Húsfreyjan - 01.10.1962, Qupperneq 32
Frd scrnsku deildinni d HeimilisiOnaÖarsýningunni.
Tumi pumalingur situr ú bakinu d gœsasteggnum.
l>eir, sem liandlagnir eru, geta spreitt sig d aÖ skera
svona myndir úr tré eöa beini, lita og hengja siöan
upp til skrauts.
urnar með sterkum tvinna. Skiljið eftir op á
hálsinum og einnig á úlnliðum.
Ef náttfötin eru í tvennu lagi, nátttreyja
og buxur, þá skuluð þið sauma þessa tvo
hluta saman í mittinu.
Snúið nú höndunum og höfðinu við, þann-
ig að réttan snúi út. Troðið brúðuna út með
bómull, vatti eða stoppi úr gamalli ábreiðu
(sjá mynd). Saumið hendurnar við erm-
arnar, brjótið upp á laskann og þræðið síð-
an hendur brúðunnar við brotið allt í kring,
svo að laskinn hylji samskeytin, þegar því
er lokið. Saumið höfuðið á sama hátt við
hálsmál náttfatanna. Ljúkið nú við að troða
út brúðina og saumið síðast opið saman í
höndunum.
I hárið má nota ullargarn og þá gjarnan
sama háralit og „brúðumamma" hefur. —
Klippið hespuna sundur í þá lengd, sem
óskað er, saumið síðan hárið þannig, að
skipting myndist frá enni og aftur á hnakka.
Gætið þess að sauma yfir hvern þráð (hvert
hár). Búa má til smálokka fram á ennið úr
nokkrum lykkjum af garninu. Fléttið hárið,
teiknið nef eftir vild.
Þessi stóra brúða mun áreiðanlega verða
vinsælt leikfang hjá yngstu börnunum.
S. Kr.
32
Húsjreyjan