Vera - 01.07.1986, Page 29

Vera - 01.07.1986, Page 29
Bætt upplýsingastreymi... Tillaga Kvennaframboðsins um að endur- skoða dagskrá og fundartíma borgarstjórnar samþykkt og nefnd sett í málið. Hugmyndir Kvennaframboðsins miðaað því fyrst og fremst að bæta upplýsingastreymið frá fundunum til borgarbúa. í mars s.l., nánar tiltekið þ. 20. flutti Ingibjörg Sólrún eftirfarandi tillögu i borgarstjórn: „Borgarstjórn samþykkir að skipa nefnd 5 borgarfull- trúa, einn frá hverjum borgarstjórnarflokki, til aö endur- skoða dagskrá og fundartíma borgarstjórnarfunda. Verði við það miðað, að nefndin hafi lokið störfum og skilað tillögum til borgarstjórnar fyrir lok kjörtímabils- ins.“ Borgarstjórn samþykkti að vísa tillögunni til borg- arráðs. Þar gerðu fulltrúar meirihlutans þá breytingu á nefndarskipan, að sæti ættu þrír fulltrúar meirihluta og tveir frá minnihluta, þ.e. Kvennaframboð og Alþýðu- bandalag en hinir tveir minnihlutaflokkarnir ættu sinn hvorn áheyrnarfulltrúann. Borgarráð kaus síðan þetta fólk i nefndina: Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, Hilmar Guð- iaugsson og Ingibjörgu Rafnar frá Sjálfstfl. Magdalenu Schram, Kvennaframboði og Sigurjón Pétursson frá Alþýðubl. Þeir Sigurður E. Guðmundsson, Alþýðufl. og Kristján Benediktsson frá Framsókn eru áheyrnarfull- trúar. Ekki verður sagt um meirihlutann, að hann hafi haft hraðar hendur í þessu efni, fyrsti fundur var ekki boðaður fyrr en eftir kosningar, þ. 9. júní. Betri upplýsingar um borgarstjórn Að baki tillögu Kvennaframboðsins liggur sú hugsun að borgarmálefni skipti miklu máli og að áriðandi sé að upplýsingar um umræður og afgreiðslu borgarstjórnar komist vel til skila til borgarbúa og/eða fjölmiðla. Kvennaframboöskonur hafa likt og reyndar fleiri borg- arfulltrúar gagnrýnt fyrirkomulag fundanna, einkum röðun dagskrár. Eins og málum er háttað núna, verður ekki hjá því komist að ræða mörg ágreiningsmál undir einum og sama dagskrárlið en við það rofnar samhengi umræðnanna, sem eiga þá til að verða dálítið ankanna- 'egar. Og ekki síst eiga þær til að verða mjög óaðgengi- 'egar fyrir áheyrendur. Þetta fyrirkomulag hefur í för með sér að illmögulegt er fyrir borgarbúa að áætla hvenær ákveðin mál komast a dagskrá. Ætla má að fæð áheyrenda á pöllum borgar- stjórnarsalarins stafi síður af áhugaleysi þeirra á mál- efnum, sem vissulega snerta þá oft mjög mikið og öllu fremur af uppbyggingu dagskráa fundanna. Kvennaframboðið telur að úr þessu sé hægt að bæta, hd- með því að setja helstu ágreiningsmál á dagskrá í uPphafi fundar, en afgreiða fundargerðir að öðru leyti Sl’ðar á fundunum. báttur fjölmiöla Borgarstjórnarfundir eru haldnir á fimmtudögum og hefjast kl. 17 og standa oftast langt fram eftir kvöldinu. Fréttaritarar dagblaðanna og útvarps hafa því lítið svig- rúm til að ganga frá efni, enda er það svo að mjög tak- markað er hvaða fréttir föstudagsblöðin birta frá borgar- stjórnarfundum. Helgarblöðin eru að miklu leyti unnin fyrirfram þannig að það er ekki fyrr en á þriðjudag sem ætla má að rúm sé í blöðum. En á þriðjudegi eru fréttir frá því á fimmtudag ekki lengur nýmeti, svo oftast fer lít- ið fyrir þeim. Á fimmtudögum er engin fréttavakt hjá sjónvarpi. Kvennaframboðinu hefur því þótt ástæða til að at- huga hvort ekki mætti færa fundi borgarstjórnar framar í vikuna. Líkt og nú er háttað má næstum því segja að borgarstjórnarfundir fari fram í kyrrþey en jafnframt er það augljóst að ákvarðanir, sem snerta tæpan helming þjóðarinnar, hljóta að vera verðugt fréttaefni. Auglýsing um dagskrá Annað atriði, sem Kvennaframboðinu þykir ástæða til aö breyta, er kynning á dagskrá fundanna fyrirfram. í gildi er regla um að dagskrána beri að hengja upp á fundarstað, samkvæmt því á að hengja hana upp i Skúlafúninu. Þeir borgarbúar, sem áhuga hafa á að fylgjast með málefnum borgarinnar skyldu því gera sér ferð þangað! Þessi regla um auglýsingu er mjög gömul, líklega svo gömul að þegar hún varð til, var Reykjavík svo lítil að borgarbúar áttu leið um fundarstað bæjar- stjórnar daglega. Líklega hefur heldur ekki verið um að ræða daglegan fjölmiðil á þeim tímum. Kvennafram- boðið álítur það eðlileg réttindi borgarbúa að þeir geti hlustað á fulltrúa sína ræða málefni Reykjavíkur og séu í aðstöðu til að kynna sér fyrirfram dagskrána. Eðlilegt væri að færa regluna um auglýsingaskyldu til nútíma- horfs og mætti hugsa sér að frá því yrði skýrt í útvarpi, hvað sé á dagskrá borgarstjórnarfundar næst og blöð- unum send dagskráin fyrirfram til birtingar. Miöaö viö smábæ, ekki stórborg Almennt talað telur Kvennaframboðið að samþykktir um fundarsköp og fyrirkomulag borgarstjórnar hafi fall- ið ágætlega að bæjarmálunum á meðan Reykjavík var enn smábær en löngu sé tímabært að færa þær til nú- tímahorfs. Breytingarnar verða að taka mið af því að hér búa nú hátt í 100.000 manns á stóru svæði, hér eru starfandi fjölmiðlar sem fyrir löngu hafi tekið að sér hlut- verk gömlu götuauglýsinganna. En fyrst og fremst verð- ur fyrirkomulag þessara funda auðvitað að ganga út frá rétti borgarbúa til að fylgjast með málefnum Reykjavík- ur. Lýðræðið byggist á upplýsingum um þá kosti, sem fyrir hendi eru — án þeirra upplýsinga er tómt að tala um frjálst val umbjóðenda. Eins og fyrr kom fram hefur þegar þetta er skrifað ver- ið haldinn einn fundur í nefndinni. Þar kom fram, að nokkur einhugur virðist ríkja í borgarstjórn um að breyt- inga sé þörf en einstaka tillögur voru ekki ræddar. Gert er ráð fyrir að nefndin haldi áfram störfum í sumar en það veltur auðvitað á áhuga meirihlutans á auknu lýð- ræði, hversu skilvirk vinnubrögðin verða í þessu máli. Ms

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.