Vera - 01.08.1992, Qupperneq 7
Mér Jlnnst ég heyra töluuerð
þjóðlagaáhrif lya Kolrössu,
sem m.a. hejur verið líkt við
Risaeðluna. Þær vilja ekki
kannast við þann skyldleika.
- Það eina sem er líkt, er að
i báðum hljómsveitum er
söngkona sem spilar á fiðlu.
Það er frekar að við minnum á
Þursaflokkinn, en við hlustuð-
um ekkert á hann fyrr en eftir
að okkur var bent á það. Við
hlustum líka á klassíska
tónlist og blöndum henni líka
inn í lögin okkar. Chopin,
Beethoven og Carmina Burana
eftir Carl Orff eru í uppáhaldi.
Elísa söngkona vill ekki
viðurkenna áhrif frá neinni
sérstakri söngkonu, „syng
bara eftir því hvað heyrist mik-
ið í magnaranum“.Elísa hefur
lært á fiðlu frá þvi að hún var
átta ára. Hinar eiga ekki eins
langt skipulegt tónlistarnám
að baki, en hafa allar lært
eitthvað. Þær segjast ekki hafa
verið mjög góðar þegar þær
byrjuðu að spila saman. „Við
björguðum okkur alveg.“
Kolrassa Krókríðandi vakti
fyrst verulega athygli þegar
hljómsveitin bar sigur úr býtum
í Músíktilraunum í april sl. Ég
spurði þær út í tildrög þess að
þær tóku þátt í keppninni.
- Upphafiega takmarkið var
að fá mynd af okkur í Mogg-
ann. Við erum ekki mjög kven-
legar á þeirri mynd, en það er
bara betra. Minnstu munaði
að við fengjum ekki að taka
þátt í keppninni, þar sem við
vorum of seinar að skrá okkur.
Húkkuðum far í bæinn, þvi að
enginn okkar hafði bílprófi Við
unnum undanúrslitakvöldið
með 70% fylgi áhorfenda, þar
af voru aðeins þrír Kefivíkingar
sem kusu.
Sigurlaunin í keppninni eru
stúdíótímar, sem ekki er vist
að þær þurfi að nota, því að
skömmu eftir keppnina var
haft samband við þær frá
Skífunni og þeim boðið að gefa
út í nafni félagsins. Ekki hefur
enn verið skrifað undir samn-
inga, en þar sem stelpurnar
eru allar ólögráða, þá verða
foreldrar þeirra að skrifa undir
samningana. Mamma Birgittu
sér um fjármálin, en þær eru
að leita að umboðsmanni.
Hins vegar eru stelpurnar
búnar að fá sér lögfræðing til
þess að hafa nú örugglega allt
á hreinu, enda hafa þær
svolítið fengið það á tilfinn-
inguna eftir stutt kynni af
bransanum að menn haldi að
það sé auðvelt að sleppa við að
borga þeim, af þvi að þær eru
svona ungar og þar að auki
stelpur. „Ætlum ekki að fara
illa út úr þessu." Þær segja að
foreldrarnir standi á bak við
þær, þó að e.t.v. finnist þeim
að þær mættu eyða meiri tíma
í námið. Þær Sigrún, Esther,
Birgitta og Elísa eru allar í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
segja að það sé erfitt að sam-
eina skólann og hljómsveitina.
„Við föllum allar á mætingu."
Sigurinn í keppninni opnaði
þeim margar aðrar dyr. Margir
hafa haft samband við þær og
það hefur verið mikið að gera.
Þær hafa hitað upp fyrir ýmsar
þekktar hljómsveitir, s.s. Síð-
an skein sól, Vini Dóra og In
Memorian (sem spilar thrash-
rokk ef þið vissuð það ekki
fyrir!). Þær spiluðu á Biórokki í
Laugardalshöllinni 16. júní og
þann 17. spiluðu þær í hvorki
meira né minna en þremur
bæjarfélögum, í Reykjavik,
Mosfellsbæ og heimabænum
Keflavik.
- Fólkið í Keflavík á erfitt
með að taka okkur alvarlega.
Keflvikingar hafa gaman af að
gera grín að okkur. Við vorum
kallaðar Zeppelingengið þar í
fyrra, af því að við vorum þær
einu sem hlustuðum á Led
Zeppelin. Nú hlusta allir á þá.
Við erum að fara að halda
fyrstu tónleikana okkar þar
eftir að við unnum og við erum
mjög spenntar að sjá hvernig
okkur verður tekið.
Ég get ekki stillt mig um að
spyija þær um álit þeirra á því
hvers vegna svonafáar stelpur
spila rokk.
- ímyndin, það samræmist
henni ekki að spila í hljóm-
sveit. Þær vilja allar vera eins,
- veimiltítur. Við erum einu
stelpurnar í Keflavik sem spil-
um í hljómsveit. Hins vegar
vitum við af einni kvenna-
hljómsveit í Breiðholti, grunn-
skólastelpur, gengur vist ekki
neitt. Svo eiga stelpur oft
minni peninga fyrir græjum en
strákar, þeir hafa hærra kaup.
Við þurfum að fá lánað hjá
þeim. Þrjár okkar voru einu
sinni í hljómsveit með tveimur
strákum, en þeir vildu ekki
gera neitt nýtt, bara halda sig
við poppið, svo að við hættum.
Hver er draumurinn?
- Það væri gaman að prófa
að spila annars staðar en á
íslandi, spila á einum skítug-
um sveitapöbb á Englandi...
Ingibjörg Stefánsdóttir
Myndir: Ólöf Björnsdóttir
r/.
Skattafsláttur,
sjálfvirkur lánsréttur,
öflugur lífeyrissjóður,
lán til húsnæðismála
og afburða ávöxtun
fæst með þátttöku í RS.
Réttumegin
við stríkið með
Reglubundnum
sparnaði
I*/ Rcghibundinn
/•spmnaður "s-r
1 —— legtsparnaðarkerfisem
hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að vera réttu megin
við strikið í fjármálum. Ávinningurinn er margfaldur: Þú
eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum
hætti, átt greiðari aðgang að lánsfé, kemst í hóp bestu
viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum
þínum en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við
bankann um að millifæra ákveðna upphæð
reglulega inn á Grunn, Landsbók, Kjörbók
eða Spariveltu sem saman mynda RS.
Landsbanki
Viðinngönguí RS
færðu þægilega
fjárhagsáætiunar-
möppu fyrir heimilið
og fjölskylduna.
L
Islands
Banki allra landsmanna
Allar nánarí upplýsingar fást i itarlegum bæklingi sem liggur frammi i næstu afgreiðslu Landsbankans
7