Vera - 01.09.1990, Síða 9
sölustjóri er karl. Fyrir utan þessa
þrjá eru tveir aðrir sem tilheyra
hópi fimm æöstu stjórnenda, allt
karlar.
Jón Ásbergsson framkvæmda-
stjóri Hagkaups segir fyrirtækið
ekki hafa markað sér neina sér-
staka stefnu varðandi ráðningar
kvenna í ábyrgðarstöður.
,,Ég vildi gjarnan geta sagt að
við gerðum ráðstafanir til að
fjölga konum í ábyrgðarstörfum.
Það gerum við hinsvegar ekki.
Þær konur sem gegna ábyrgðar-
stöðum hjá okkur voru ráðnar af
þeirri einföldu ástæðu að þær
voru hæfastar. Það má segja að
stefna okkar í starfsmannahaldi
felist fyrst og fremst í því að við
viljum að gott starfsfólk geti unn-
ið sig upp innan fyrirtækisins og
við ræðum oft óformlega saman
um hvernig hægt sé að tryggja að
það gangi eðlilega fyrir sig. Kon-
ur eru mjög fjölmennar í neðri
lögunum og þær sem gegna
ábyrgðarstöðum koma margar
þaðan.“
„Hvað tekur það konur langan
tíma að vinna sig upp?“
,,Hjá duglegu fólki gerist það
hratt. Þær tvær konur sem eru
verslunarstjórar voru um þaö bil 5
ár að því.“
„Eruð þið meðvitaðir um að
ímynd Hagkaups ræðst af við-
horfi kvenna til fyrirtækisins?"
„Við veltum þessum ímyndar-
málum lítið fyrir okkur. Við trú-
um því að ef við veitum góða
þjónustu og höldum verði niðri
þá stöndum við okkur í sam-
keppninni. Flóknara er það
ekki.“
„En telur þú að það gæti komið
niður á fyrirtæki eins og Hagkaup
ef það hefði óvægna stefnu í
starfsmannahaldi gagnvart kon-
um? Að veltan gæti dregist sam-
an?“
, Já, það gæti hugsanlega gert
það. Ég hef satt að segja ekki velt
því mikið fyrir mér. Við fylgjum
auðvitað öllum lögum og reglum
til hins ítrasta, til dæmis í fæðing-
arorlofsmálum. Svo getur hver
haft sína prívatskoðun á því hvort
reglur um fæðingarorlof séu kon-
um nógu hagstæðar og ég er
þeirrar skoðunar að svo sé alls
ekki. Þegar hæfileikakona í
ábyrgðarstöðu fer fram á að fyrir-
tækið sýni henni meiri sveigjan-
leika en lögin skylda okkur til,
reynum við að meta þau mál
hverju sinni og yfirleitt hefur
okkur tekist að finna lausnir sem
allir eru ánægöir með.“
Það eru engir smápeningar sem
fara um hendurnar á íslenskum
konum. Sigurður Gísli Pálmason,
„Við sem lögðum á
ráðin um byggingu
Kringlunnar og
fylgdum fram-
kvœmdunum eftir
vorum eingöngu
karlar. Ég velti því
oft fyrir mér að í
raun skaut þarna
mjög skökku við, því
við vissumað um 80%
af viðskiptavinunum
yrðu konur!"
stjórnarformaður Hagkaups,
sagði í samtali við Veru að gert sé
ráð fyrir að um 80% viðskipta-
vina í versllunarmiðstöðvum eins
og Kringlunni séu konur. Þessi
tala cr hvggð á erlendum könnun-
um en hefur einnig verið staðfest
í könnunum sem Hagkaup hefur
látið gera.
„Við sem lögðum á ráðin um
byggingu Kringlunnar og fvlgd-
um framkvæmdum eftir vorum
eingöngu karlar. Ég velti því oft
fyrir mér að í raun skaut þarna
mjög skökku við, því við vissum
að um 80% af viðskiptavinunum
yrðu konur!"
Það eru ckki til neinar óyggj-
andi tölur um þá fjármuni sem ís-
lenskar konur láta frá sér í Kringl-
unni. Markaðshlutdeild hennar í
smásöluversluninni á höfuðborg-
arsvæðinu á þessu ári er sam-
kvæmt nýlegri áætlun Borgar-
skipulags talin vera um 17% og
gæti það bent til veltu á bilinu
5—7 milljarðar. Samkvæmt því
rynnu 4—5,6 milljarðar á þessu
ári úr buddum íslenskra kvenna í
þessa einu verslunarmiðstöð, ef
við gefum okkur þá forsendu aö
sama hlutfall gildi um þær fjár-
hæðir sem eytt er og gildir um
hlutfall kynjanna. Með öðrum
orðum, að 80% af veltunni komi
frá konum.
9
jósmynd: Anna Fjóla Gísladóttir