Vera - 01.07.1987, Side 36

Vera - 01.07.1987, Side 36
eftir einhverra ára hlé sem þær hafa þá tekið til að sinna börn- um sínum, þessar konur eru komnar um og yfir fertugt. Hvernig gengur þessum ,,eldri‘‘ konum að fá störf? Nanna: Það er nú svo að þegar atvinnurekendur leita eftir kvenkyns starfskrafti taka þeir fram hvaða aldur þeir vilja, þeir vilja auðvitað hæfileika líka. Hvaða aldri óska þeir eftir? Nanna: Aldurinn frá tuttugu og sjö eða átta ára upp að fertugu er afar vinsæll í dag. Eru þessar aldurskröfur ekki settar á karlkyns starfskraft? Nanna: Þær karlmanna- ráðningar sem hafa farið fram hér hjá okkur eru að vísu færri, en í þeim tilvikum hefur aldur- inn ekki verið neitt af aðalatrið- unum eins og er þegar um kvennaráðningar hefur veriö að ræða. Þegar atvinnurek- endur hafa hringt hingað og óskað eftir karli eða konu í starf, er ekki óalgengt að sagt sé ,,ef það er karlmaöur þá skiptir aldurinn ekki máli, ef það er kona þá verður hún að vera innan við fertugt, helst yngri“. Hvers vegna haldið þið að þetta sé svona? Ágústa: Ég hef ekki rætt um þetta við atvinnurekendur svo ég get ekki gefið neitt einhlítt svar, ef til vill er það kven- ímyndin sem þarna ræður ferðinni. En eitt er víst að með því að útiloka konur sem komn- ar eru yfir fertugt, sem hugsan- legan starfskraft eru atvinnu- rekendur að gera mikil mistök. Nanna: Mér var hugsað til þessa þegar ég fór inn í versl- unina Kosta Boda fyrir skömmu síðan, í þessari versl- un er einstaklega lipur og góð þjónusta og maður tekur eftir að afgreiðslustúlkurnar eru lang flestar komnar á miðjan aldur. Það er einkennilegt að atvinnurekendur skulu ekki hafa áttað sig á því hvað konur á þessum aldri eru traustir og góðir starfskraftar. Líkurnar á því að kona á þessum aldri stöðvi lengur, hafi lengri við- veru hjá fyrirtæki en yngri kona, eru mörgum sinnum meiri en hjá þeirri sem yngri er. Þær sem eldri eru vilja fá starf þar sem þær geta verið um kyrrt, þær yngri eru aftur á móti oft að prófa sig áfram og skipta því frekar um störf. Ágústa: Ef við snúum okkur aftur að hinum mismunandi kröfum sem gerðar eru til karl- og kvenkyns starfskrafta þá er það greinilegt að útlit karlkyns starfskraftar skiþtir ekki máli á meðan að það er töluvert mikið atriði ef um kvenkyns starfs- kraft er að ræða. Þetta er eitt- hvað í sambandi við „skreyt- inguna" á skrifstofunni eða í versluninni og kvenímyndin er jú eitthvað sem meðal annars er í raun staðlað augnayndi. Nanna: Ég er farin að segja konum, sem koma ingað í leit að nýju starfi að það séu vissir erfiðleikar í sambandi við ald- urinn. Ég vil ekki að þær fari að segja upþ störfum sem þær eru í fyrr en þær eru vissar um annað starf. Við erum hérna með nokkrar mjög hæf- ar konur um fimmtugt, sem hafa sagt uþp störfum sínum, vitandi fullvel sjálfar hvað þær geta og þóttust þess vegna vissar um að fá fljótt annað starf en ganga nú um atvinnu- lausarmánuðum saman. Þetta er sorgarsaga og ekkert síður fyrir atvinnurekandann sem veit ekki hvað hann fer á mis við góðan og hæfan starfs- kraft. Ágústa: Við gerðum það um daginn við atvinnurekanda, sem óskað hafði mjög eindreg- ið eftir stúlku milli tvítugs og þrítugs, að senda honum eina yfir fertugt, sem okkur fannst passa mjög vel í starfið. Hann hafði viðtal við hana eftir að hann hafði talað við nokkuð margar yngri og viti menn hún var ráðin. Vitið þið hvort aðrar ráðn- ingaþjónustur hafa sömu sögu að segja I þessum efnum? Nanna: Ég hef sjálf ekki tal- að við aðrar ráðningaþjónustur um þetta, en Þórunn hafði tal af starfsfólki hjá einni slíkri og spurði hvort það hefði rekið sig á þetta. Það staðfesti þetta ein- dregið og sagði þetta vera stórt vandamál. Hvað um starfsráðgjöfina, hvernig fer hún fram? Ágústa: Höfð eru viðtöl við þá sem sækja eftir ráðgjöf. í þessum viðtölum er notað tæki sem er áhugasviðs ábendi og byggir á bandarískum aðferð- um. Það hefur verið þýtt og staðlað yfir á íslenskar að- stæður. Þetta ábendi kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1927 í Bandaríkjunum, þegar menn fóru að fá áhuga fyrir að finna hepþileg störf fyrir karlmenn. í byrjun var það eingönguð not- að fyrir karlmenn þar sem kon- an var ekkert með inni í þessari mynd. Nokkrum árum seinna var þó konan tekin með þegar menn fóru að hugsa um að það gæti nú verið ágætt að konur hefðu störf við sitt hæfi líka. Þá voru útbúin sérstök eyðublöð fyrir karla sem voru blá á litinn og önnuryfir konur en þau voru bleik. Fyrir utan mismunandi lit eftir kyni voru sþurningarnar einnig aðrar. Þessu var þó breytt þegar fram liðu stundir og notað hvitt blað með sömu spurningum fyrir bæði kynin. Áhugasviðs ábendið er notað til að velja fólk inn í skóla, til að hjálpa skólafólki til að velja sér námsgreinar, til að velja fólk í starf og þegar fólk vill skipta um starf kemur þetta að góð- umnotum. Þaðermikilákvörð- un og oft erfitt að skipta um starf, einn einstaklingur getur haft marga góða hæfileika og þegar hann hefur valið eitt- hvað eitt er hann um leið búinn að hafna öllu öðru, vitundin um þetta getur orðið til þess að fólk hættir við og lætur bara rekaá reiðanum. í slíkum tilfell- um getur áhugasviðs ábendið hjálpað fólki, styrkt það til að taka ákvörðun. Áþendið er sem sagt hjálpartæki í viðtöl- um sem flýtir mikið fyrir niður- stöðum. Nanna: Það er mikilvægt að það komi fram að með notkun þessa ábendis er ekki um að ræða neina ,,patent“ lausn á málunum, þetta er ekkert galdratæki og I raun og veru er hægt að komast að þeim niður- stöðum sem áþendið gefur með mörgum viðtölum, en það er bara alltof tímafrekt. Ágústa: Ábendið er eins og ég sagði áðan hjálpartæki fyrir fólk til að taka ákvörðun viðvíkj- andi námi eða starfi, fólk sem vill hjálpa sér sjálft fær stuðn- ing með ábendinu, en það verður sjálft að taka ákvörðun- ina. Að baki þessa ábendis liggja miklar og vandaðar vís- indalegar rannsóknir í áratugi og sá'sem notar ábendið við náms- og starfsráðgjöf verður að vera sérstaklega menntað- ur til þess. R. E. FANTASIA Gott og Blandað Laugavegi 53 — Blandið sjálí Sælgæti — Hnetur — Konfekt og ís 36

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.