Húsfreyjan - 01.10.1962, Side 5
Jensína Halldórsdúttir.
Þátfur heimilis og
uppeldis í lífi voru
(Erindi flutt á ársfundi
Samb. sunnl. kvenna)
í erindi þessu mun ég aðallega ræða um
heimilið og uppeldið og áhrif þeirra á líf
vort. I fáum og fátæklegum orðum verður
það málefni vart rætt til hlítar.
Leiðum hugann að einstökum atriðum
andlegra og veraldlegra áhrifa heimilis og
uppeldis á líf vort. Fljótlega komumst við
að raun um, að það eru einmitt þessir aðilar,
sem hafa átt drýgstan þátt í sköpun mann-
gerðar okkar og manndáðar.
Margt er rætt og ritað um heimilin og
uppeldið og þau vandamál, sem heimili og
foreldrar eiga við að stríða í sambandi við
uppeldismálin. Margar ádeilur og úrbóta-
ræður í þessu efni virðast stundum vera
harla ómaklegar. Að vísu dylst fáum, að
uppeldi er þolinmæðisverk, sem krefst
fórna, stöðugra bæna og hjartahlýju. Upp-
skeran eða gjaldið er gleði eða sorg, allt
eftir því, hvernig uppeldið tekst. „Heimilin
eru á hraðri leið niður á við. Trúmálin eru
það hluttakandi í elsku guðs og fyrirgefandi
náð.
„Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn”.
Það er fæðingarhátíð þessa barns, sem vér
hefjum í kvöld; það er þessa sonar, sem vér
minnumst í kvöld. Vér minnumst hans í
byrjun lægingar hans, þar sem hann liggur
sem barn í jötunni fátæklegu. Vér minnumst
þess, að hann tók á sig þjóns mynd og gekk
undir mannleg kjör eingöngu vor vegna, af
elsku til vor, af þrá til að hjálpa oss, bjarga
oss. Og vinir mínir, vér eigum honum óend-
anlega mikið að þakka öll. — Yður hefði
ekki gengið eins vel að bera sjúkdómsþraut-
ir yðar, þér hefðuð ekki megnað að gera
það með eins mikilli rósemi, ef þér hefðuð
aldrei verið um hann frædd, aldrei þekkt dýrð-
ardæmi hans, aldrei sannfærst um, að bölið
geti borið blessun í sér, aldrei trúað á upp-
risu og eilíft líf. En nú lifið þér daglega und-
ir áhrifum alls þessa, og birtan af Betlehems-
völlum nær alla leið inn í spítalann yðar.
„Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn'. Með
bljúgum hjörtum og auðmjúkum hug skul-
um vér taka enn öllum minningum og öll-
um þeim boðskap, sem við þessa blessuðu
hátíð er tengdur. Vér skulum vekja barnið
í oss til að fagna honum. Látum það falla
tilbiðjandi fram við jötuna, þar sem undra-
ráðgjafinn, guðhetjan, eilífðarfaðirinn, frið-
arhöfðinginn hvílir. Þá fáum vér gleðileg
jól. Amen.
Húsfreyjan
5