Vera - 01.08.1992, Síða 6
„ALIT NEMA
PÍKUPOPP,
VÆLUKÁNTRÍ OG
PERMANENTROKK"
SEGJA STELPURNAR í
KOLRÖSSU KRÓKRÍÐANDI
Þó aö margar íslenskar stelpur leggi stund á tónlistarnám,
þá hefur sorglega lítiö boriö á þeim í rokktónlist. Þaö er helst
aö sjá eina og eina söngkonu í hljómsveitum, sem aö ööru
leyti eru skipaðar strákum. Til eru undantekningar eins og
hljómsveitirnar Risaeölan og Sykurmolarnir, þar sem stelp-
urnar gegna lykilhlutverki í tónlistinni. Einnig hafa verið til
kvennahljómsveitir. Sú fyrsta var Grýlurnar, sem Ragnhildur
Gísladóttir stofnaöi, síöan vöktu Dúkkulísurnar athygli þegar
þœr sigruöu í Músíktilraunum Tónabœjar fyrir níu árum. Þaö
var ekki fyrr en í vor aö kvennahljómsveit tók aftur þátt í
þeirri keppni. Þaö var Kolrassa Krókríöandi, sem vann
keppnina í apríl síöastliönum. Sú staðreynd, aö í bœöi
skiptin sem kvennahljómsveit tekur þátt í keppninnni ber
hún sigur úr býtum, varö til þess að skœðar tungur sögöu aö
þœr heföu unniö vegna þess aö þœr voru stelpur. Eftir aö
hafa heyrt þœr spila, sannfœröist ég um aö sú vœri ekki
raunin. Þcer spila seiðandi en um leiö þétta tónlist,
söngkonan er kraftmikil og vœlandi fiöluleikur hennar
fullkomnar myndina. Þaö má hins vegar til sanns vegar
fœra aö þœr hafi sigrað keppinautana út á þaö aö vera
ööruvísi, hafa sérstöðu, sem er m.a. sú staðreynd aö þœr
eru kvenkyns. í hljómsveitinni eru fjórar stelpur úr Keflavík,
allar fœddar kvennaáriö 1975. Þeir heita Elísa Geirsdóttir,
sem syngur og spilar á fiðlu, Sigrún Eiríksdóttir gítarleikari,
Esther Ásgeirsdóttir bassaleikari og Birgitta Vilbergsdóttir
lemur húöirnar.
Ég spurði stelpurnar hvaðan
nafn hljómsveitarínnar værí
fengið.
- Nafnið Kolrassa Krókríð-
andi er fengið úr samnefndri
þjóðsögu um Ásu, Signýju og
Helgu. Þetta er nafnið sem
Helga tók sér þegar hún dul-
bjó sig, með því að skrýðast
sekki og ösku, til þess að kom-
ast hjá því að giftast tröllkarli
sem ætlaði að fá hana til
fylgilags við sig.
Nöfn laganna minna einnig
á íslenskar þjóðsögur. Þau
heita t.d. „Móðir mín í kví,
kví“, framhald textans hljómar
svona: „ég skal ljá þér duluna
mína að hengja þig í...“,
„Vögguvisa", „Blóðskömm" og
„Hrafn (kallaður Krummi)".
- Við semjum texta um það
sem er að gerast, þeir eru
átakanlegir, við erum þær
einu sem sjáum merkingu út
úr þessum textum. Þeir eru
um það hvernig við sjáum lífið
eða einhverja persónu. Impró-
viserum fyrst, „Sykurmola-
aðferðin", þ.e. við semjum allt
í sameiningu.
Hvenær byrjuðuð þið að spila
saman?
- Kolrassa var stofnuð í nóv-
ember sl. en vorið 1991 vorum
við í hljómsveitinni „Menn".
Konur eru jú líka menn. Sú
hljómsveit spilaði fyrst og
fremst lög eftir aðra, en nú
erum við bara með frumsamin
lög á prógramminu, fyrir utan
einstaka nýbylgjulög eftir
grúppur sem enginn þekkir
svo að allir halda að þau séu
eftir okkur! Við hlustum á allt
nema píkupopp, vælukántrí
og permanettrokk, núna
hlustum við mest á hljóm-
sveitir eins og My Bloody
Valentine, Stone Roses, Ride,
Charlatans og íleiri nýbylgju-
sveitir.
6