Vera - 01.08.1992, Blaðsíða 37

Vera - 01.08.1992, Blaðsíða 37
Accused", mynd um unga konu sem leitar réttar síns eftir að þrír karlmenn nauðga henni. Mynd þessi er sterkur vitnisburður um þá tíma sem við lifum, þar sem rödd kon- unnar er farin að hljóma og ekki hægt að kæfa kröfu henn- ar um jafnrétti og virðingu og láta hana falla í glejmisku og dá. Framleiðendur myndar- innar héldu þvi fram, að Jodie væri of feit til að leika hina ólánsömu gengilbeinu, hún hefði ekki þann „líkamlega sjarma" sem hlutverkið krafð- ist að þeirra mati. En Jodie gafst ekki upp, fór til fundar við annan aðal framleiðand- ann og hnyklaði vöðvana íyrir framan hann uns hann sann- færðist um að hún væri kjörin i þetta erfiða hlutverk. Niður- læging af þessu tagi er og hefur verið daglegt brauð fyrir konur í kvikmyndabransanum og kemur vart til með að breytast nokkurn skapaðan hlut nema konur taki það í sínar hendur að hjálpa fólki (af báðum kynjum!) að breyta stöðluðum ímyndum um líkama konunnar. Jodie Foster lék Söru Tobias af mikilli innlifun °g sannfæringu, svo vel að aftur áttu menn eriitt með að aðskilja skáldsagnapersónuna °g leikkonuna. Hún var verð- launuð fyrir frammistöðu sína °g hlaut Óskarinn fyrir bestan leik kvenna í aðalhlutverki. f rá því að Jodie lék írisi í „Taxi Driver" hefur hún valið hlutverk kvenna sem eru á einhvern hátt utangarðs eða viga í vök að verjast í sam- félaginu, eru nokkurs konar fórnarlömb eríiðra aðstæðna °g eigin kynferðis. Þótt það sé 'angt í frá hlutskipti Jodiear sjálírar hefur hún einhverja áráttu að leika konur sem hafa °rðið undir í líflnu, rísa upp og ?tanda uppi sem sigurvegarar. 1 mynd Jonathans Demme • Lömbin þagna" leikur Jodie f'Bl-lærlinginn Clarice Starling Sem, ólíkt öðrum persónum sem hún hefur leikið, er hetja há upphafi. í þeirri mynd fær 'hn þenkjandi og metnaðar- Sjarna, en jafnframt samúðar- tulla leikkona, frelsi og útrás Sem aldrei fyrr til að nýta gáfur sínar og innsæi þrátt fyrir kynferði sitt. Clarice Starling °g Jodie Foster renna saman í eina persónu sem skorar á hólm heilan her karlmanna og hefur betur á endasprettinum. Eins og nýjasta kvikmynd Jodie Foster, „Little man Tate", ber með sér er ekki ástæða til að örvænta um framtíð þessar- ar ungu leikkonu. í myndinni þreytir hún frumraun sína á sviði leikstjórnar og leikur jafnframt eitt aðalhlutverkið í vel heppnaðri mynd um afburðagreindan dreng, Fred Tate. Jodie leikur Dede, einstæða móður drengs sem lendir utangarðs sökum þess að hann er gæddur yfirburða gáfum og hefur andlega burði langt fram yíir jafnaldra sína. Samfélagið hafnar þessum börnum eða gerir þeim erfitt fyrir á einn eða annan hátt að aðlagast og nýta hæfileika sína á jákvæðan og uppbyggilegan máta. Myndin um þau mæðgin tekur á þessum málum af manneskjulegri hlýju og góð- legri kimni. Efni myndarinnar er Jodie ekki að öllu leyti fram- andi, því að sjálf er hún barn einstæðrar móður og varð fyrirvinna heimilisins þriggja ára gömul með því að leika í sjónvarpsauglýsingum. Aðeins sjö ára gömul var Jodie alta- landi á þrjú tungumál og hefur alla sína skólagöngu haldið lokaræðuna við skólaslit, en það fá dúxar aðeins að gera. Brandy, móðir hennar, lagði hart að henni að afla sér góðrar menntunar, því að hún hefur ekki mikla trú á leiklist- inni sem framtíðarveganesti. Jodie er með B.A. gráðu í bók- menntum frá Yale sem er einn virtasti háskóli Bandarikj- anna. Hvað sem því liður er ástæða fyrir konur að vera bjartsýnar um þróun mála í bandaríska kvikmyndaheim- inum, þar sem ný kynslóð „sterkra" kvenna hefur kvatt sér hljóðs og lætur sífellt meira að sér kveða á öllum sviðum þessa fræga, en ekki síðasta vigis karla í skemmtanabrans- anum. Látum Jodie hafa síð- asta orðið: „Hér á árum áður leit ég eingöngu á kvikmynda- leik sem hvert annað starf, nú er þetta það sem ég lifi fyrir". Það virðist því nokkuð ábyggi- legt að Jodie Foster á eftir að kiydda líf kvikmyndaunnenda um víða veröld með myndum sínum um ókomin ár. □ Lára Martin Kvikmyndir Jodie Foster Napoleon and Samantha 1972 Kansas City Bomber 1972 Mence of the Mountain 1973 One little Indian 1973 Tom Sawyer 1973 Alice does not live here any more 1975 Taxi Driver 1975 Echos of a Summer 1976 Bugsy Malone 1976 Freaky Friday 1976 Little girl who lives down the lane 1977 Candleshoe 1977 Foxes 1980 Carny 1980 Hotel New Hampshire 1984 The Blood of others 1984 Siesta 1986 Five Corners 1986 Reckless Endangerment 1988 Steeling Home 1988 Accused 1988 Catch Fire 1990 Silence of the Lambs 1991 Little man Tate 1991 HÁSKÓLIÍSLANDS ENDURMENNTUNARSTOFNUN, HEIMSPEKIDEILD KVÖLDNÁMSKEIÐ FYRIR ALMENNING Á VEGUM ENDURMENNTUNARSTOFNUNAR OG HEIMSPEKIDEILDAR HÁSKÓLA ÍSLANDS HAUSTIÐ 1992. NÁMSKEIÐIN ERU ÖLLUM OPIN. SKRÁNING ER í S. 694940, EN NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMUM 694923,694924 0G 694925. Spænskar bókmenntir, 8 skipti Guðbergur Bergsson rithöfundur Brennu-Njólssaga. lOskipti Jón Böðvarsson, cand. mag. Er til kvenlegur rithóttur? 6 skipti Helga Kress prófessor, heimspekideild H.í. Alheimurinn og við. 6 skipti Guðmundur Arnlaugsson, fyrrverandi rektor, o.fl. Heimspekileg og fagurfræðileg viðfangsefni i myndlist Gunnar Árnason, doktor í heimspeki og kennari í listheimspeki við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Þættir úr sögu siðfræðinnar, 6-8 skipti Vilhjálmur Árnason, dósent heimspekideild H.í. Hin nýja Evrópa: Þróun og sögulegar forsendur, 6-8 skipti Magnús Toríi Ólafsson, blaðamaður o.fl. Óperur og tónsmíðar Mozarts, 6 skipti Guðmundur Emilsson tónlistarstjóri RÚV Námskeiðin eru haldin eitt kvöid í viku kl. 20:00-22:00 í október og nóvember. Verð kr. 6.800 - 8.800 eftir lengd. VR, SFR og BSRB styrkja félagsmenn sína. 37

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.