Vera - 01.07.1987, Qupperneq 27
af því tímabili þar sem viö sáum m.a. mikið af svokölluðum upp-
skriftarbókum, sem reyndu að varpa Ijósi á stöðu kvenna með það
fyrir augum að ná fram vitundarvakningu. Við erum nú komnar inn
í nýtt skeið þar sem kvenrithöfundar fást við að gera annars konar
veruleika kvenna sýnilegan. Tjáningarmátinn skiptir þar miklu máli.
Hins vegar er þetta í beinum tengslum við þann tíðaranda sem nú
er ráðandi. Við sjáum það einna best á hvaða bókmenntir það eru
sem nú eru í uppáhaldi, í kvenímynd þeirra. Það er Penelopa sem
aftur er orðin fyrirmynd, konan sem situr heima, syrgir og bíður eftir
Odysseifi sínum. Það hentar svo vel núna, passar inn í hina margum-
töluð krísu einstaklingsins. Það á að sleppa allri samstöðu, allri
samkend og barátta fyrir minnihlutahópum á ekki uppá pallborðið.
Við konur erum aftur komnar í hlutverk þolandans."
Márta á erfitt með að sætta sig við þessa þróun. Ekki vegna þess
að það væri ekki mögulegt að finna ný orð fyrir feminista eða
kvennabókmenntir, heldurvegna þessað henni sárnar aðsjá reynslu
fara til spillis. Sjá reynsluna ekki flutta áfram til komandi kynslóða.
,,Það væri svo ótrúlega vitlaust ef það sem áunnist hefur mundi
glatast, ef ungu konurnar þurfa að ganga sömu gönguna og við.
Horfurnareru ekki bjartar, en það ríðurá að halda út, að lifa af vet-
urinn".
K. B.
Prentum
stórt
smátt
PRENTBERG HF
AUÐBREKKU 4
200 KÚPAVOGI SlMI 45333
Hvernig væri
að fá sér
eitthvað þægilegt
f vorverkin?
Trimmgallar
og íþróttaskór
á alla fjölskylduna
Hólasport
Lóuhólum 2—6
Reykjavík — Sími 75020