Vera - 01.09.1990, Síða 4
KVENNARANNSÓKNIR SÆKJA FRAM
Um mánaðarmótin ágúst/sept-
ember eru sex ár síðan hin vel
sótta og velheppnaða ráð-
stefna í kvennarannsóknum
var haldin við Háskóla íslands.
Upp úr ráðstefnunni var stofn-
aður Áhugahópur um íslensk-
ar kvennarannsóknir sem
starfað hefur af þrótti síðan.
Eitt af verkefnum hópsins hef-
ur verið að efla kennslu og
rannsóknir í kvennafræðum
við Háskólann og afla þeim
formlegrar viðurkenningar.
Fyrsta tillagan, að koma inn
þverfaglegu námi í kvenna-
fræðum sem aukagrein til BA-
prófs, var hafnað á þeirri for-
sendu að ekki væri svigrúm
innan reglugerðar háskólans
að stofna til þverfaglegs náms á
þann hátt sem gert var ráð fyr-
ir.
Hópurinn einbeitti sér þá að
því að koma upp þverfaglegri
rannsóknastofu. Þær Guðný
Guðbjörnsdóttir og Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir unnu
frábært starf við að móta til-
lögur að reglugerð sem voru
lagðar fyrir háskólaráð síðla
árs 1988. Allt næsta ár voru til-
lögurnar að velkjast í háskóla-
ráði og tóku nokkrum breyt-
ingum í meðförum þess og var
borið við samræmingu við
hliðstæðar stofnanir. Loks í
janúar 1990 voru tillögurnar
samþykktar og sendar Svavari
Gestssyni, menntamálaráð-
herra, til samþykktar. í mars
staðfesti ráðherra reglugerð-
ina og sendi til birtingar í
Stjórnartíðindum og um miðj-
an júní skipaði háskólaráð
fyrstu stjórnina til tveggja ára,
en í henni eiga sæti sr. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, Guðný
Guðbjörnsdóttir, Guðrún
Ólafsdóttir, Helga Kress,
Kristín Björnsdóttir og Ragn-
heiður Bragadóttir og eiga þar
með guðfræði-, félagsvísinda-,
raunvísinda-, heimspeki-,
lækna- (námsbraut í hjúkrun-
arfræðum) og lagadeild full-
trúa í stjórninni og ætti það að
vera góð trygging fyrir því að
þverfagleg sjónarmið ráði
ferðinni.
Stjórnin er nú að ráða ráð-
um sínum um hvernig hrinda
megi starfseminni í gang, út-
vega fjármagn, aðstöðu og
starfskraft. Henni hefur og
orðið tíðrætt um það hvernig
tryggja megi samstarf og tengsl
við Áhugahópinn þannig að
UNNUR OG SIF SF.
Regnfatabúðin
Laugavegi 21
101 Reykjavík, s: 26606
Vlutcuzcv
Heílsuvörur nútímafólks
Bankastræti 4
Sími 1 66 90
Laugavegi 53
Sími 20 2 66
hvort tveggja eflist. Hugsjónin
sem liggur að baki rannsóknar-
stofunnar er að draga fram í
dagsljósið staðreyndir um líf,
störf, aðstöðu og aðstæður
kvenna í fortíð og nútíð í þeim
tilgangi að það geti orðið
íslenskum konum til gagns í
baráttunni fyrir fyllra og betra
lífi og til ánægju og styrktar.
, ,Sannleikurinn mun gera yður
frjálsa,“ segir í helgri bók. Það
versta sem gæti hent stofuna er
að hún einangrist og verði lok-
aður klúbbur sérfræðinga sem
skrifa hverjir fyrir aðra. Sam-
starf við öflugan áhugahóp þar
sem allar konur lærðar og leik-
ar eiga aðgang og geta tjáð sig
er besta tryggingin gegn því.
Til þess að gefa lesendum
Veru ljósari hugmynd um hvað
rannsóknarstofunni er ætlað
að gera fer hér á eftir 2. grein
reglugerðarinnar.
a) að efla og samhæfa rann-
sóknir í kvennafræðum.
b) að hafa samstarf við inn-
lenda og erlenda rannsóknar-
aðila á sviði kvennafræða.
c) að koma á fót gagnabanka
um kvennarannsóknir.
d) að vinna að og kynna nið-
urstöður rannsókna í kvenna-
fræðum.
e) að veita upplýsingar og ráð-
gjöf varðandi rannsóknir í
kvennafræðum.
f) að leita samstarfs við deildir
háskólans um að auka þátt
kvennafræða í kennslu fræði-
greina.
g) að gangast fyrir námskeið-
um og fyrirlestrum um
kvennafræði og kvennarann-
sóknir.
Það er mikill áfangi að
kvennarannsóknir skuli hafa
fengið þessa formlegu viður-
kenningu í Háskólanum. Það
gefur nýja möguleika og auð-
veldar viðleitni til að koma
gagnrýnum kvennasjónarmið-
um inn í kennslu og rannsókn-
ir hinna ýmsu deilda Háskól-
ans. Vonandi bera íslenskar há-
skólakonur gæfu til að nota
tækifærin á frjóan og skapandi
hátt.
Guðrún Ólafsdóttir
STYRKIR TIL
KVENNARANNSÓKNA
I vor úthlutaði Áhugahópur
um íslenskar kvennarannsókn-
ir launastyrkjum til kvenna-
rannsókna í 4. sinn. Átján um-
sóknir bárust og hlutu átta
konur styrki og hafa þá samtals
23 konur (og einn karl) fengið
styrk. í ár var veitt fé í eftirfar-
andi rannsóknir:
Auður Styrkársdóttir, stjórn-
málafræðingur, til að rannsaka
þá málaflokka sem konur á Al-
þingi hafa beitt sér fyrir frá
upphafi þingsetu þeirra 1922
til dagsins í dag.
Dagný Kristjánsdóttir, bók-
menntafræðingur, til rann-
sókna á skáldsögum Ragnheið-
ar Jónsdóttur fyrir fullorðna.
Hanna María Pétursdóttir,
guðfræðingur, til að rannsaka
siði og venjur sem tengjast
fæðingu og dauða.
Jane Kate Schulman til að ljúka
rannsókn á réttarstöðu
íslenskra kvenna á miðöldum.
Kristín Ástgeirsdóttir, sagn-
fræðingur, til þess að rannsaka
hlut kvenna í sjálfstæðis-
baráttu fslendinga.
Kristínjónasdóttir, félagsfræð-
ingur, til að rannsaka þátttöku
íslenskra kvenna í verkalýðs-
hreyfingunni.
Lilja Gunnarsdóttir, leikhús-
fræðingur, til að rannsaka
ímynd kvenna í íslenskum
Ieikritum frá aldamótum til
dagsins í dag.
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, mannfræðingur, til þess
að ljúka rannsókn sinni á hug-
myndum íslenskra kvenna-
hreyfinga í félagslegu og
menningarlegu samhengi.
Vera óskar þeim hjartanlega
til hamingju með styrkina og
við vonum að vel gangi með
þessi áhugaverðu verkefni.
4