Vera - 01.07.1986, Síða 25

Vera - 01.07.1986, Síða 25
Kynning á samtökum um rétt barna í Svíþjóð BRIS Til þess aö gefa lesendum smá innsýn í hvernig ,,grannar“ okkar hafa tekið á ofbeldi gagnvart börnum verða stuttlega kynnt samtökin BRIS í Svíþjóð. BRIS er skammstöfun og stendur fyrir „Barnens rátt i smahállet" (Réttur barna í samfélaginu). Samtök þessi voru stofnuð árið 1971 að undangenginni mikilli umræðu í fjölmiðlum um ákveðið barnamis- þyrmingartilfelli, þar sem þriggja ára stúlka lét lífið af völdum ofbeld- is. Nágrannar höfðu um langan tíma vitað af þessu máli, heyrt og orðið vitni að ofbeldinu auk þess að sjá áverka á barninu, en enginn greip inn í og kom barninu til hjálpar! Fjölmiðlaumræðan varpaði fram spurningum — hvers vegna gerir enginn neitt? Þvi horfir fólk upp á svona nokkuð gerast án viðbragða? Þetta leiddi til stofnunar samtakanna BRIS, samtöksjálfboðaliðaóbundin pólitískum eðatrú- arlegum samtökum. Eitt af fyrstu verkefnum samtakanna var að útbúa sýningu um þemað „Barnaofbeldi í Svíþjóð'! Flestum er sýninguna sáu brá ill- þyrmilega — „getur þetta átt sér stað í Sviþjóð!" — og stuðningslist- ar samtakanna fylltust fljótt. 1972 opnuðu samtökin neyðarsíma (jourtelefon) sem þeir gátu hringt í sem þekktu til misþyrminga á börnum. Þar er fólki gefið ráð og veittar ýmsar upplýsingar auk þess sem BRIS tekur að sér að kæra tilfelli í nafni samtakanna sé þess óskað. Ástæður símhringinga eru ýmiss konar t.d. Q misþyrmingartilfelli sem fólk veit af, en treystir sér ekki til að fara með í yfirvöld og vill því að BRIS taki málið að sér, D fólk vill vita hvert það á að snúa sér með kærur og hvernig við- brögð yfirvalda séu, □ fólk vill fá ráðleggingar varðandi eigin eða annarra vandkvæði í sambandi við barnauppeldi, □ fólk vill fá upplýsingar um lagaákvæði tengdum málefnum barna t.d. varðandi skilnað eða það að börn séu tekin af foreldrum o.fl. o.fl. Starfsfólk BRIS hefur merkt breytingar í fyrirspurnum og tilkynn- ingum á þeim tíma sem liðinn er frá opnun hjálparsímans. Meira er um forsjárdeilur tengdar skilnuðum og umræður um andlega og kynferðislega misþyrmingu á börnum. Sími ætlaöur börnum Þessi símaþjónusta hefur alla tíð verið mjög mikið notuð og árið 1980 sáu samtökin ástæðu til að bæta þjónustuna með því að koma á sérstökum barnasíma (Barnens Hjálptelefon) sem var eingöngu ætlaður börnum. Þaö hafa einkum verið börn á aldrin- um 10—16 ára sem hringt hafa. Vandamál tengd skilnuðum og ýmis táningavandamál eru algengustu umræðuefnin. Mörg þess- ara barna hafa frá ofbeldisreynslu að segja, likamlegri, andlegri og kynferðislegri. BRISfærum 4000 samtöl á ári og er skipting þeirra nokkuð jöfn milli upplýsingasamtaka ýmiss konar og ráðgjafasamtaka varð- andi barnamisþyrmingar. Töluvert er um það að börn skrifi til samtakanna og mörg þeirra sjá BRIS sem sinn eina mögulega hjálparaðila. Fyrir börn sem eru hjálpar þurfi er persónulegt samband mikil- vægt. Árið 1985 gátu samtökin opnað svo kallað barnahús (Barn- ens Hus) í húsakynnum sínum í Stokkhólmi. Þettaer hugsaðsem opið hús fyrir börn í kreppu. Gerðar hafa verið tilraunir með stuön- ingshópa fyrir börn, þannig aö börn geti í sameiningu unnið úr eigin vandamálum. Viðbótarþjónusta Mikilvægt er að fram komi aö BRIS er ekkert sem á að koma í stað félagslegrar þjónustu að hálfu viðkomandi stofnana ríkis og