Vera - 01.09.1990, Síða 15
OG KANNSKI BORGAR
SIG LÍKA AÐ KVARTA
En hvað finnst bankamönnum
um reynslu þessarar konu? Er
það litið alvarlegum augum ef
viðskiptavini finnst hann
órétti heittur? Fylgjast fyrir-
tæki með því hvernig komið er
fram við konur sem viðskipta-
vini? Benda þau starfsfólki
sínu sérstaklega á hvað betur
má fara í þessum efnum?
,,Við teljum það svo sjálfsagt
mál að mismuna ekki konum
eða körlum að ekki þurfi að
taka það fram,“ segir Brynjólf-
ur Helgason aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans og for-
maður markaðssviðs bankans.
„Ef viðskiptavini finnst hins
vegar að brotið sé á honum þá
tökum við það alvarlega, hvert
sem dæmið er, og það mynd-
um við að sjálfsögðu gera ef
konu þætti henni mismunað
vegna kynferðis. Við gerum
okkur grein fyrir að einstakl-
ingarnir sent starfa hjá okkur
eru mismunandi og þar af leið-
andi getum við þurft að grípa
inn í ef við fáum endurteknar
kvartanir sem rekja má til
framkomu sama starfsmanns.
Við höfum fært fólk til í starfi
ef okkur hefur þótt þörf á.
Það er í valdi útibússtjóra
hvernig hann tekur á kvörtun-
um sem til hans berast og ein
hlið þessara mála er hve fáar
konur eru útibússtjórar og hve
fáar konur hafa sóst eftir slík-
um störfum. Það er að breytast
verulega og ég er viss um að
fjölgun kvenna í stjórnunar-
stöðum innan bankanna er já-
kvæð þróun.“
Það breytist fátt ef við þegj-
um. Ein leiðin sem hægt er að
reyna er að láta alltaf vita ef við
fáuni ekki sómasamlega af-
greiðslu. Ef ekki dugar að tala
við útibússtjórann eða ef það
er hann sem stendur sig ekki í
stykkinu er sjálfsagt að láta að-
alstöðvar bankans vita. Hver
veit nerna kvartanirnar beri
árangur?
ABYRGÐARMENNIRNIR
ALLIR KONUR
Ekki eru allar bankasögur eins.
Stefanía Traustadóttir sem
starfar hjá Jafnréttisráði hefur
verið í viðskiptum við Alþýðu-
bankann síðan um miðjan átt-
unda áratuginn og lætur vel af
þeim.
„Fyrir fimm árum setti ég
mér þá reglu að biðja eingöngu
konur um að vera ábyrgðar-
menn á víxlum og skuldabréf-
um hjá mér. Ég er með VISA
kort og ábyrgðarmaður trygg-
ingavíxilsins er kona, ég er
með yfirdráttarheimild og
ábyrgðarmaður minn þar er
lfka kona og svo hef ég nokkr-
um sinnum tekið lán gegn
skuldabréfi, þó aldrei hafi
upphæðirnar verið ýkja háar.
Allir ábyrgðarmennirnir síð-
ustu fimm ár hafa verið konur.
Ég hef aldrei lent í neinum
vandræðum þess vegna, þvert
á móti. Ég hef eingöngu
reynslu af Alþýðubankanum í
þessu samhengi og gerði mér
satt að segja ekki grein fyrir að
þetta gæti nokkurs staðar verið
vandamál fyrr en þú spurðir
mig.“
„Ég vann í Kaupfélaginu
heima eitt jólafríið. Á Þor-
láksmessu komu margar
konur í búðina að kaupa
það síðasta til jólanna og
stungu því um leið að mér
hvað eiginmaðurinn ætti að
kaupa handa þeim ef hann
kæmi þar. Um kvöldið
streymdu karlmennirnir í
búðina, það var Þorlákur í
JÓLAGJÖF HANDA
ELSKUNNI ...
þeirn flestum og líf og fjör í
þorpinu. Margir voru í
vandræðum með að velja
jólagjöf handa elskunni
sinni og spurðu mig ráða.
Þessi jól fengu því flestar
konur í þorpinu það sem
þær óskuðu sér og allir voru
ánægðir."
„Jafnréttisáætlanir eru formlega
samþykktar áætlanir um aðgerð-
ir sem hafa jafnan rétt og jafna
stöðu kvenna og karla að leiðar-
ljósi. Slfkar áætlanir taka fyrst og
fremst á stöðu kvenna og karla í
atvinnulífinu. í slíkunt áætlun-
um felst jafnframt viðurkenning
á að það sé nauðsynlegt að grípa
til sérstakra tímabundinna að-
gerða til að raunverulegt jafn-
rétti og jafnstaða kvenna og
karla náist." (úr: Hvernig næst
jafnrétti í atvinnulífinu? Hug-
myndir Aðgerðir Áætlanir Fé-
lagsmálaráðuneytið Jafnréttis-
ráð án ártals)
Jafnréttisráð og félagsmála-
ráðuneytið áttu frumkvæði að
JAFNRÉTTIS-
ÁÆTLANIR
því að ráðuneyti og opinberar
stofnanir með fleiri en 20 starfs-
menn semdu jafnréttisáætlanir
til fjögurra ára, þ.e. frá 1.1.’89 til
31.12.’92. Nú hafa um 50 stofn-
anir og ráðuneyti skilað inn jafn-
réttisáætlunum. f þeim kentur
fram hver núverandi staða jafn-
réttismála er innan ráðuneytis-
ins eða stofnunarinnar, hvaða
markmiðum er stefnt að og inn-
an hvers tíma. Markmiðin varða
stöðuveitingar, launamál, starfs-
auglýsingar, námskeið og til-
nefningar í nefndir, stjórnir og
ráð.
FJÖLBREYTT
VETRARSTARF
KRAMHÚSSINS HEFST
10. SEPTEMBER!
1 Dansleikfnni. Sannkölluð upplyfting og heilsubót. Kennarar:
Hafdís Ámadóttir, Agnes Kristjónsdóttir, Elísabet Guðmundsdóttir.
2 Afró / Samba. Tímarfyrir dansglaða. Kennarar: Hafdís og Agnes.
3 Jass / Funk. Fyrsta ftokks fjör. Kennari: Ásgeir Bragason.
4 Nútímadans. Kraftur, tœkni, kröfur. Kennari: Hany Hadaya.
5 Leiksmiðja Kramhússins. Unnið með form, rými, spuna, texta,
raddbeitingu. Kennarar: Silvia von Kospoth og Ámi Pétur.
LISTASMIÐJA BARNA:
Tónlist. 6-9 ára. Söngur, kór, ásláttur,
blokkflauta, nótna/estur.Kennarar: Margrét
Pálmadóttir og Jóhanna Þórhallsdóttir.
Leiklist. 7-9 ára og 10-13 ára. Æfintýralegt!
Kennarar: Bára Lyngdal og Harpa Amardóttir.
Leikir.Dans.Spuni. 4-6 ára. Heillandi skemmtun
fyrir þau yngstu. Kennarar: Bára og Harpa.
Jass. 7-9 ára og 10-12 ára. Hér kviknar dansbakterían.
Kennari: Agnes Kristjóns. \
Tímabókanir standa yfir
í símum 15103 og 17860.
Höfum það virkilega gott í vetur.
VIÐ BERGSTAÐASTRÆTI
15