Húsfreyjan - 01.04.1960, Side 26
Vé hluti hveitisins tekinn frá, afgangn-
um af hveitinu sáldrað í skál; klíði, sykri
og salti blandað saman við. Gerið mulið
saman við. Mjólkin velgd, smjörlikið
brætt í mjólkinni. Hrært saman við mjöl-
ið í skálinni og deigið slegið vel með sleif.
Hreinsað vel niður um skálarbarmana,
hveitiafganginum stráð yfir, deigið látið
lyfta sér. Deigið hnoðað, skipt í tvennt,
sett í smurð mót. Látið lyfta sér í 20 mín-
útur. Smurð með vatni. Brauðin bökuð
nál. 45 mínútur.
Flengingarbollur, 30—40
% kg hveiti
100 g sykur
100 g smjörlíki
% tsk. kardemomm-
ur
Fylltu hornin uppvafin og tilbúin i ofninn.
stk.
3 dl mjólk
1 egg
60 g ger
Búið til venjulegt deig, smjörlíkið mulið
saman við hveitið. Látið lyfta sér í skál.
Hnoðað á ný, mótaðar bollur, sem eru
látnar lyfta sér á plötunni. Séu rúsínur
settar í deigið, er þeim hnoðað saman við
það, eftir að deigið hefur lyft sér.
Ur þessu deigi er einnig hægt að búa
til kringlu, sem fylla má með rúsínum,
súkkati eða eplum.
Bollurnar er svo gott að fylla með
eggjakremi, rjóma eða aldinmauki. Ofan
á þær er borin sykur- eða súkkulaðibráð.
Er bezt að gera það, meðan þær eru
volgar.
Rúsínubollur
250 g hveiti
100 g rúsínur
85 g smjörlíki
35 g pressuger
1 egg
4 msk. sykur
Rifið appelsínuhýði
Nál. 1 dl sódavatn
Hveiti og rúsínum blandað saman,
smjörlíkið mulið saman við, gerið hrært
út í ylvolgu vatni. Öllu hrært saman.
Hnoðað vel. Mótaðar bollur, sem settar
eru á smurða plötu. Látnar lyfta sér, þar
til þær hafa stækkað allt að því helming.
Smurðar með eggi, sykri stráð yfir. Bak-
aðar við 225° í 8—10 mínútur.
Fyllt horn
Vi kg hveiti 75 g smjörlíki
30 g pressuger % tsk. salt
2% dl mjólk
Venjulegt deig. Smjörlíkið brætt í
mjólkinni. Deigið látið lyfta sér, hnoðað,
skipt í 4 hluta, hver hluti flattur út í
kringlótta köku, sem skipt er með kleinu-
járni í 8 þríhyrninga, sem smurðir eru
með sinnepi. Hornin má svo fylla t. d. með
litlum pylsum, reyktu svínakjöti eða
hangikjöti, einnig með rifnum, sterkum
osti. Hornin vafin upp frá breiðari end-
anum og látin með mjórri endann niður
á vel smurða plötu. Hornin látin lyfta sér,
smurð með eggi. Bökuð við 200° nál. 15
mínútur.
Einnig má fylla hornin með aldinmauki
eða öðru sætu; er þá saltið minnkað í
uppskriftinni og 30 g af sykri bætt í hana.
26
HÚSFREYJAN