Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 31
Ský ri nga rmy n d við
dagatal:
Jólapoki
(til v. ofarlega).
Jólasvcinn
(til h. litiÖ citt ofar).
á fólkinu, stafirnir o. fl. smávegis í hvítum.
Eins og sést á myndinni, eru ýmsar tákn-
myndir saumaðar á tréð. Neðst er torfkirkja
og sáluhlið (saumað í grænum, gulum og
brúnum litum, aðallega) og jólasveinn hring-
ir til tíða (saumaður blár og hvítur). Þá er
íslenzki fáninn, jólagrís (þeir sem vilja geta
sett þar lamb í staðinn), jölaköttur, ugla og
veiðimaður ofar. I miðju er svo ýmiss kon-
ar jólatrésskraut, engill, jólapoki, klukka,
kerti, o. fl. og jólasveinn sitjandi á einni
greininni. Einnig eru íslenzki fáninn og hvít-
bláinn saumaðir á tréð. Þá er 14. desember
auðkenndur, þar sem hann er afmælisdag-
ur yngsta barnsins á heimilinu.
Smálykkjur eru gerðar á milli talnanna og
smámynd t. d. jólastjarna eða jólasveinn, sem
útbúinn er með krók að aftan, er færð upp,
eftir því sem dagarnir líða.
Undir trénu stendur svo fjölskyldan og
helzt í hendur, og elzti sonurinn dregur
heimilisbílinn. Að sjálfsögðu getur hver
breytt þessu eftir vild og ástæðum. Daga-
talið er faldað með rússnesku spori í brún-
ina. Einnig má fóðra það, sauma í vél og snúa
við. Búið til hanka til að hengja það á.
Án efa munu margir sauma þetta fjör-
lega og skemmtilega dagatal, sér og öðrum
til ánægju, því að örugglega mun það vekja
hrifningu barnanna, er þau flytja merkið
upp eftir trénu, nær og nær jólastjörnunni.
Stóra systir býr til brúðu
Búa má til skemmtilega brúðu úr náttföt-
um, sem litli bróðir eða litla systir eru vax-
in upp úr. Heppilegast er, að náttfötin séu
með sokkabuxum. I höfuð og hendur má
nota hvítt léreft eða afganga. Brúðuna má
svo klæða í „uppgjafaflíkur" af litlu systkin-
unum.
Takið léreftsstykkið og brjótið það í
tvennt. Teiknið á það höfuð, 25 sm langt,
23 sm þar sem það er breiðast og 7 sm
breiðan háls. Sníðið 2 stykki eins. Teiknið
og sníðið hendur, 4 stykki (notið gamlan
vettling af barninu, ef ykkur þykir það þægi-
legra), þannig að hæfi ermum nátttreyjunn-
ar.
Teiknið augu (á stærð við tveggja krónu
pening) á blátt eða brúnt efni. Munnurinn
má vera á stærð við krónu pening og auð-
vitað rauður. Gerið örlítil munnvik, og get-
ið þið þá ráðið svip brúðunnar, haft hana
brosandi eða fýlulega, að vild. Brjótið brún-
irnar aðeins undir, um leið og þið saumið
augun og munninn á andlitið.
Saumið í saumavél eða kappmellið í hönd-
unum. Bezt er að líma eða tylla lauslega aug-
unum og munninum fyrst, til þess að auð-
velda saumaskapinn.
Látið réttuna snúa inn á báðum stykkj-
unum og saumið saman höfuðið og hend-
H ú $ freyjan
31