Húsfreyjan - 01.10.1962, Page 33
MANNELDISÞÁTTUR
Framhald af bls. 22.
Síldin hreinsuð og flökuð, öll bein hreins-
uð burt. Salti stráð á flökin og smátt klippt
dill. Vafin upp frá sporði. Síldarrúllunum
raðað þétt í lágan pott. Ediki, vatni, pipar-
kornum, salti og sykri blandað saman, hellt
yfir. Látið sjóða við hægan eld í 5 mínútur.
Síldin látin kólna í soðinu.
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn. Síld-
arrúllurnar teknar upp úr soðinu, látið síga
vel af þeim, raðað í skolað hringmót ásamt
Sild i hlaupi.
agúrkusneiðum. Matarlímið brætt í hluta af
tómatsafanum, sem síðan er hellt yfir síld-
arrúllurnar. Hvolft á fat, skreytt með ræki-
um og dill eða steinselju.
Kjöt í hlaupi
8 dl soð
Magrir kjötafgangar,
soðnir
2—3 gulrætur
1 negull, hcill
I lítill laukur
1/2 lárberjalauf
\/ tsk. timian
2—3 piparkorn, svört
Grænar baunir
10 bl. matarlím
Sjóðið kryddið í soðinu og gulræturnar,
þar til þær eru meyrar. Soðið síað og skírt
ef vill. Gulræturnar skornar í fallegar sneið-
ar og kjötið í smáa, ferkantaða bita. Hring-
mót smurt með olíu. Gulrótasneiðunum rað-
að í botninn, látnar skarast í hring, kjötið,
Kjöt i hlaupi.
grænu baunirnar og gulrótaafgangurinn lát-
inn ofan á. Soðinu, sem matarlímið hefur
verið bætt í, hellt yfir. Látið stífna. Hvolft
á fat; í miðjuna er látið kartöflu-mayon-
nessalat, sem kryddað hefur verið með söx-
uðum lauk og steinselju.
Safthlaup
7 dl saft 1 isk. vanillusykur
I dl vatn 14 bl. matarlfm
Sykur, ef vill 2 dl sjóðandi vatn
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn, leyst
upp í 2 dl af sjóðandi vatni. Ollu blandað
saman og bragðað til. Hellt í skál eða mót
og látið hlaupa. Látið dálítið af hlaupinu
storkna á diski. Saxið það og skreytið með
því og þeyttum rjóma. Vanillusósa borin
með. I þetta hlaup er hægt að setja alls kon-
ar ávexti.
Húsfreyjan
óskar lesendum sínum
Qleðilegra jóla
og farsæls komandi ars.
H ú s f r e y j a n
33