Vera - 01.03.1988, Qupperneq 41

Vera - 01.03.1988, Qupperneq 41
I ööru lagi hefur veriö lögö fram þingsályktunartillaga sem hljóðar svo; „Alþingi ályktar að fela félagsmálaráð- herra aö koma á fót þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta þar sem veitt væri textasíma- og túlkaþjónusta." í þriðja lagi hefur verið lögð fram þingsályktunartil- laga um könnun á launavinnu framhaldsskólanema. Þar sem kannaðir verði eftirfarandi þættir: ,,a. fjöldi vinnustunda á viku, b. hvenær sólarhrings störfin eru unnin, c. kjör og réttindi námsmanna í launavinnu, d. ástæður þess að nemar vinna launuð störf með námi.“ í fimmta lagi er það svo þingsályktunartillaga um hús- næði fyrir aðstandendur sjúklinga. Hún hljóöar svo ,,AI- þingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að leita nú þeg- ar leiða til að leysa húsnæðisvanda aðstandenda sjúkl- inga sem þurfa að dveljast langdvölum fjarri heimilum sínum.“ Snúum okkur þá að frumvörpum kvennalistakvenna. Fyrst skal nefnt hérfrumvarp um lífeyrisréttindi heima- vinnandi húsmæðra. 1. gr. frumvarpsins er svohljóð- andi: ,,Á eftir 6. gr. laganna (sbr. lög nr. 58/1985) kemur ný grein er orðist svo: Heimavinnandi húsmæður sem ekki gegna öðru starfi, svo og þær heimavinnandi hús- mæður sem eru í minna en hálfu starfi utan heimilis, skulu öðlast aðild að Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda. Rík- issjóður greiði mánaðarlega iðgjald til sjóðsins vegna hverrar heimavinnandi húsmóöur er nemi 6% af laun- um skv. 9. flokki kjarasamnings Verkamannasambands íslands, efsta starfsaldursþrepi, eins og þau eru á hverj- um tima og viðkomandi sveitarfélag 4% af sömu upp- hæð.“ í ööru lagi er það frumvarp sem snertir greiðslur Tryggingastofnunar vegna greiðslu fargjalds og uppi- haldskostnaðar fylgdarmanns sjúklings sem leita þarf læknishjálpar fjarri heimabyggð. í frumvarpi segir m.a. um skilyrði fyrir greiðslu ferðastyrks „Ferðastyrki til uppihaldskostnaðar sjúklings og fylgdarmanns sam- kvæmt J-lið er dvelja þarf 30 daga eða lengur á 12 mán- aða tímabili utan heimabyggðar. Skilyrði er að ekki sé hægt að veita sjúklingi nauðsynlega meðferð í heima- byggð. Ferðastyrkur til sjúklings miðist við dvöl hans ut- an sjúkrahúss. Þegar ferðastyrkur er greiddur greiðast jafnframt fargjöld án tillits til þess hvort um ítrekaðar ferðir erað ræða.“ Enn fremurer kveðiðá í frumvarpinu um rétt til dagpeninga frá almannatryggingum ef veik- indi náinna ættingja valda vinnu- og launatapi. í þriðja lagi er það frumvarp sem fjallar um greiðslur á gleraugum fyrir ákveðna hópa. Fyrsta grein frum- varpsins er svohljóðandi ,,Við 1. mgr. 43. gr. laganna bætist nýr stafliöur er orðist svo: Fyrir gleraugu handa börnum og unglingum, samkvæmt gleraugnaávísun (resepti) frá augnlækni, sem framvísað er á því reikn- ingsformi sem Tryggingastofnun ríkisins ákveður, greiða sjúkrasamlög í samræmi við samninga sem Tryggingastofnunin hefur gert fyrir þeirra hönd eða sam- kvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur séu samningar ekki fyrir hendi, sem hér segir, þó ekki nema einu sinni á ári nema sjón breytist: I. Fyrir börn og unglinga 18 ára °g yngri skal greiða allan kostnað við gler og fasta upp- hæð sem svari til meðalkostnaðar við umgerðir að mati Tryggingastofnunar. II. Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega sem njóta tekjutryggingar skal greiða allan kostnað við 9ler og fasta upphæð sem svari til meðalkostnaðar við umgerðir að mati Tryggingastofnunar, en fyrir aðra elli- og örorkulífeyrisþega greiðist allur kostnaður við gler. Og síðast en ekki síst er það frumvarp um tímabundið átak í uppbyggingu dagvistarheimila fyrir börn. í fyrstu 9rein frumvarpsins segir „Markmið laga þessara er að bæta verulega og með skjótum hætti úr skorti á dagvist- arrými fyrir börn um allt land.