Vera - 01.07.1986, Side 2

Vera - 01.07.1986, Side 2
Umræöa um ofbeldi í fjölskyldum hefur verið aö opnast hér á landi undanfarin ár. Má segja að meö opnun Kvenna- athvarfsins í Reykjavík 1982 hafi hulunni verið svipt af þeirri ógn sem konum stafar af ofbeldi á heimilum sínum. Þvert ofan í fullyrðingar og trú margra um að slíkt og því- umlíkt tilheyri einungis hinum stóra heimi í kringum okkur, hefur komið í Ijós svoað ekki verður um villst, að við förum síður en svo varhluta af þeim óhugnaði sem ofbeldi í fjöl- skyldum er. En ofbeldi í fjölskyldum bitnar ekki einungis á konum heldur einnig á börnum. Af 488 konum sem leitaö hafa til kvennaathvarfsins sögðu 14,5% þeirra að ofbeldi gagnvart börnum væri ein af ástæðunum fyrir því að þær leituðu þangað. Umræða um barnaofbeldi hefur verið mjög lítil hér á landi og börn sem beitt eru ofbeldi eiga í fá hús að venda. En víst er að flestir sem hafa með börn að gera hafa orðið varir við barnaofbeldi, bæði andlegt, likamlegt svo og kynferðislega misnotkun á börnum. Komið hefur fram í könnunum í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Svíþjóð að kynferðisleg misnotkun er algengust tegund barnaofbeld- is. Ekki er vitað með vissu hversu algengt barnaofbeldi er hér á landi en því miður bendir allt til þess að það sé ekki minna en í nágrannalöndum okkar. Okkur Verukonum fannst tímabært að helga blaðið þessari umræðu ef það mætti verða til þess að einhverjir vöknuðu af þyrnirósarsvefni, því að þörf er á aö bregðast skjótt við og reyna að taka á þessum málum af fullum þunga. Við verðum að kalla alla til ábyrgðar, okkur sjálf og samfélagið meðtalið. Þeir sem verða vitni að barnaofbeldi verða að vita hvert þeir eiga að snúa sér og þau börn sem í því lenda verða að fá einhverja hjálp. Eins og kemur fram hjá einum viðmælenda Veru hefur vilji yfirvalda Reykjavíkurborgar ekki verið fyrir hendi til að koma á bakvöktum fyrir fólk í neyð þrátt fyrir ítrekaðar óskir starfsfólks félagsmálastofnunar þar um. Þó þykir sjálfsagt að hafa bakvaktir hjá hitaveitu og vatnsveitu. Þetta er aðeins lítið dæmi um hvernig málum er háttað hér og auðvitað getum við ekki unað við það lengur. Barnaofbeldi er staðreynd í þjóðfélaginu og það er tími til komin að viðurkenna það og vinna gegn því. K. Bl. VERA 3/1986 — 5. árg. Útgefendur: Kvennaframboöiö í Reykjavík og Samtök um Kvennalista. Símar: 22188, 21500, 13725 & í VERU NÚNA: 3 Lesendabréf 4—7 Enn eitt skref. . . um kosningar og kvenfrelsi 8 Svona gera þeir í Oregon 10— 11 Ofbeldi gegn börnum 11— 13 Ása tíu ára segir frá 14—15 Börn ekki hátt skrifuð Rætt viö Huldu Guömundsdóttur 16—19 Aökallandi aö skilgreina ofbeldi 20—23 Því minni kona. . . 24 Bakvaktir fyrir skolp en ekk fyrir börn Rætt viö Gunnar Sandholt 25 BRIS Kynning á sænskum samtökum. 26—29 Borgarmál 30—37 Þingmál 34—37 Konur hvaö nú Mynd á forsíðu: Sigga Lillý og Helga Ritnefnd: Guörún Ólafsdóttir Guörún Kristmundsdóttir Ragnhildur Eggertsdóttir Magdalena Schram Sigriöur Einarsdóttir Kristín Blöndal Kristín A. Árnadóttir Sólrún Gisladóttir Þemahópur: Hrefna Þórarinsdóttir Unnur Ingólfsdóttir Ásta Baldvinsdóttir Hulda Gránz Aöalbjörg Helgadóttir Bergljót Baldursdóttir Útlit: Kicki og Sigga Lillý Starfsmaöur Veru: Kicki Borhammar Auglýsingar: Hólmfriöur Árnadóttir Dreifing: Ragnhildur Eggertsdóttir Ábyrgö: Kristin Blöndal Setning og filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun: Solnaprent Ath. Greinar i Veru eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.