Vera - 01.08.1992, Blaðsíða 34

Vera - 01.08.1992, Blaðsíða 34
0 velferð KONUR Að undanförnu hefur nokkur umræða farið fram um ís- lenska velferðarkerfið, einkum í kjölfar efnahagsráðstafana stjórnvalda með tilheyrandi niðurskurði í heilbrigðis-, fé- lags- og menntakerfinu. Eins og svo oft áður einkenn- ist þjóðmálaumræðan af flokkspólitísku reiptogi þar sem fulltrúar flokkanna toga hverju sinni í þá átt sem hæfir setu þeirra í stjórn eða stjórn- arandstöðu. Flestir, hvar í flokki sem þeir eru, segjast hafa það að markmiði að verja velferðina. Umræðan er líka full af slagorðum, t.d. um þá „sem minnst mega sín“ og goðsögnum eins og þeirri að ísland hafi lengi verið meðal mestu velferðarríkja heims þar sem hið opinbera velferð- arkerfi sé að meira eða minna leyti búið að taka við hlutverki íjölskyldunnar. Minna hefur farið fyrir málefnalegri um- ræðu þar sem velferðarríkið er skilgreint og eðli þess brotið til mergjar. í þessum pistli verður leitast við að líta á tengslin milli kvenna, fjölskyldu og velferðarkerfisins. í bók sinni Konur og vel- ferðarríkið (Women and the Welfare State) segir Elisabeth Wilson, breskur félagsráðgjafi og feministi: „Velferðarríkið er ekki einungis röð þjónustu- þátta, það er einnig margs konar hugmyndir um sam- félagið og fjölskylduna og ekki síst um konur sem gegna lykilhlutverki innan fjölskyld- unnar sem eins konar jafn- vægisstöng hennar," Til þess að skilja eðli vel- ferðarrikisins verður að byija á því að fjalla um íjölskylduna, samskipti kynjanna og sér- staklega stöðu konunnar innan fjölskyldunnar. Félags- fræðin og ýmsar skyldar fræði- greinar fjalla oftast um fjöl- skylduna sem eina heild þar sem hagsmunir allra fara saman, barna og fullorðinna af báðum kynjum. Feministar víða um hinn vestræna heim Til þess að skilja eðli velferðarríkisins verður að byrja á því að fjalla um fjölskylduna, samskipti kvnjanna og sérstaklega stöðu konunnar innan fjölskyldunnar. hafa aftur á móti bent á að í fjölskyldum ráði feðra/karl- veldið ríkjum og þar verði hagsmunaárekstrar þar sem þeir valdaminni (konur, börn, gamlir, fatlaðir) verði undir í samkiptum sínum við þá sterkari, karlana. Hagsmunir karla eru m.a. að viðhalda ójafnri skiptingu verka á heim- ilinu þar sem fjölskyldulíf og barneignir móta líf flestra kvenna. Kannanir sýna svo óyggjandi er, að störf sem þessu tengjast og ábyrgðin sem þeim fylgir hvíla enn í dag að mestu á herðum kvenna. Ein afleiðing þessa er ójöfn staða karla og kvenna á vinnu- markaði þar sem konur eru rétt rúmlega hálfdrættingar á við karla í launum sem aftur verður til þess að gera konur háðari velvilja karla bæði í einkalífi og i hinum opinbera heimi. Fýrir u.þ.b. hálfri öld skrifaði Virginia Woolf í kapp- ræðuriti sínu Three Guienas: „Heiminum er sem stendur skipt í tvö þjónustusvið, annað opinbert og hitt einkasvið. í öðrum heiminum eru synir menntaðra karla að vinnu sem opinberir starfsmenn, dómar- ar og hermenn og fá greidd laun fyrir þessa vinnu. í hin- um heiminum eru dætur menntaðra manna að vinna sem eiginkonur, mæður og dætur ... en eiginkonur, dætur, mæður sem vinna allan dag- inn, alla daga og án vinnu þeirra myndi Ríkið falla sam- an, án þessarar vinnu myndu synir yðar, herra, hætta að vera til, - þær fá ekkert borgað fyrir þessa vinnu sína.“ Vissulega hefur ýmislegt breyst á þessum fimmtíu árum sem liðin eru, m.a. eru konur orðnar sýnilegri á hinu opinbera sviði þar sem þær starfa við hlið karla i flestum i störfum og segja má að hinn opinberi heimur félli saman ef konur hættu þar störfum. Það sem ekki hefur breyst er að án ólaunaðra starfa kvenna inn- an veggja heimilisins félli þjóð- félagið saman. Réttur kvenna til þátttöku í hinum opinbera heimi hefur unnist en því hef- ur löngum verið haldið fram bæði leynt og ljóst að þessi þátttaka bitni á Qölskyldunni. Ekki svo að skilja að í raun 34

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.