Vera - 01.08.1992, Blaðsíða 25

Vera - 01.08.1992, Blaðsíða 25
hljóðlátur hópur sem vinnur bara sína vinnu og rís venjulega ekki UPP og kvartar opinberlega. Kannski það sé partur af vanda- málinu þvi stjórnvöld þurfa ekki að byggja hjúkrunarrými meðan konur annast þetta gamla fólk hljóðalaust. „Ég er alltaf að bíða efir að þrýstihópur myndist meðal að- standenda aldraðra og aldraðra sjálfa sem segir að nú sé komið nóg,“ segir Kristjana Sigmunds- dótitir hjá Félagsmálstofnun. „Þetta er orðið geysilegt öngþveiti og ég veit ekki hvernig karlasam- félagið myndi bregðast við ef konur segðu hingað og ekki lengra,“ segir Kristjana. Eins og málin standa í dag eru 269 konur og 118 karlar á skrá hjá Félagsmálastofnum yfir þá sem búið er að meta að þurfi á stofnun að halda. Af þeim eru 120 manns í brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými í dag. Lítið mjak- ast í þá átt að breyting verði á þessu ástandi þar sem ríkið á að sjá um hjúkrunar-og heilbrigðis- mál og allir vita að þar er verið að skera niður. Hjúkrunarheimili er ekki það sama og öldrunardeildir spítalanna þvi að öldrun sem slík er ekki sjúkdómur. Þegar aldraðir fá sjúkdóma fara þeir á öldrunar- deildir en á hjúkrunarheimilum er litið á fólkið sem einstaklinga sem þurfa aðstoð við hið daglega líf. Á svona stofnun er sjúkra- blærinn tekinn af og fólk fær að hafa eigið herbergi með eitthvað af munum sínum í kringum sig. Þjónustumiðstöðvar í sex hverfum Þó svo að neyðarástand ríki í um- önnun gamalmenna sem þurfa mikla þjónustu þá er ýmislegt gert fyrir aldraða sem eru nokk- urnveginn fullfriskir. Undanfarin ár hefur orðið skipulagsbreyting á allri öldrunarþjónustu í land- inu. Ný lög voru sett um málefni aldraða árið 1990 og er markmið laganna að „aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis-og félagslegu Þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast og hagkvæmast miðað við þörf og ástand hins aldraða." Einnig Segir í lögunum að „aldraðir geti svo lengi sem verða má búið við eðlilegt heimilislíf en að jafnframt sé tryggð nauðsynleg stofnana- Þjónusta þegar hennar gerist þörf. Eftir því sem kostur er skal sjálfsákvörðunarréttur aldraðra í þvi efni virtur og möguleikar þeirra til ráðstöfunar eigin eigna Margar konur hafa hætt að vinna úti til að sinna öldruðum skyldmennum sínum. „Þetta er orðið geysilegt öngþveiti og ég veit ekki hvernia karlasamfélagio myndi bregðast við ef Konur segðu hingað og eldci lengra." og lífeyrirs ef þess gerist þörf.“ Ýmislegt vantar uppá að lögun- um sé fullnægt en margt hefur breyst til batnaðar. Stöðugt er unnið að þvi að sú þjónusta sem fyrir hendi er berist til þeirra sem þurfa hennar með og verið er að meta hvers konar þjónusta er nauðsynleg. Það var greinilegt að margar konur sem VERA hafði samband við og annast aldraða ættingja eru frekar óuppplýstir um þá þjónustu sem fólk getur fengið. Þær fóru frekar eftir því sem þær höfðu heyrt frá ná- grönnum eða öðrum ættingjum heldur en að hringja í þjónustu- miðstöðvarnar og komast að því hvaða Jrjónusta stæði til boða í þeirra tilfelli. Reykjavikurborg rekur nú sex þjónustumiðstöðvar víðsvegar um borgina sem bjóða þeim sem enn búa heima upp á ýmsa þjónustu, t.d. leikfimi, aðstoð við böðun og hársnyrtingu. Út frá þessum þjónustumiðstöðvum er líka rekin heimilishjálp. Almenn heimilisstörf, eins og ræsting, matreiðsla, innkaup og þvottar eru innt af hendi, matur er send- ur heim og félagslíf og þjónusta miðstöðvanna er kynnt. Einnig geta aldraðir fengið aðstoð við að komast á dagvistunardeild til endurhæfingar svo eithvað sé nefnt. Aðstoðin sem er veitt er háð rnati sem fólk frá þjónustu- miðstöðvunum gerir. Til að vita hvaða Jrjónustu fólk á völ á verða aðstandendur eða aldaðrir sjálfir að hringja í þjónustumiðstöð í sínu hverfl. Enn sem komið er er eftirspurn eftir þjónustu meiri en framboð og það reynist ennþá erfltt að fá fólk til að starfa við heimilishjálp vegna lágra launa og vanvirðingu starfsins. Það var einu sinni í lögum að börn áttu að annast foreldra sinna þegar þau væru orðin gömul. Þjóðfélagið hefur breyst mikið frá gamla sveitasam- félaginu þegar allir bjuggu á sama bæ. Það er ekki konum að kenna að þjóðfélagið breyttist og að ríki og borg sjái það sem skyldu sína að veita fólki sem hefur lagt mikið af mörkum til uppbyggingar þessa þjóðfélags þá þjónustu sem það þarfnast. Það hlýtur að vera mikilvægt að gamalt fóki geti fengið að halda sjálfsvirðingu sinni og reisn sem manneskja þó svo það þurfl hjálp við að matast, fara á klósettið, hátta sig eða baða. Það getur verið erfltt að halda sjálfsvirðing- unni ef barnið er farið að skeina mann og baða og það væri nær að fá einhvern annan í það hlutverk. Það liggur fyrir okkur öllum að verða gömul svo það er hagur okkar allra að öldrunarþjónustan verði til þess að auka líkurnar á að efrí árin verði sem ánægju- legust. ÞB Fyrir þá sem þurfa uþþlýsingar um það hversu mikið fólk fœr í krónum talið frá ríkinu til framfœrslu á efri árunum, er það ekki mikið. Einstaklingur fœr elli- lífeyri sem er í dag tekjutengdur, óskertur er hannl2,329 kr. Ef viðkom- andi þénar meira en 71,114 kr. á mánuði byrjar ellilífeyririnn að skerðast um ákveðnar prósentur. Þar nœst fœr einstaklingurinn kr. 22.684 I tekjutrygg- ingu ef hún fœst óskert. Skerðingin hefst eftir að einstaklingurinn þénar 17,582 kr. á mánuði. Síðan getur þessi einstaklingur fengið viðþót ef hann þýr einn en það kallast heimilisuþþþbót 7,711 kr. og sérstðk heimilisuppbót 5,304 kr. Samanlagt gerir þetta 48,028 kr. ef það fœst óskert. Lífeyrisgreiðslur eru svo sér og mjög mismunandi, en konur fá venjulega lœgri upphœðir en karlmenn. 25

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.