Húsfreyjan - 01.01.1965, Page 39
úr ýmsum áttum
Frá kvenfélaginu „Tíbrá“ Höfn Hornafirði
Nú á þessu ári eru liðin 40 ár síðan nokkrar
konur hér í Hafnarkauptúni, fundu hvöt hjá sér,
að bindast félagssamtökum.
Eflaust hafa framá konur í þessu plássi, sem
þá var mjög fámennt, rætt málið sín á milli á
götum og torgum, eins og gerist og gengur, en
árangur af viðræðum þeirra varð sá, að kallaður
var saman fundur þ. 8. febrúar 1924.
A þeim fundi var tekin ákvörðun um að stofna
kvenfélag, sem við fæðingu hlaut skírnarnafnið
Tíbrá.
,,Tíbrá“ ,,Hilling“. Já konurnar sáu í hilling-
um nytsöm verkefni framundan sem kölluðu á
starfandi hugi og hendur og fórnfúsa krafta að
láta gott af sér leiða.
Fyrstu stjórn skipuðu: Form.: Ingibjörg Frið-
geirsdóttir, ritari Anna Þórhallsdóttir, gjaldkeri
Guðríður Jónsdóttir. í varastjórn Þóra Tryggva-
dóttir og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. Stofnendur
voru í byrjun 11 konur.
hugur manns. Mamma vissi enga betri skemmtun
en koma á bak Glettu sinni.
Hún hafði gaman af að kasta fram vísu við
tækifæri og set ég hér tvær vísur um Glettu.
Sorgir þéttar svífa frá,
sárum léttir kvíða,
ef á Glettu minni má
marga spretti ríða.
Þjónar sprundir þýð og Ijúf,
það má undur kalla.
Blæðir und mín, ef að þú
örend mundir falla.
Að endingu vil ég segja það, að ekkert er jafn
þakkarvert og að hafa átt trúaða móðuur, sem
hefir gefið manni það veganesti sem er guðstrú.
Eg var mjög ung er mamma kenndi mér þessa
gömlu góðu vísu og vildi láta mig breyta eftir
henni.
Víst ávalt þeim vana halt,
vinna lesa iðja,
umfram allt þó ætið skalt
elska guð og biðja.
Ég átti því láni að fagna að alast upp með
foreldrum mínum og einnig að hafa þau hjá
mér eftir að ég stofnaði mitt eigið heimili.
Mamma hafði mikið ástriki á börnum mínum og
þau söknuðu hennar mikið, er hún lézt 22. febr-
úar 1937 og var þá fullra 76 ára. Pabbi minn
lifði lengur hjá mér. Hann dó 1946 þá 80 ára.
Blessuð sé þeirra minning.
Jenný Jónsdóttir.
Á næsta fundi félagsins var tekin ákvörðun
um að veita konum í Nesjasveit heimild til þátt-
töku í félagsskapnum.
Aldrei munu það þó hafa verið nema fáar kon-
ur þaðan, sem tóku þátt í því, enda þess ekki
langt að bíða að þær stofnuðu sitt eigið félag.
Helsta sameiginlega verkefnið, sem unnið var að
á því tímabili, var að kaupa altaristöflu í Nesja-
kirkju.
Og árin liðu. Félagið verður fjölmennara og
verkefnin eru óteljandi í þessu ört vaxandi og
lítt byggða kauptúni. Það vantar svo margt:
barnaskóla, sundlaug, samkomuhús og kirkju
o.fl. o.fl.. Sjóðir hafa verið stofnaðir til styrktar
öllum þessum velferðarmálum. Einnig til kaupa
á Röntgentækjum, auk þess sem nokkuð hefur
verið lagt til líknar- og mannúðarmála og alltaf
finnum við betur og betur, hvað verkefnin eru
óþrjótandi og ofviða okkur fáum og smáum.
Nú er svo komið, að barnaskóli hefur verið
byggður, sundlaug, stórt og vandað félagsheimili
og kirkja er í smíðum og til allrar þessarar
menningarstarfsemi hefur félagið lagt sinn ríku-
lega skerf.
Nú á þessu ári, þegar félagið átti 40 ára starfs-
afmæli vildu sumar konurnar að haldið yrði upp
á afmælið með mannfagnaði. En samt varð að
ráði að sleppa því að þessu sinni. En minnast
afmælisins með þvi að stofna 10 þús. króna sjóð,
sem verja skal til kaupa á skírnarfonti í Hafnar-
kirkju.
Nú má ekki skilja þetta svo að starfsemin
hafi eingöngu verið þrotlaus barátta við fjáröfl-
un. Við höfum sannarlega átt okkar björtu
sameiginlegu skemmtistundir bæði á kvöldvök-
um félagsins og skemmtiferðum, sem hafa tengt
okkur félags- og vináttuböndum.
Nú viljum við. núverandi félagssystur í ,,Tibrá“,
senda kærar kveðjur og þakkir til allra fyrrver-
andi félagskvenna, hvar sem þær eru, og þá sér-
staklega til fyrstu stofnenda og brautryðjenda
félagsins. Sumar af þeim eru nú orpnar moldu,
en við blessum minningu þeirra.
í hillingum sjáum við framtíðina, sem við von-
um að verði björt og gæfurík, með vaxandi
starfskrafta í þégu góðra málefna.
21/11 1964
Laufey Sigursveinsdóttir.
Kvenfélag Akraness
2. grein laga Kvenfélags Akraness hljóðar svo:
„Tilgangur félagsins er, að vinna að mannúðar-
og menningarmálum í Akranes-kaupsað." Þessi
hefur tilgangur félagsins verið frá því að það var
stofnað, fyrir 39 árum. Ekki voru það sízt stofn-
endurnir og þær konur sem gengu í félagið á
fyrstu árum þess, sem unnu byggðarlaginu allt
sem þær máttu. einmitt með, eða á vegum fé-
lagsins og verður þeim seint fullþakkað, það starf,
37
HÚSFREYJAN