Húsfreyjan - 01.10.1962, Síða 18

Húsfreyjan - 01.10.1962, Síða 18
sinnis sagt þér. Hvaða ráðum beitti kerling- aruglan til þess að krækja í þig enn einu sinni? Hún hefur þó varla farið að bein- brjóta sig af eintómri kergju. - Nei, ekki gerði hún það, enda held ég ekki, að það hefði haft nein áhrif á mig, sagði Gróa. En blessaður drengurinn fékk einhverja slæmsku í bakið, og hann verður að liggja marga mánuði í gibsi. Hann skrif- aði mér og bað mig svo innilega að vera hjá þeim í vetur, að ég gat ekki staðizt það. Nú heimtar hann, að ég sitji hjá honum öllum stundum, þegar ég er búin með verk- in, og það eins þó að mamma hans sé heima. — Þér er þó, vænti ég, ekki bannað að stytta drengnum stundir með sögum og ljóð- um? — Nei, frúin skiptir sér ekkert af því núna, en ég er samt hrædd um, að hún kunni ekki við þetta einkennilega dálæti, sem drengurinn hefur á mér, enda er mér það sjálfri óskiljanlegt, segir Gróa. — En ég skil það aftur á móti mæta vel, Gróa mín, sagði ég. Hún sat hjá mér góðá stund, og við spjölluðum hitt og þetta saman, en við minntumst ekki meira á hennar hagi. Mér hlýnaði um hjartarætur, þegar Gróa gekk að rúmum sofandi barnanna minna og strauk þeim ástúðlega um vanga. Eg verð að reyna að koma bráðlega aftur, þegar þau eru vakandi, sagði hún. Eg fylgdi Gróu til dyranna og horfði á eftir henni út í dimma og hráslagalega haustnóttina. Mér var venju fremur þungt í skapi, og ég óskaði þess af heilum hug, að þeir dagar kæmu, sem veittu Gróu og henn- ar líkum fulla uppreisn. Þær húsmæður, sem ekki kunnu að meta mannkosti og fórnarlund, áttu sannarlega skilið að verða að gera verkin sín sjálfar. Ef til vill hef ég hitt á óskastund. Ragnheiður Jónsdóttir. óLsnítfasda(ja/i Laugardaginn 11. ágúst síðastl. lögðum við af stað austur að Laugarvatni, 6 konur úr Grindavík. Við fórum í áætlunarbílinn á Stapanum, en fyrir í bílnum voru þá all- margar konur víðsvegar að af Suðurnesj- um. Allar vorum við í sömu erindagjörð- um, að fara austur að Laugarvatni til nokk- urra daga orlofsdvalar í Húsmæðraskóla Suðurlands að Laugarvatni. Klukkan rúm- lega fimm síðdegis vorum við komnar á leiðarenda. Viðtökurnar voru hinar ágæt- ustu, húsakynnin fáguð og vistleg. Ekki þarf að orðlengja það, að þarna var hver dagurinn öðrum ánægjulegri. Ymis- legt var gert til skemmtunar. Einkum voru kvöldvökurnar svokölluðu okkur öllum bæði til gleði og gagns. Þar voru flutt er- indi og jafnframt sýndar skuggamyndir. — Veðrið var okkur líka sérlega hliðhollt, enda var ekki sparað að nota daginn sem bezt til útivistar. Þennan fagra fjalladpl skoðuðum við rækilega og hinn auðuga og fagra gróður, sem þarna er. Eg vil ekki láta þetta tækifæri ónotað til þess að þakka þeim Jensínu Halldórsdóttur skólastjóra og Gerði H. Jóhannsdóttur kennara fyrir þeirra stóra hlut í því að dvölin varð okkur sérlega ánægjuleg, auk þess sem ég flyt öllum öðrum þakkir, sem að því stuðluðu að gera dvöl okkar þarna svo skemmtilega, sem raun varð á. Ber ég þakk- læti þetta fram eigi aðeins fyrir mína hönd heldur okkar allra úr Grindavík, sem þarna áttum orlofsdvöl. Heim fórum við glaðar og hressar, endur- nærðar á líkama og sál. Þessir björtu sól- skinsdagar á Laugarvatni munu jafnan verða okkur ógleymanlegir. Guðnj Stefánsdóttir, Steinaborg. 18 Húj/reyjan

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.