Vera - 01.03.1988, Qupperneq 27

Vera - 01.03.1988, Qupperneq 27
Konur og EYÐNI Eins og kunnugt er, hefur eyðni komið harðast niður á tveimur þjóðfélagshópum 1 Evrópu og í Bandaríkjunum, hommum og eyturlyfjanteytendum og hafa karlar orðið verst úti. í Afríku, þar sem útbreiðslu eyðni er líkt við faraldur (talið er að um 5 milljónir Afríkana séu sýktir), er útbreiðslunni á ennan hátt farið því þar sýkjast konur í jafn ^iklum mæli og karlar. Smitleiðirnar þar eru því augljóslegar aðrar. Umskurður á konum gæti verið sökudólgurinn. Konur viðaíAfríku hafa efnttil upplýsingaherferð- ar 9egn þessum sið, þær telja upprætingu hans geta verið eina leiðin til að stöðva eða draga úr útbreiðslu eyðni í álfunni. Umskurður fer oftast þannig fram að ytri kynfæri konunnar eru skorin af, barmar og snípur. Sárið er síðan saumað saman og eðeins skilið eftir örlítið op (á stærð við enimál eldspýtu). Konan er ekki svæfð eða ðeyfð þær 15-20 mínútur, sem aðgerðin tekur og verkfærin eru ekki sótthreinsuð. Að aðgerðinni lokinni er ekki hægt að hafa samfarir nema opið sé rifið upp og vílir niakinn ekki fyrir sér að gera það, bjóði honum svo við að horfa. Annar kostur, sem gripið er til og gerir slíka blóðgun óþarfa, eru „samfarir" um endaþarm konunnar. Samfarir eru þess vegna sársaukafull og blóðug athöfn, enda mun umskurður til þess ætlaður að drepa kynhvöt konunnar. Á því hefur verið vakin athygli margsinn- is, að útbreiðsla eyðni fer mjög saman við útbreiðslu þessarar aðgerðar í Afríku. Kvennahópur í Nigeríu hefur nú byrjað upplýsingaherferð um þessi mál og felst hún í því að þær ferðast um og tala við kon- ur, halda fyrirlestra, skrifa greinar og koma fram í sjónvarpi og útvarpi. í fréttaritinu ISIS (alþjóðlegt kvennafréttatímarit) biðja þær konur um allan heim að styrkja sig í þessari baráttu með fjárframlögum, því þær njóti engra opinberra styrkja til verks- ins. Þar benda þær m.a. á að af 98000 skráðum tilfellum um eyðni í álfunni síð- ustu tvö árin, séu 75% konur frá svæðum í Afríku, þar sem umskurður er venjan. Framlög og/eða fyrirspurnir má senda til: Hönnu Edemikpong, Women’s Centre, Box 185, Eket, Cross River State, Nigeria, West Africa. 5PARI5JOÐUR HAFNARFJARÐAR Ferðamannagjaldeyrir Hjá okkur færð þú gjaldeyrinn fyrir utanlandsferðina af- greiddan samdægurs. Gjaldeyrir til námsmanna erlendis Við önnumst allar yfirfærslur gjaldeyris til námsmanna er- lendis. Innlendir gjaldeyrisreikn- ingar Innlendu gjaldeyrisreikning- arnir okkar gefa góða ávöxtun. Þú getur valið um gjaldeyris- reikninga í eftirtöldum gjald- miðlum: Bandaríkjadollurum, enskum pundum, dönskum krónum og V. -þýskum mörk- f um. I o> Persónuleg og fjölþætt f þjónusta okkar sparar þér I sporin. I 27

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.