Vera - 01.08.1992, Side 35

Vera - 01.08.1992, Side 35
halí það einungis verið þaríir kvenna sem hafl ráðið ferðinni um atvinnuþátttöku þeirra. Þar hafa ýmsar þjóðfélags- breytingar, einkum staða atvinnuveganna og þörf þeirra fyrir vinnufúsar hendur, ráðið miklu. Það er þvi engin tilvilj- un að raddir um að konur sviki fjölskyldur sínar með þátttöku i atvinnulífi og félags- málum verða hvað háværastar á timum efnahagskreppu og yflrvofandi atvinnuleysis. Tvenns konar goðsagnir sem tengjast atvinnuþátttöku kvenna og velferðarkerfinu hafa verið býsna lífseigar. Önnur er sú að hugmyndir sem velferðarþjónustan byggir á stefni að því að auðvelda konum þátttöku í líflnu utan íjölskyldunnar. Hin er sú stað- hæflng að konur annist síður Qölskyldur sínar við það að taka þátt í hinu opinbera lífi. Hvort tveggja er rangt. Konur sjá enn þann dag í dag að mestu leyti (og oftast án launa) úm umönnun barna, fatlaðra Það sem ekki hefur breyst er að án ólaunaðra starfa kvenna innan vegaja heimilisins féííi þjóðfélagið saman. og aldraðra innan íjölskyld- unnar og það sem er e.t.v. enn mikilvægara, ábyrgðin á lífi og velgengni fjölskyldna hvílir á herðum kvenna. Þegar eitt- hvað fer aflaga fer ekki á milli mála hver ber ábyrgðina og er þá sama hvort um er að ræða slys á börnum, unglinga- vandamál eða jafnvel afbrot eða fíkniefnaneysla fullorð- inna í íjölskyldunni. Félags- málastefnur á íslandi (oft stefnuleysi eða hentistefnur) ganga enn út frá þeirri vissu að íjölskyldan/konur beri ábyrgð- ina. Þess vegna er hin opin- bera þjónusta við fjölskyldur hvar sem hana er að flnna, svo brotakennd og ófullnægjandi fyrir þá sem þurfa nauðsyn- lega á henni að halda. Ekki þarf annað en að líta á ástand mála í dagvistarþjónustu, skort á skólamáltíðum, tvi- setna skóla, skort á heild- stæðri stoðþjónustu við um- önnun fatlaðra og aldraðra og opinberar tryggingabætur sem ekki gera betur en halda líflnu í fólki, til þess að sannfærast um að ísland er ekki i hópi þeirra þjóða sem geta státað sig af besta velferðarkerli í heimi. Auðvitað kemur hið götótta velferðarkerfl sér oft illa fyrir karla en fyrir konur skiptir það sköpum, m.a. vegna stöðu jDeirra í íjölskyldunni og á möguleika þeirra að haldast yflr fátæktarmörkunum og að geta lifað líflnu með virðingu fyrir sjálfri sér án þess að vera algjörlega upp á aðra komnar. Þegar fundið er að hinni opin- beru velferð heyrast fljótt þær raddir að íjölskyldan eigi að axla ábyrgðina og ekki varpa henni yflr á hið opinbera. Þarna sem endranær fer ekki á milli mála að þegar talað er um fjölskylduna er átt við konur. Þrátt fyrir það sem hér hefur verið sagt um fjölskyld- una er hún eina formið í hin- um vestræna heimi þar sem fólki er skapaður vettvangur til þess að taka við og gefa vænt- umþykju og á annan hátt að fá útrás fyrir tilfinningar. Þess vegna er hún mikilvæg og leggja ber rækt við hana sem grundvallarstofnun þjóðfélags- ins. Ekki með þvi að hampa henni á hátíðarstundum eða skella skuldinni á þegar illa gengur, heldur með þvi að styðja hverja fjölskylduein- ingu, hvernig sem hún er, með markvissum aðgerðum stjórn- valda. Móta þarf stefnu í mál- efnum ijölskyldna m.a. út frá mismunandi hagsmunum kynjanna, líka innan fjögurra veggja heimilisins. □ Lára Björnsdóttir Teikning: Laura Valentino KONUR KARLAR Við höfum nærfætnað fyrir þvagleka. Höfum einnig þvagpokahaldara. Allt sérhannað og úr góðum efnum. Við minnum á okkar góða nærfatnað frá Care-design fyrir allt fólk og líka þá sem hafa sérþarfir. 7ónika h.fi. Umboðs- og heildverslun Melabraut 35, 170 Seltjarnarnesi s. 91-611668 VILTU BÆTA HJÓNABANDID / SAMBÚÐINA? Það er hægt að gera með einfafdri en viðurkenndri aðferð, sem miðar að því að efla og þroska gagnkvæman skilning ásamt þvi að treysta og bæta hjónabandið á varanlegan hátt. Námskeiðið er margreynt til fjölda ára í Bandaríkjunum og hefur geflð góða raun. Boðið er upp á kynningu og einkanámskeið fyrir hjón. Fullkomnum trúnaði er heitið. Upplýsingar í síma 91-37525, Guðrún, eða skriflð í pósthólf 8552, 128 Reykjavík.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.