálu sinni. Það var heldur ekki tómlegt í kringum hana: Tvær litlar dætur Magnúsar af fyrra hjónabandi, Sigurbjörg og Helga, þær, sem alltaf tileinkuðu sér hana sem sína einu móður og reyndust henni alla tíð sannar og góðar dætur. Og maður hennar og heimilið með sín ótöldu verk- efni. Eins og flestum er kunnugt, keypti Magnús Blikastaði í Mosfellssveit, litla jörð og hýsta eftir því, eins og tíðkaðist víðast í sveitum landsins. Hann breytti henni í höfuðból, 20 árum áður en nokkr- ar stórvirkar vélar komu til landsins, þær vélar, sem nú gera bændum kleift að bylta og rækta, svo að um munar. Magnús varð því að gera allt með hand- aflinu, hestinum og plógnum. Þetta kom mikið við heimilið inn á við. Sífellt mannahald, árið um kring. Oftast 10 karl- menn fullorðnir, fyrir utan unglinga. Þess- ir menn unnu að jarðarbótum mikinn Kristín Jósafatsdóttir hluta af árinu, jafnvel í skammdeginu, ef tíð var góð. Á Blikastöðum ólust upp 3 drengir auk systranna. Þangað var komið börnum um skemmri eða lengri tíma. Þar voru skóla- börn, sem gengu í Brúarlandsskólann. Minnimáttarfólki og aumingjum var kom- ið þangað. Öllu þessu fólki var Kristín eins og góð móðir, hlý, einlæg og sann- gjörn. Hún stýrði með sinni mjúku hendi og hæga fasi þannig, að öllum leið vel í návist hennar. Jafnvel skólabörnin, sem voru bara stuttan tíma, minntust ávallt veru sinnar á Blikastöðum, og nefndu nafn húsmóðurinnar með sérstökum blæ. Kristin var samt föst fyrir, og ekki hygg ég, að auðvelt hafi verið að koma henni af sinni skoðun, eða því, sem hún taldi sannast og réttast. HÚSFREYJAN 15

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.