Vera - 01.09.1990, Side 11
AFSAKIÐ, EN ÁTTU
GÓÐAN FJÖLSKYLDUBÍL ...
Heimsókn á bílasölu getur ver-
ið martröð fyrir venjulega fjöl-
skyldu ef hún er svo ólánsöm
að lenda á kvartmíludreng við
afgreiðslu og reynir að fá hann
til að sýna sér traustan fjöl-
skyldubíl á viðráðanlegu verði.
Ef drengurinn á annað borð
virðir húsmóðurina viðlits
lekur fyrirlitningin út úr
munnvikunum á veslingnum á
meðan hann reynir að rifja upp
hvort bíllin sé búinn öryggis-
beltum aftur í, sé traustur í
hálku og sparneytinn. Þessi
kvartmílugæi getur reynst bíla-
sölunni dýrt spaug, því hann
fælir frá ágætis viðskiptavini,
sómakærar fjölskyldur sem
standa í skilum hvort sem aura-
ráðin eru lítil eða mikil.
Drengir af þessu tagi gera sér
sjaldan grein fyrir að þeir eru
að selja húsmóðurinni á heim-
ilinu bíl, en ekki unglingspilt-
inum sem heimilisfaðirinn eitt
sinn var.
Það henti fyrir nokkrum ár-
um að fjölskylda af höfuð-
borgarsvæðinu ætlaði að end-
urnýjafjölskyldubflinnogverja
til þess upphæð sem samsvar-
aði liðlega hálfri milljón króna
á verðlagi haustsins 1990. Hús-
móðirin á heimilinu ætlaði að
nota bílinn mest. Eftirfarandi
er samtal hjónanna við kvart-
mfludreng á bflasölu:
Húsmóðirin: Við erum að leita
að bfl ...
Afgreiðsludrengurinn: Augna-
blik ... (hann snýr sér að leður-
klæddum náunga á svipuðu
reki og talar við hann í tuttugu
mínútur, úr orðaflaumnum má
greina orð á stangli: „túrbó
GTI, low profil-dekk og tíu
sekúndur upp í hundraðið.“
Heimilisfaðirinn er farinn að
ókyrrast og síðustu fimm mín-
úturnar tekur hann þátt í sam-
talinu að því er virðist af
þokkalegri kunnáttu en af-
greiðsludrengurinn og sá leð-
urklæddi láta sér fátt um finn-
ast).
Húsmóðirin: Afsakið, en áttu
góðan fjölskyldubfl, hann má
vera svona þriggja, fjögurra ára
gamall, en verður að vera með
öryggisbeltum aftur í ...
Afgreiðsludrengurinn: Ertu
búin að gá úti?
Húsmóðirin: Við vorum nú að
skoða, en mig vantar meiri
upplýsingar um þennan til
dæmis ... (bendir á gráan Volvo
út um gluggann) ...
Afgreiðsludrengurinn: (með
fyrirlitningu) ... þessi er nú
átta ára gamall, en ... (snýr sér
aftur að þeim leðurklædda).
Hjónin: Bless! (faraút, íaugum
heimilisföðurins er svolítill
tregi).
En tímarnir breytast og þessi
bflasala einnig. Sömu hjón
komu fyrir skömmu aftur á
þessa bflasölu, í þetta sinn
beinlínis til að athuga hvaða
móttökur þau fengju nú. Hús-
móðirin var tilbúin með
spurningarnar sem hún fékk
ekki svar við um árið, heimilis-
faðirinn var reiðubúinn að
spyrja um kraft bflsins, dekkin,
ökufærni í óbyggðum og bless-
að túrbóið. Bflasalinn var á
miðjum aldri með annan
yngri sér við hlið og nú brá svo
við að húsmóðirin fékk svör
við öllum sínum spurningum
og gott betur og heimilisfaðir-
inn líka, en í þeirri röð sem þau
spurðu. Vonandi er þetta vís-
bending um að a.m.k. einn
bflasali geri sér grein fyrir
hverjir kaupa bfla. Það eru þú
og ég, og ég er að minnsta kosti
kona, þótt þú sért kannski
karlmaður.
Innflutningur á fólksbifreið-
um nam 1622,2 milljónum
króna á síðastliðnu ári. Þessir
bflar eru seldir til venjulegra
fjölskyldna, fyrst nýir og síðar
notaðir.
kvætt og draga þá ályktun að kon-
an framkvæmi vinnuna og karl-
inn taki ákvörðun. Ég held að
svona sé þessu alls ekki háttað.
Konan tekur hina raunverulegu
ákvörðun að mxnu mati en leyfir
karlinum að vera ineð svona fyrir
siðasakir.“
,,Er ímynd Hagkaups þá nógu
kvenvinsamleg að þínu mati? Hér
á ég hæði við ímynd Hagkaups
sem kvennavinnustaðar og fyrir-
tækis sem konur skipta við.“
„Fyrirtæki einsog Hagkaup
hafa til jafns við önnur þurft að
takast á við breytta tíma og ný
viðhorf. Ég hef sjálfur reynslu af
því að karlar af gamla skólanum í
viðskiptalífi hérlendis eru oft
með bullandi fordóma gagnvart
konum og bitnar það jafnvel frek-
ar á konum í stjórnunarstöðum en
öðrum. Óánægjuraddir með að
konur í ábyrgðarstöðum fari í
barneignarfrí heyrast meðal eldri
karla en ég hef fullan hug á aö
koma svona hugsunarhætti út úr
húsi hjá mér. Ég trúi því að hags-
munir kynjanna fari saman og að
hagsmunir fyrirtækis eins og Hag-
kaups fari saman við hagsmuni
kvenna. Við erum öll á sama
báti.“
Það er ekki aðeiits hvað starfs-
mannahald varðar sem Kaupþing
sker sig úr í hefðbundnu umhverfi
íslenska viðskiptalífsins. Greini-
„Konan tekur hina
raunverulegu
ákvörðun að mínu
mati en leyfir karlin-
um að vera með
svona fyrir siða-
sakir.“
legur kvenlegur blær er á mörgum
auglýsingum fyrirtækisins. Að
höfða til kvenna í auglýsingum
um ,,hefðbundnar“ kvennavörur
er ekkert nýtt. Að höfða til þeirra
í auglýsingum urn verðbréf og
fjármál er hinsvegar óvenjulegt.
„Þegar til stóð að auglýsa nýja
áskrift að einingarbréfum í vor
ákváðum við að reyna að höfða
meira til kvenna en venjan er,“
segir Dagný Leifsdóttir viðskipta-
fræðingur hjá Kaupþingi. „Við
létum gera auglýsingar með áber-
andi mjúkri línu, litblýantsteikn-
ingum af hreiðri og litlum sætum
blómum. Við höfum enn ekki tek-
ið saman tölur yfir svörunina við
auglýsingunum, en fljótt á litið
11