Vera - 01.09.1990, Page 34
HÉÐAIV OG ÞAÐAINÍ
RAÐSTEFNUR
HÉR OG ÞAR
Við lifum á öld ráðstefna. Eng-
inn félagsskapur og engin
stofnun er svo aum að hún
gangist ekki fyrir fleiri eða
færri ráðstefnum og þetta virð-
ist vera alþjóðlegur faraldur.
Ekkert land er svo aumt að það
bjóði ekki til ráðstefna. Við
íslendingar erum að ná okkur
þó nokkuð á strik á þessum
vettvangi þó að við séum ekki
komin í alþjóðaklassann enn
þá, en það hillir jió undir
fyrstu alþjóðaráðstefnuna.
Ráðstefnunum fylgir að boð
eru send út um heiminn og
berst minnst af þeim hingað
norður í Ballarhaf en samt
slæðist eitt og annað hingað
svo að sumum þykir jafnvel
nóg um.
Til mín hafa slæðst nokkur
boð um ráðstefnur í kvenna-
fræðum með tilmælum um að
þeim verði komið á framfæri
og verður það gert hér í von
um að það verði einhverjum til
gagns og fróðleiks. Lesendur
eru beðnir velvirðingar á að
nöfn aðstandenda og yfirskrift
ráðstefnanna eru ekki þýdd til
þess að ekki komi til misskiln-
ingur.
Nordisk forskerkonference:
Nye perspektiver pá
forskningen om kvinde-
bevægelserne, haldin 28.
okt.—1. nóv. n.k. ÍSostrupSlot
við Grená á Jótlandi á vegum
Kvindebevægelsesprojektet,
Cekvina & institut for Stats-
kundskab, Aarhus Universitet,
Statsbiblioteket, Árhus.
NAVF. Sekretariat for kvinne-
forskning og Senter for
kvinneforskning, Universitetet
i Oslo gengst fyrir norrænni
ráðstefnu um Kvinner, miljo
og utvikling í Osló 12.—14.
nóv. n.k. Ráðstefnan er eink-
um ætluð konum í raunvísind-
um og tæknigreinum. Meðal
ræðumanna eru nokkrar
heimsþekktar konur á sviði
vísindaheimsspeki, stjórn-
málahagfræði og tækni. Vinnu-
hópar munu fást við eftirfar-
andi þrjú viðfangsefni: (1)
erfða- og frjóvgunartækni, (2)
konur og orka, (3) konur,
fæðuframleiðsla og fæðufram-
boð.
European Network for
Women’s Studies mun gangast
fyrir málþingi um kvenna-
rannsóknir í Austur og
Vestur Evrópu 22.-28. nóv.
n.k. íHollandi.
NAVF. Sekretariatet for kvinne-
forskning býður til norræns
málþings um Medisinsk
kvinneforskning. Grense-
sprengende vitenskap-
steoretiske utfordringer?
7.—9- febr. 1991 í ráðstefnu-
miðstöðinni Lysebu, Voksen-
kollen, Oslo.
imars, 4.—8. 1990verðurmál-
þing um efnið Alcohol,
family and significant
others í Helsinki í Finnlandi.
Kvennarannsóknarhópur
alþjóðalandfræöisambandsins
og kvennarannsóknamiðstöð-
in við háskólann í Waterloo í
Ontario bjóða til alþjóðlegrar
ráðstefnu um Gender and
economic restructuring í
Waterloo 5-—10. maí 1991-
Fjórða alþjóðaráðstefnan um
Women — work — com-
puterization verður haldin á
vegum International Federa-
tion for Information Process-
ing í Tampere Hall Tampere,
Finnlandi 30. júní—2. júlí
1991.
Loks eru danskar kvennarann-
sóknamiðstöðvar að undirbúa
mikla og áhugaverða ráðstefnu
í Álaborg 18.—22. ágúst 1991
um Women in a Changing
Europe. Gert er ráð fyrir 200
þátttakendum frá öllum lönd-
um Evrópu.
Meiri eða minni upplýsingar
liggja fyrir um allar þessar ráð-
stefnur. Þær sem hafa áhuga
geta skrifað eða hringt. Betra
er að gera það fyrr en siöar því
að umsóknarfrestur er oft
langur.
Guðrún Ólafsdóttir, dósent
Jarðfræðahús
Háskóli íslands
101 Reykjavík.
Sími: 69 44 84.
MANNFRÆÐI-
RÁÐSTEFNA
Annað hvert ár er haldin ráð-
stefna mannfræðinga á norð-
urlöndum. í ár, dagana 9.—11.
júní var hún haldin í Reykjavík
og sóttu hana um 100 ráð-
stefnugestir.
Kvennamannfræði skipaði
nokkurn sess á þessari ráð-
stefnu. Rayana Rapp, mótandi
fræðikona í greininni í Banda-
ríkjunum og víðar, var sérstak-
lega boðið til ráðstefnunnar og
ræddi hún í fyrirlestri sínum
m.a. um stöðu kvennamann-
fræði í dag.
Sérstakur vinnuhópur tók
kvennamannfræði fyrir þó svo
að hún kæmi einnig til um-
ræðu í öðrum hópum. Ninna
Nyberg Sörensen frá Dan-
mörku ræddi um innflytjendur
frá Dóminíska Lýðveldinu til
New York borgar. Hún talaði
sérstaklega um hlut kvenna í
þessum flutningum og um þátt
þeirra í að móta síbreytilega
menningu á nýjum stað.
Fyrirlestur Hanne Heen frá
Noregi var um fjölskyldur þar
sem eiginmennirnir vinna á
olíuborpöllum. Hanne hefur
sérstaklega rannsakað áhrif
langrar fjarveru þeirra við
vinnu, með löngum fríum
heima á milli, á fjölskyldulíf
og samskipti kynjanna.
Unnur Dís Skaptadóttir, sem
vinnur að doktorsritgerð við
CUNY háskólann í New York,
fjallaði um stöðu kvenna í
íslenskum sjávarþorpum. Hún
talaði um viðhorf til kvenna í
sjávarútvegi annars vegar og
framlag þeirra hins vegar og
benti á þá mótsögn sem þarna
er.
Sá fyrirlestur sem mesta
athygli vakti í þessum vinnu-
hópi var fyrirlestur Aud Talle
frá Svíþjóð um umskurð
kvenna í Sómalíu. Athygli
vakti að í rannsókn sinni fann
Aud nánast enga andstöðu
meðal kvenna við þessa hefð.
Sem dæmi um kvennamann-
fræði umfjöllun í öðrum
vinnuhópum má nefna fyrir-
lestur Jóns Hauks Ingimundar-
sonar sem stundar doktors-
nám í Arizona. Jón Haukur
segir huldufólkssögur vera
34