Vera - 01.03.1988, Side 39
höfðu margt við þá lagasetningu að athuga, enda þótt
þær væru fylgjandi því að staðgreiðslu yrði komið á.‘‘
Síðar segir um breytingartillögurnar ,,í breytingartillög-
um Kvennalistans felast eftirfarandi atriði:
Skattþrepin verði tvö þar sem tekjuryfir 2.500.000 kr.
á ári beri 33% tekjuskatt. Jafnframt er lagt fram frum-
varp á þskj. 406 um mishátt útsvar eftir tekjum þar sem
heimilt verður að leggja allt að 9% útsvar á tekjur yfir
2.500.000 kr. á ári. Þetta gefur svigrúm til hækkunar per-
sónuafsláttar, um 5000 kr. á ári.
í öðru lagi er lagt til að barnabætur verði greiddar til
móður ef barniö er í hennar umsjá, annars þeim sem því
hlutverki gegnir. Rökin fyrir því eru þau að barnið er í
flestum tilfellum fyrst og fremst I umsjá móður, hún tekur
á sig ómælda vinnu sem hvergi er metin til launa og oft-
ast er það móðirin sem verður fyrir tekjutapi vegna um-
önnunar barnsins. Og hverjar svo sem aðstæðurnar eru
þá er móöirin nær undantekningarlaust tekjulægri en
faðirinn. Auk þess er hagræði að því að greiða barna-
bætur út óskiptar þar sem útsendingar verða miklu
færri.“
,,Mjúkar“ fjárlagatillögur
Fjárlög fyrir árið 1988 voru samþykkt þann 28. desem-
ber 1987 og mátti ekki seinna vera. Kvennalistakonur
gerðu ýmsar breytingartillögurviðfrumvarpiðsem náðu
því miður ekki fram að ganga. Heildarupphæð breyting-
artillagna Kvennalistans var 850.095.000 millj. króna,
eða u.þ.b. það sama og upphaflega var áætlað að flug-
stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli kostaði. Til að
gefa nokkra hugmynd um þau málefni sem Kvennalist-
inn vildi auka útgjöld til skuli nefnd nokkur dæmi hér.
Framlag í Rannsóknarsjóð yrði aukið úr 70 í 100 millj.,
framlag til tónlistarskóla yrði aukið úr 105.460 i 158.190
millj., framlag til Lánasjóðs íslenskra námsmanna yrði
aukið úr 1.478.000 í 1.678.000 millj., liðurinn jöfnun á
námskostnaði yrði 100 í stað 25 millj., Náttúruverndar-
ráð fengi 1.950 millj. til fræðslustarfsemi í stað 930 þús.
kr., Þjóðleikhúsiðfengi 163.700 millj. í almennan rekstur
ístað 138.700 millj., lagt vartil að liðurinn Listir hækkaði
úr 70.210 millj. í 203.700 millj., lagt vartil að til málefna
fatlaðraí Reykjavíkrynnu 56.507 millj. ístað46.187 millj.,
lagt var til að Kvennaathvarfið fengi 5.528 millj. í stað 4,5
millj., framlag til Geislavarna var áfjárlögum 8.940 millj.,
en Kvennalistinn lagði til aö þaö yrði 12.440 millj., lagt
var til að framlag til Krabbameinsfélags íslands yrði
aukið úr 50.400 þús. kr. f 57.500 millj. og loks má nefna
tillögu um að framlag til Ferðamálaráðs yrði hækkað úr
28 millj. í 80 millj. Kvennalistakonur vildu einnig bæta
inn nokkrum nýjum liðum á fjárlögin og má þar nefna,
framlag til ferðamálasamtaka 1,4 millj., framlag til fram-
kvæmda í Dimmuborgum 1 millj. og til framkvæmda í
þjóðgörðum og friðlýstum svæðum 3 millj., framlag til
Kvikmyndaeftirlits undir liðnum, vernd barna og ungl-
inga 3 millj. og síðast en ekki síst var lagt til að á fjárlög
kæmi nýr liður Dagvistarheimili stofnkostnaður 220.907
millj., en þessi liður féll niðurfyrir árið 1988 vegnafrum-
varps til laga um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga sem felur það í sér að sveitarfélögin eiga nú alfarið
aö sjá um stofnkostnaö við byggingu dagvistarheimila.
Við skulum grípa hér aðeins niður í ræður þriggja
kvennalistakvenna um fjárlögin. Málmfríður Sigurðar-
dóttirsagði m.a. í ræðu sinni í umræðum um fjárlög ,,Við
kvennalistakonurerum sammála því að rikissjóð beri að
reka án halla. Við erum hins vegar ekki samþykkar því
hvernig teknanna er aflað og hvernig þeim er ráðstafað
°9 sannarlega höfum við margt viö gjaldahliðina að at-
huga, sem ekki fékkst lagfært í meðförum nefndarinnar
(fjárveitinganefndar). Það dæmi er of stórt til að brjóta
það allt upp og því gerum við aðeins fáar breytingartil-
lögur og þá við þá liði sem okkur er mest í mun að fá leið-
rétta.
