Húsfreyjan - 01.10.1962, Page 29
í þjóðminjasafni (I & III :
Þjms. 5898, bls. 7; II :
Þjms., safn Þ. Th., 116, bls.
1). Henta þeir vel skakka-
glitsaumi, þótt einnig megi
að sjálfsögðu sauma þá
með öðrum sporum — eða
jafnvel prjóna.
Eins og áður var sagt, er
skakkaglit saumað með því
að draga ísaumsgarnið í
efnið. Þarf ísaumsefnið að
vera nokkurn veginn jafn-
þráða og svo grófgert, að
telja megi þræðina. Isaums-
garnið þarf að geta hulið
efnið alveg, en ekki má
það vera of svert. Fallegt
er, að öll spor snúi eins.
Mun vera þægilegast að
láta sporin liggja þversum
í bekkjum (sjá skýringar-
mynd), en sé gerður rammi
úr bekk (t. d. á dúkmiðju
eða utan um dúk), verða
sporin að liggja langsum í
bekknum á tvo vegu, en
þversum á tvo.
E. E. G.
Húsjreyjan