bæjarfélaga. Samtökin eiga frekar að þjóna sem viðbótarþjón- usta og milliliður einstaklinga og opinberra aðila, en margir eru ragir við að snúa sér beint til þessara opinberu stofnana. Fólk tel- ur sig þurfa einhvern óháðan aðila sem það getur ráðfært sig við. Stór þáttur í starfi BRIS er að auka þekkingu almennings og veita upplýsingar um málefni misþyrmdra barna. Marga, og þá jafnvel fagmenn, vantar næga undirstöðuþekkingu til að geta greint ofbeldis- og vanrækslueinkenni hjá börnum. Einni af upp- hafskonum BRIS samtakanna Gunnel Linde var falið það verk- efni að útbúa kennsluefni um þennan málaflokk. Árið 1975 kom út bókin ,,Om man misstánker barnmisshandel — vad gör man?“ (Gruni mann að barni sé misþyrmt — hvað gerir maður þá?) Námsefni þetta hefur mikið verið notað og kennt af aðilum er fengið höfðu námsskeiö hjá BRIS í því hvernig bæri að standa að kennslunni. Árið 1975 kynntu samtökin áætlun umforeldrafræðslu — og ári seinna gaf Monica Boethius þáverandi formaður samtakanna út bók um þetta efni og umræður því tengdu. ,,Ge átminstone för- áldrar en hederlig chans" (Gefið þó foreldrum raunhæfi tækifæri) Það er skoðun samtakanna að ef börnum á að vegna betur í samfélaginu, verði að bæta stöðu foreldranna. BRIS sér um að koma upplýsingum til blaða, útvarps og sjón- varps, auk þess að standa fyrir umræðufundum og námsskeiðum þar sem mál þessi eru reifuð. Fjórum sinnum á ári gefa samtökin út eigið tímarit BRIS-BLADET. Árið 1977 stóðu samtökin að sýningu í Stokkhólmi (í Kulturhus- et), „Váld föder váld“ (Ofbeldi leiðir til ofbeldis). Þar var lögð sér- stök áhersla á það réttarfarslegt misrétti (ofbeldi), sem börn eru beitt. Bent var á að börn ættu sér engan talsmann í málaferlum er skiptu þau oft á tíðum sköpum, andstætt því er fullorðnum stæði til boða. Lagasetning Fljótlega eftir að samtökin tóku til starfa sáu þau fram á nauð- syn þess að fram kæmu lög er bönnuðu harkalega meðferð á börnum. Árið 1976 var dómsmálaráðuneytinu afhent tillaga frá samtökunum að lagasetningu, þarsem m.a. kom fram að; — líta bæri á líkamsrefsingar sem barnaofbeldi og banna bæri slíkt samkvæmt lögum — þetta ákvæði tók gildi 1977. (Förbud mot aga) □ Tilkynningarskylda skyldi ganga fyrir þagnarskyldu i barna- misþyrmingarmálum, (þetta er nú komið inn í löggjöfina). □ í forræðisdeilum skyldi hagur barna ganga fyrir þvi er foreldrar teldu æskilegast og að barninu bæri að hafa sinn eiginn full- trúa í réttarkerfinu. Skoðanakannanir sýna að afstaða foreldra til þess að beita líkamsrefsingum í uppeldi hafa mikið breyst á undangengnum ár- um. Samkvæmt SIFO (Gallup / Hagvangur þeirra í Svíþjóð) voru 53% fullorðinna í Svíþjóð jákvæðir gagnvart því að beita likams- refsingum sem uppeldisaðferö árið 1965. Árið 1981 hafði þessi tala farið niður í 26%. Þáttur BRIS er talinn hafa spilað hér stórt hlutverk. Samtökin hafa hlotið þann sess að verða umsagnaraðili í sam- bandi við lagasetningar er tengjast börnum, fjölskyldum og öllu því er varðar stöðu þessara aöila. Auk þess sitja aðilar frá BRIS í ýmsum þeim nefndum er skipaðar eru til að gera úttekt á mála- flokkum er tengjast verksviði samtakanna. BRIS samtökin hafa svo sannarlega skapað sér veg og virð- ingu í Svíþjóð og er ekki að efa að þau hafa bjargað mörgu barn- inu frá ómældri óhamingju! a. H. 25

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.