Vera - 01.07.1987, Side 6
Eins og komið hefur fram í fréttum, varð Kvennalistinn nán-
ast fyrir innrás erlendra fréttamanna hvaðanæva að úr heim-
inum eftir kosningarnar. Það var auðvitað óskaplega gaman að
komast í heimsfréttirnar en þó held ég okkur hafi þótt
ánægjulegast að fá hingað í heimsókn blaðakonu af ítalskri
Veru eins og við kölluðum það — Patriziu Giovannetti frá
kvennablaðinu Noi Donne. Noi Donne líkist Veru reyndar alls
ekki í útliti, því það er mjög glæsilegt (tímarit) í útliti, myndir í
lit og glansandi pappír! En hugmyndirnar og efnið er keimlíkt
og Patrizia var vel með á nótunum yfir því sem Kvennalista-
konur höfðu að segja henni um stefnu og hugmyndafræði. Við
hjá Veru guldum líkum líkt og buðum Patriziu í viðtal hjá
okkur:
Fyrst spurði ég hana, hvers vegna ítalir
hefðu svona mikinn áhuga á íslenska
Kvennalistanum — öll stærri blöð Ítalíu
birtu fregnir og langar greinar um úrslit
kosninganna og stöðu kvenna hérlendis.
,,Okkur finnst þetta bara spennandi.
Kvennahreyfingin á Ítalíu var mjög virk á
6. áratugnum en hefur nú orðið snúið sér
meira inn á við ef svo má segja, hug-
myndir feminista fara ekki langt út fyrir
þeirra raðir, umræðan er ekki um sam-
félagið og það sem þar þarf að breytast.
En mjög margar ítalskar konur telja
breytinga vant, þær hafa sjálfar breytt
um lífsstíl án þess að þjóðfélagið kæmi á
móts við þær."
6
*