Húsfreyjan - 01.01.1965, Qupperneq 30
6. mynd. Plastskúffur eða skúffugrind-
ur geta komið í staðinn fyrir tréskúffur
og eru ódýrari, en kannske ekki eins var-
anlegar. Þær hafa fengizt t.d. í Bygginga-
vöruverzlun Kópavogs og verzluninni
Húsið á Klapparstíg. Listarnir eru fáan-
legir með þeim, og getur fólk þá sjálft
komið þeim fyrir í skápnum. Þannig má
nýta allt rúm í skápunum, svo að þægi-
legt sé að finna hvern hlut, og hafa röð
og reglu á fatnaðinum. Einnig loftar vel
um þann fatnað, sem geymdur er í skúff-
unum.
7. mynd. Ódýr skógrind.
8. mynd. Skúffulistarnir eru
festir á hliðarnar í skápnum,
þannig að málið A verður
34,5 sm eða 44,5 sm, eftir
stærðum skúfanna. Grynnstu
skúffurnar þurfa 10 sm bil á
milli listanna, en einnig fást
skúffugrindur, sem þurfa
20 eða 30 sm bil.
Myndir þessar eru af sýningu í Danmörku,
sem opin hefur verið þar í nokkur ár á
vegum S.H.R. Myndunum er m.a. ætlað
að benda fólki á, hvernig það geti breytt
skápum sem fyrir eru, þannig að hvert
horn notist sem bezt.
Ef þið ætlið að láta smíða skápa, ættuð
þið að mæla nákvæmlega það pláss sem
skáparnir eiga að taka; teiknið þá síðan
upp á millimetrapappír og áætlið hvar
hver hilla eða slá er bezt sett, miðið þá
við þá hluti, sem þið hugsið ykkur að
geyma á hverjum stað. Þannig er bezt að
átta sig á hvernig hver sentimetri notast
bezt.
Það léttir mjög dagleg störf að hafa
röð og reglu í skápum og skúffum, og
geyma ekki lengi þá hluti sem hætt er að
nota.
28
Hinzta óskin
Framhald af bls. 11
ég hef aldrei heyrt það nefnt. Ég hef lesið
það á blaðinu í Biblíunni“.
Henni fannst einhver vera að gráta.
Meðan hún beið eftir þessum lausnarorð-
um, fagnaði hún heitum og svalandi tár-
um æskunnar. Það var síðasta skynjun
hennar.
Herbergið var að hverfa í rökkurmóðu.
Einhvers staðar langt, langt að, bárust
orðin, þessi dýrmætu orð, sem hún hafði
þráð. Þau hljómuðu skært, hin síðasta
taug til lífsins.
„Hvíldu þig, Jennifer. Hvíldu í friði,
Jennifer Jane“.
S. Th. þýddi.
HÚSFREYJAN