Vera - 01.07.1987, Side 19

Vera - 01.07.1987, Side 19
TELPUR námskeiði í Kramhúsinu. Þær hafa allar sýnt leikrit í Sjónvarpinu og samið leikrit sem þær fluttu í útvarpinu. Síðast sýndu þær leik- rit hjá Kvennalistanum á Reykjanesi sem ég frétti að hefði vakið mikinn fögnuð, og þannig mætti lengi telja. En hvernig fá stelpurnar hugmyndir að leikritum: ,,Stundum eru það brandarar sem við breytum og bætum við. Stundum er það bara eitthvað sem okkur dettur í hug.“ Anna: ,,Ég samdi einu sinni leikrit um bankarán, það var af þvl að ég var að telja pen- inga.“ ,,Sestu þá niður og skrifar?“ ,,Fyrst hugsa ég hvað gæti skeð næst og svoleiðis og svo þegar ég er orðin ánægð með hug- myndirnar skrifa ég þær niður og bæti við.“ Arney: ,,í skólanum erum við með ritsmíðabækur þar sem við semjum svona sögur í og ritgerðir." Erna: „Svooft þegar maður byrjarað mótaeinhverj- ar persónur þá kemur leikritið af sjálfu sér. Eða maður finnur eitt- \ hvert nafn, t.d. Bankaránið í Stórabæ, þá dettur manni alltaf meira í hug og bætir utanum." Þið eruð búnar að sýna víða og það er beðið um ykkur hingað og þangað, eruð þið orðnar frægar? Nú hlæja stelpurnar og segjast reyndar ekki vera frægar, en þetta sé voða skemmtilegt. En eru þær ekkert feimnar við að koma fram? Nei, yfirleitt ekki, kannski svolítið stressaðar allra fyrst, en svo þegar þær eru byrjaðar hverfur það. Er ekki erfitt að læra hlutverkin? ,,Nei, nei, ekki ef manni finnst þau skemmtileg þá er það létt, en það er líka auðveldara að læra það sem maður semur sjálfur og þá veit maður hvernig persónan á að vera.“ Annasegist einu sinni hafaverið að leika í leikriti í skólanum sem henni fannst voða asnalegt. ,,Það var alveg ömurlega leiðinlegt. Það fer allt eftir verkefnunum og hópnum sem maður er með.“ Erna segist hafa mikinn áhuga á að fara í eitthvert nám. Rósa segist alltaf vera að hugsa um að fara í barnaleikhús sem þær hafa heyrt um, og hinar taka undir það, en þær segjast ekki vita hvert þær eigi að snúa sér. Sem stendur eru stelpurnar að æfa mjög skemmtilegt leikrit eft- ir Ole Lund Kirkegárd í skólanum. Finnst þeim munur á því að æfa ogleikstýra sjálfarogaðhafaleikstjóra? ,,Jú, þaðermikill munur. Það er gott að hafa leikstjóra sem segir manni hvað má veraöðru- vísi og svoleiðis. Þegar við erum að gera það sem við semjum gagnrýnum við auðvitaðhverjaaðra, segjum t.d. hvað má leikaaf meiri tilfinningu, hvenær má vera reiðari, sleþþa þessu orði eða setningu eða tala ekki svona hratt og svoleiðis." Ég spyr þær hvort einhver ein taki stjórnina eins og oft gerist þegar hópur vinn- ur saman, en þær þvertaka fyrir það. En hvernig fengu þær þennan áhuga á leiklist? Þegar Arney, Rósa og Erna voru í 7 ára bekk máttu þær velja eitthvað atriði fyrir sýningu og völdu leiklist og sama ár sömdu þær leikritasyrpu með sömu persónunum. í þeirra skóla er auð- velt að koma leikritum á framfæri. Þær geta spurt kennarann hvort þær megi sýna leikrit t.d. í frjálsa tímanum. Það er öðruvísi hjá Önnu, en hún sagði að þegar hún var 9—10 ára voru þau að læra um goðin og þá „heimtaði" hún og önnur stelpa í bekknum að fá að gera leikrit um það þegar hamri Þórs var stolið og allar stelpurnar í bekknum höfðu eitthvert hlutverk, sáu um búningana og allt sjálfar og léku fyrir bekkinn. Þetta var mjög skemmtilegt. Einu sinni sá hún sögu sem ein stelpan I bekknum hafði samið, þær fóru að tala um söguna og eftir smástund voru þær búnar að breyta henni I leikrit. Ég spyr þær hvort strákarnir séu í leiklist. Anna segir að það sé varla til í sínum skóla, en hinar segja að í leikritinu sem þær eru að æfa núna séu strákar með og þær hafa samið nokkur leikrit með strákum, en oftast hefur þurft að pína þá til að vera með. Þeir virðast hafa minni áhuga en þetta er auðvitað misjafnt hjá stelp- um llka. Vinátta Stelpurnareru allaráeinu máli um það að vináttasé mjög mikil- væg: ,,til þess að hafa einhvern til að vera með, trúa fyrir leyndar- málum og til að standa með manni, t.d. ef það er eitthvað sem maður þorir ekki, þá er gott að hafa vin sem maður getur treyst." En fjórar vinkonur saman, er ekki einhver ein sem vill ráða? ,,Nei,“ segja þær, ,,og ef svo væri kæmist hún ekkert upp með það, við ráðum allar jafnt. En við þekkjum krakka sem öllu vilja ráða og fara kannski bara að grenja ef þau fá ekki að ráða. Þau hafa kannski bara vanist því að ráða öllu. Það er ferlega leiðin- legt. Krakkar geta samt örugglega vanist af þessu, ef maður lætur þau ekki komast upp með það.“ Mig langartil að vita hvort það sé mismunur ástelpum og strák- um í skólanum. „Stelpurnar eru mikið rólegri, mikið meiri læti í strákunum, allavega íokkarbekk,“ segir Arney. En Annasegir að þegar hún var minni, 7, 8 og 9 ára þá voru það alltaf strákarnir sem réðu en núna eru stelpurnar alveg jafn frekar, með jafn mikil læti ef ekki meiri, en þeim finnst ekki mismunur á því hvernig stelpur og strákar vinna, t.d. í hópvinnu. Ég spyr hvort þeim finnist vera jafnrétti á milli kynjanna. Þær segja að konur fái lægri laun og svoleiðis en í skólanum ráöi stelp- ur og strákar jafnt, en sumir strákar sem koma nýir i Snælands- skóla vilji ráða, þeir kunni ekki inná kerfið, en þeir sem hafa verið með frá því í 6 ára bekk eru farnir að kunna inná það. Á heimilun- 19

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.