Vera - 01.07.1986, Side 14

Vera - 01.07.1986, Side 14
Börn ekki hátt skrifuð Hulda Guðmundsdóttir, yfirfélagsráðgjafi við geð- deildir Borgarspítalans, hef- ur margra ára reynslu af meðferð fjölskyldna þar sem börn eru beitt ofbeldi. Leitað var til Huldu til að fá svör við eftirfarandi spurningum. Hverjir misþyrma börnum sínum? Þaðerenginn ákveðinn hóp- ur eða manngerð, þó má yfir- leitt greina nokkur samkenni, t.d. er þetta fólk jafnan undir miklu andlegu álagi og oft kemur í Ijós að það hefur sjálft átt erfiða daga í bernsku. Oft skortir það sjálfstraust og er ósjálfstætt og einangrað. Yfir- leitt skortir mjög á þekkingu þess og skilning á þörfum barna á mismunandi þroska- stigi. Því hættir til að gera mjög óraunhæfar kröfur til barna og þegar þau síðan valda von- brigðum geta viðbrögðin orðið mjög harkaleg. Þar sem of- beldi gegn börnum er mjög mikið vandamál er einnig al- vanalegt að fleiri á heimilinu séu líka beittir valdi, t.d. aðfað- irinn neyti aflsmunar á móti móðurinni. Oft eru þessi heim- ili illa stödd félagslega og fjár- hagslega, en svo er þó alls ekki alltaf og raunar sýna kannanir að barnamisþyrmingar eru jafnalgengar með öllum stétt- um. Það sem hins vegar er að gerast um þessar mundir er það, að hið dulda ofbeldi í fjöl- skyldum er að koma upp á yfir- borðið og vonandi verður það til að draga úr þessu athæfi. Eru til kenningar um ástæður fyrir þvi að foreldrar eða aðrir forráðamenn beiti ofbeldi? Þetta er stór spurning. Það má leita svara við svona spurn- ingum frá ýmsum sjónarhorn- um, sögulegum, félagslegum, sálrænum og siðferöilegum. Það er ekkert einhlítt svar við þessu. Ástæður eru án efa fjöl- þættar og breytilegar eftir eðli málsins í hverju tilviki. Kannski er aðalástæða fyrir illri meðferð og jafnvel mis- þyrmingum á börnum sú, að börn hafa ekki verið og eru ekki nægilega hátt skrifuð í þjóð- félaginu. Þaðernokkuðviðtek- in skoðun að börn séu eign for- eldranna og uppeldi og atlæti þeirra sé einkamál fjölskyldu. Valdbeiting hefur löngum verið viðurkennd uppeldisaöferð. Um það eru margvíslegar > heimildir — það er ástæða til aö undirstrika að ill meðferð á börnum er alls ekki nýtt fyrir- bæri í þjóðfélagi okkar. Það eru annars einkum tvær kenn- ingar sem uppi eru. Annars vegar að þeir sem misþyrma börnum sínum séu afbrigðileg- ir einstaklingar, beinlínis geð- sjúkir eða á annan hátt and- lega miður sín. Hins vegar er sú kenning að orsakanna sé að leita í félagslegum erfðum og í umhverfinu. Ég held að hvorug þessara kenninga sé fullnægj- andi. Það er ekki mikið að marka þær tölur sem við höf- um aðgang að en hin staðfestu tilfelli einkennast mjög af því að viðkomandi fjölskyldur eru illa staddar félagslega og í beinu framhaldi af því koma mál þeirra til meðferðar hjá opinberum stofnunum. Fáir gera að því skóna aö vel menntaðir og velstæðir for- eldrar misþyrmi börnum sínum en slíkt kemur svo sannarlega fyrir. En við slíkar aðstæður eru foreldrarnir í betri aöstöðu til aö leyna staðreyndum og þeir eru kannski slyngari í því að búa til rangar skýringar þannig að engan grunar neitt. Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé gamla sagan sem fylgt hef- ur mannkyninu, sagan um húsbóndann og þrælinn. T.d. er það sjalfgæft að maður ráð- ist gegn yfirmanni sem kúgar hann og sýnir honum fyrirlitn- ingu. Hann fer frekar heim og lætur þetta bitna á konunni. Gagnvart henni hefur hann líkamlega yfirburði. Það er sfð- an ekki ólíklegt að konan láti þetta bitna á börnunum og ef við förum enn lengra þá kæmi ekki á óvart ef þau síðan þegar þau verða fullorðin fái útrás með því að ráðast á sín eigin börn. Þetta er mjög einfaldað dæmi en það er því miður raun- hæft. í hverju tilviki liggja mis- munandi orsakir að baki en ef við lítum á málið frá háum sjón- arhóli þá blasir þessi tilhneig- ing alls staðar við í samfélag- inu. Hinn sterki ræður og af- leiðingin verður oft valdbeiting í einni eða annarri mynd. Hvað um kynferðislegt of- beldi gagnvart börnum? Já, þegar rætt er um barna- misþyrmingar hafa menn oft- ast í huga beint líkamlegt of- beldi og meiðingar en til barna- misþyrminga telst raunar líka andlegt ofbeldi, vanræksla og loks ofbeldi af kynferðislegum toga. Svo vikið sé að þessu síðast nefnda afbrigði, þá hafa rann- sóknir bent til þess að um 20% barna sem verða fyrir illri með- ferð verði fyrir kynferðislegu ofbeldi eöa misnotkun. Það hefur verið skilgreint sem kyn- ferðislegt ofbeldi þegar börn eða ungmenni eru dregin inn í kynferðislegar athafnir sem þau hafa ekki skilning á. Þau samþykkja ekki að taka þátt í þessum athöfnum. Þau and- mæla því ekki og sýna ekki mótþróa sökum þess að þau þora það ekki, — skilja ekki hvað um er að vera. Athæfi af þessu tagi stríðir að sjálfsögöu gegn því velsæmi sem viður- kennt er í þjóðfélagi okkar og ekki þarf getum að því að leiða hversu skaðleg áhrif þetta hef- ur fyrir börn og framtíð þeirra. Ætlað er að um 75% slíkra til- fella séu sambönd milli föður eða stjúpföður og dóttur eöa stjúpdóttur. Venjulega eru þessir menn á aldrinum 30—50 ára en stúlkubörnin 5—16 ára. Oftast eru börnin þó u.þ.b. 8 ára. Svo virðist sem 14

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.