Húsfreyjan - 01.10.1962, Page 25
Beinfuglarnir
Fiskbeinafuglarnir hennar frú Ágústu Pét-
ursdóttur Snæland vöktu sérstaka athygli á
sýningunni í sumar, svo að „Heimilisþáttur-
inn" sneri sér beint til frúarinnar til að for-
vitnast nánar um fuglana. Hún segist hafa
verið spurð að því í sumar, hvort hún ætti
nokkra handunna smáhluti, sem hún gæti
lánað á sýninguna, og þá hafi hún dregið
fram kríurnar sínar, sem legið hafi í
gleymsku í 4 ár. Um uppruna þeirra segir
hún svo: „Eitt sinn er fjölskyldan var að
borða kinnar, vakti einn sonurinn athygli
á því, hve eitt beinið í þorskhausnum væri
fallegt". Þetta varð til þess, að hún fann
fleiri skemmtilega löguð bein, sef forvitni-
legt var að föndra við. Það þarf að sjóða
hausana, þvo beinin mjög vel úr mörgum
heitum vötnum, bursta þau með litlum
bursta og láta þau þorna vel, áður en hið
skemmtilega starf, að klippa, líma og mála,
getur hafizt. Ur þessum beinum hefur frú
Ágústa svo búið til undurfagra fugla og fiðr-
ildi, sem hún hengir upp með vír, og verð-
ur úr því hinn skemmtilegasti „órói". Ber
þetta svip einstakrar smekkvísi og listhagra
handa.
Gervisnjór
í fyrra minnti heimilisþátturinn húsfreyj-
ur á, að þær gætu notað íslenzkt lyng, eini
o. fl. til skrauts um jólin.
Oft eru seldar jólagreinar með gervisnjó,
sem glansa alla vega í jólaljósunum. Hér
birtum við fyrirsögn um hvernig búa má
til slíkan gervisnjó á einfaldan hátt heima
fyrir. Ýmsar aðferðir eru til þessa og stund-
um er blandað í hann „glimmer" til þess
að greinarnar glitri ennþá fagurlegar. En
hóflegur og snotur gljái fæst með því að
blanda saman 250 gr af salti og 1 tsk. af
gipsi. Blandið þessu saman þurru fyrst,
vætið síðan í því með vatni og hrærið
úr því þykkan graut. Klístrið því síðan á
greinarnar hér og þar. Að hálftíma liðn-
um hefur saltið kristallazt og glitrar Ijóm-
andi fagurlega í ljósi.
Húsfreyjan
25