“ í frumvarpinu er lagt til að stofnaður verði byggingasjóður dagvistarheimila fyr- ir börn sem atvinnurekendur og ríkissjóður myndi sam- eiginlega með jafnháum framlögum. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn myndist á fimm árum. Sveitarfélög geti síðan sótt um tvo þriöju hluta kostnaðar við byggingu dagvist- arheimila í þennan sjóð. Ljóst er að ríkið skuldar sveitar- félögunum samtals 207 milljónir vegna byggingar dag- vistarheimila miðað við byggingarvísitölu í febrúar 1988. Þetta frumvarp hefur ekki hlotið umfjöllun í þinginu þeg- ar þetta er skrifað en það verður fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum stjórnarinnar við þessu þarfamáli. Úr jómfrúrræöu Sigríöar Lillý Þegar þing kom saman eftir um hálfsmánaðar síðbúið jólaleyfi í janúarmánuði tók Sigríður Lilly Baldursdóttir varaþingkona úr Reykjavík sæti á Alþingi í fjarveru Þórhildar Þorleifsdótt- ur. Þetta er í fyrsta sinn sem Sigga Lillý sest á þing og fyrsta varakonan sem kemur inn í vetur hjá Kvennalistanum. Jómfrúrræðu sína flutti Sigga Lillý í utandagskrárumræðu um efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnarog birtum við hér stuttan kafla úr ræðu hennar: ,,í stjórnarmyndunarviðræðum Kvennalistans sl. vor geröum við að úrslitaatriði aö lágmarkslaun í landinu skyldu hækkuð og miðuð við framfærslu. Þá var okkur bent á að i fyrsta lagi væri ekki hægt að meta lágmarksþörf einstaklings eða fjölskyldna og í öðru lagi giltu aldagömul lögmál um innbyrðis hlut- föll launa, lögmál sem giitu í Mesapótamíu til forna eigi við hér í dag, hafi í raun ætíð gilt og muni alltaf gilda. Því væri fráleitt aö ætla að hækka lægstu laun- in, slík hækkun myndi skila sér upp allan launastig- ann — fólkið, sem næstlægstu launin hafi, heimti sína hækkun og svo koll af kolli. En hvað er nú að gerast í kjarasamningum? Frá Vestfjörðum berast þau tíðindi að samið hafi verið um heildarbónus í frystihúsunum. Allir sem í húsinu vinna fá jafnháa bónusgreiðslu — í krónum talið —, allt frá móttöku og þar til fiskurinn er kominn í frysti. Þetta þýðir auðvitað að þær sem næstlægst kaupið höfðu, sætta sig við að þær, sem höfðu lægsta kaup- ið, hækki og allar fái sömu laun. Vissulega er hækk- unin smánarleg. En þetta tekur af allan vafa um að lögmáliö sem hagfræðingarnir sameinuðust um að fullvissa þjóðina um að væri lögmál — er ekkert lög- mál. Allavega er þaö ekki láglaunafólkið, sem kemur launaskriðunni af stað. Þaö skyldi þó ekki vera aö þeir, sem enn hærra kaup hafa, standi á bak við og ýti við fyrstu steinunum, — kannski til þess að viö- halda því sem þeir kalla lögmál, sem er þá ekki ann- að en val þeirra, sem valdið hafa á þvi launakerfi sem þeim þóknast. ,,Mesti og besti auður hvers lands er fólkið sjálft, sem lifir þar hugsar og starfar." Þetta er gullvæg setning fengin frá skáldinu Einari Benediktssyni. Má ég biðja um ríkisstjórn sem hefur hana að leið- arljósi. Við Kvennalistakonur krefjumst ábyrgrar rikis- stjórnar, stjórnar sem vill axla ábyrgð. Og ég bendi háttvirtu Alþingi á að slík stjórn þarf ekki að vera i meginatriðum, gráteinótt. — Hún gæti jafnvel ein- göngu verið með mjúkum línum. Stjórn sem tæki all- ar sínar ákvarðanir út frá þorra fólks og bæri á hönd- um sér þá sem bera minnst úr býtum. Sigrídur Lillý. Sigrún Jónsdóttir 41

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.