Þær tillögur þurfa ekki að koma þeim á óvart sem
þekkja stefnu Kvennalistans sem leggur megináherslu
á bættan aðbúnað kvenna og barna, jöfnun aðstöðu
milli dreifbýlis og þéttbýlis, umhverfisverndun og um-
hyggju fyrir menningu, menntun og listum.“
Kristin Einarsdóttir ræddi m.a. um fjárþörf Kvennaat-
hvarfsins og sagði þá ,,í fjárhasáætlun Kvennaathvarfs-
ins um rekstur er áætlað að reksturinn kosti um 7 millj.
897 þús. kr. á næsta ári og fara þær konur sem sjá um
reksturinn fram á að ríkissjóður greiði 70% af þeim
kostnaði eða 5 millj. 528 þús. kr. (sem er sú upphæð
sem Kvennalistinn lagði til að Kvennaathvarfið fengi). Á
hverju ári koma meira en 150 konur í Kvennaathvarfið í
Reykjavík og yfir 100 börn. Konurnar koma í athvarfið af
öllu landinu þó að flestar séu þær frá höfuðborgarsvæð-
inu, en eins og kunnugt er er Kvennaathvarfið í Reykja-
vík eina kvennaathverfið á landinu. Enginn efast lengur
um gildi Kvennaathverfsins og gagnsemi þess fyrir kon-
ur og börn sem verða fyrir ofbeldi og eiga í ekkert hús
að venda ef athvarfsins nyti ekki við.“
Þórhildur Þorleifsdóttir fjallaði m.a. um framlög til
lista og menningarmála á fjárlögum og sagði þá m.a.
,,Það er augljóst mál að það þarf aö endurskoða allt
styrkjakerfi menningarmála. En meðan það hefur ekki
verið gert þrátt fyrir itrekuð tilmæli listamanna verður að
nægja að leggja til hækkanir á fjárlögum. Brýnustu
verkefnin eru þó stórbættir starfslaunasjóðir bæði til
einstaklinga og verkefna, lífeyrissjóðamál, lausn hús-
næðisvanda í Reykjavík til tónlista- og leiklistahalds og
miklu myndarlegri stuðningur við þær stofnanir sem
ætlað er að vera burðarásar menningarinnar.“
Verkefnaskipting ríkis og
sveitarfélaga
Eitt af stóru málunum sem kom fram í hamagangin-
um fyrir jól var frumvarp um verkefnaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga. Þetta frumvarp felur í sér veigamiklar
breytingar sem skipta miklu fyrir sveitarfélögin I landinu
og þá sérstaklega þau sem minni eru og hafa þar af leið-
andi minna fjármagn til framkvæmda. Til stóð að af-
greiða þetta frumvarp fyrir leyfi þingmanna, en úr þvi
varð ekki þar sem tókst að fá því framgengt að það yrði
sent til kynningar til allra sveitastjórna í landinu. Það
hafði ekki verið gert áður en frumvarpið var lagt fram og
var sveitastjórnarmönnum þvi ekki kunnugt um þær
breytingar sem fólust í frumvarpinu.
Kristín Einarsdóttir hafði ýmsar athugasemdir við
frumvarpið og skulum við grípa hér örstutt niður í ræðu
hennar um málið. „1. Með frumvarpinu er verið að flytja
til sveitarfélaga verkefni sem hafa munu I för með sér
meiri útgjöld af hálfu sveitarfélaganna en ríkið tekur að
sér á móti. 2. Frumvarpið fjallar aðeins um hluta af þeim
mörgu viðfangsefnum sem tillögur hafa komið fram um
að breyta í núverandi verkaskiptingu milli ríkis og sveit-
arfélaga. Hér liggur því ekki fyrir nein heildarstefnu-
mörkun í þessum málum. 3. Fjármögnunarþáttur þeirr-
ar verkaskiptingar sem frumvarpið tekur til er í lausu
lofti. Þannig hafa engin drög enn veriö gerð að uppgjöri
við einstök sveitarfélög vegna þeirra framkvæmda sem
ríkissjóður hefur tekið þátt í til þessa. 4. Ekki hafa verið
kynntar reglur eða drög að reglugerð varðandi fjárfram-
lög til jöfnunar milli sveitarfélaga vegna aukins og mis-
munandi kostnaðar i kjölfar breyttrar verkaskiptingar. 5.
Fjárframlög vegna þessara fyrirhuguðu breytinga á að
taka úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en framlag til sjóðs-
ins hefur verið skert mikið um árabil og svo er enn sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1988.“
39